Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Blaðsíða 27
Frá formannafundinum. Ljósm. rh.
mála fyrir þessum dagskrárlið, til að skýra
ástæðuna fyrir áhyggjum okkar stangveiði-
manna vegna þessarra heimilda. Þetta mál
er einnig sífellt að skjóta upp kollinum
innan okkar samtaka og það ekki að ástæð-
ulausu, því okkur skortir þarna einnig fag-
lega þekkingu til að geta tekið afstöðu.
Við sendum Veiðimálastofnun eftirfar-
andi bréf 17. desember s.l.:
Vinsamlegast veitið Landssambandi
stangaveiðifélaga eftirfarandi upplýsingar:
Hvaða veiðifélög fengu heimild til
ádráttar (eða netaveiði) á þessu ári, þar
sem stangaveiði er stunduð í laxveiðiám og
hvað varð um laxinn?
Er þeim ekki skylt að gefa upp til Veiði-
málastofnunar eftirfarandi?
1. - Hve mikið fékkst af laxi og hversu
mikið af hvoru kyni?
2. - Hvar á vatnasvæðinu laxinn var
veiddur?
3. - Hvað gert var við laxinn? Var hann
drepinn og settur á markað? Var
hann settur í eldisstöð við ána sem
hann var tekinn úr, eða var hann
seldur lifandi til fjarlægra stöðva og
þá hvaða stöðva?
4. - Á hvem hátt var hann fluttur lifandi
til fjarlægra stöðva?
5. - Var fulltrúi frá Veiðimálastofnun,
eða einhver með faglega þekkingu,
viðstaddur ádráttinn?
Við teljum að Landssambandi stanga-
veiðifélaga sé nauðsynlegt að fá sem ítar-
legastar upplýsingar um þessi mál, til að
geta fylgst með framvindu allra tilrauna
sem gerðar eru til að viðhalda eða auka
fiskstofna í ám og vötnum landsins.
Stangaveiðifélögin eru hinn stóri mark-
aður fyrir veiðiréttareigendur í landinu og
okkur í stjórn L.S. ber að tryggja umbjóð-
endum okkar eins góða vöru og kostur er.
Þess vegna teljum við að gagnkvæmt upp-
lýsingastreymi sé nauðsynlegt öllum þeim
aðilum sem að þessum málum vinna.
Okkur barst bréf frá Veiðimálastofnun-
inni dags. 18. desember með lista yfir veitt
ádráttarleyfi.
VEIÐIMAÐURINN
23