Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Qupperneq 25
Fróðlegur
formannafundur
með fískifræðingum og sérfræðingum
í físksjúkdómum og ræktunarmálum
Stjórn Landssambands stangarveiðifélaga
boðaði til fundar 31. janúar s.l. í salarkynn-
um Stangaveiðifélags Reykjavíkur og voru
þátttakendur formenn stangveiðifélaga,
fiskifræðingar, fisksjúkdómafræðingar,
fulltrúar veiðiréttareigenda, forustumenn
í laxeldis- og ræktunarmálum og fleiri.
Erindi fluttu fiskifræðingarnir Jón
Kristjánsson og Tumi Tómasson. Síðan
fóru fram umræður um þau mál, er snerta
starfssvið og hagsmuni framangreindra
aðila og verið hafa ofarlega á baugi undan-
farið, eða eins og sagði í fundarboði: 1. Ný-
legur innflutningur á norskum laxahrogn-
um og hugsanleg áhrif þess fordæmis í
framtíðinni. 2. Gífurlegur fjöldi heimilda
til ádráttar í laxveiðiám. 3. Hugsanleg
áhrif ríkisstofnana og annarra fyrirtækja á
verðmyndun laxveiðileyfa í skjóli skatt-
hlunninda.
Það var samdóma álit þeirra, sem þátt
tóku í þessum fundi, að hann hefði verið
mjög fróðlegur og gagnlegur.
Hér fer á eftir ávarp, sem Rafn Hafn-
fjörð, formaður L.S., flutti í upphafi fund-
arins.
Kæru félagar, góðir gestir.
Ég býð ykkur alla hjartanlega velkomna
til þessa formannafundar, sem við köllum
svo, - og gæti ég þó alveg eins sagt til þess-
arar veiðiferðar nú á þorra, því ætlun okkar
í stjórn L.S. er að reyna að veiða hér ýmiss
konar fróðleik upp úr þeim sérfræðingum,
sem við höfum boðið hingað.
Það má með sanni segja, að svo margar
kenningar og getgátur um nánast allt, sem
viðkemur fískirækt og laxveiði, hafí verið
á sveimi í undirdjúpunum og reyndar
einnig á yfirborðinu, að okkur stangveiði-
mönnum, sem erum fyrst og fremst leik-
menn, hefur fundist að við værum sífellt
að fiska í æ gruggugra vatni nú hin síðari
árin, hvað þessi málefni varðar.
Tilgangurinn með þessum fundi er því
fyrst og fremst sá að leita eftir upplýsing-
um víðvíkjandi þeim málefnum, sem sífellt
eru að koma upp á yfirborðið bæði í fjöl-
miðlum og manna í milli, - og eru reyndar
sífellt uppi á borðinu hjá okkur í stjórn
L.S.
Við vonum því að þessi fundur verði til
þess að hjálpa okkur og reyndar öðrum,
sem að þessum málum starfa, við að finna
þeim málaflokkum, sem við munum hér
fjalla um, einhvern fastan og farsælan far-
veg. Þá á ég við einhverja sundurliðun á
öllum þessum fjölmörgu vandamálum,
sem okkur virðist steðja að hinni nýju at-
vinnugrein, fiskeldinu, og þá jafnframt
okkar helsta áhugamáli, - laxveiðinni.
VEIÐIMAÐURINN
21