Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Qupperneq 32
Falleg bók
um Elliðaárnar
Fyrir síðustu jól kom út bókin „Elliðaárn-
ar“ eftir Asgeir Ingólfsson. Þetta er glæsi-
leg bók og sérlega til hennar vandað, og
sem slík tekur hún sæti meðal íslenzkra
bóka um stangveiði við hliðina á „Laxá í
Aðaldal“ eftir Jakob V. Hafstein, sem út
kom árið 1965.
Þetta er önnur bókin um Elliðaárnar,
hin er „Elliðaárnar, Paradís Reykjavíkur“
eftir Guðmund Daníelsson, sem kom út
árið 1968.
Bók Asgeirs skiptist í tvo meginhluta.
I þeim fyrri er rakin saga Elliðaánna allt
frá landnámsöld til vorra daga. Þar greinir
frá eigendum ánna og leigumálum, nýt-
ingu ánna með ýmsum veiðiaðferðum og
hinum frægu Elliðaármálum. Sagt er frá
þýðingu ánna í vatnsveitu- og raforku-
málum Reykvíkinga. Rakin er saga stang-
veiðinnar í ánum, og þá laxaræktarinnar
undir merkri forustu Steingríms Jónsson-
ar rafmagnsstjóra. Þarna er einnig að fmna
viðtöl við nokkra gamla „Elliðaármenn“,
sem nú eru látnir, um stangveiðina um og
upp úr aldamótunum síðustu. Þessum
fyrri hluta bókarinnar lýkur með athyglis-
verðum kafla um framtíð Elliðaánna.
Síðari hluti bókarinnar, sem er lýsing á
veiðistöðum árinnar, verður nokkuð ein-
hæfur lestur, þegar fram í sækir, enda
erfitt að lýsa, svo að skemmtilegt geti orðið
aflestrar, hverjum veiðistaðnum á fætur
öðrum, ekki sízt í á eins og Elliðaánum, þar
sem fátt stórbrotið er að fínna. Hér hefðu
veiðisögur og annar fróðleikur í bland mátt
lífga upp á frásögnina. Þetta er aftur á móti
bætt upp með fjölda ágætra litmynda af
veiðistöðum.
Vafalaust geta þeir, sem halda til veiða í
Elliðaánum og eru þar ekki öllum hnútum
kunnugir, haft gagn af því, sem hér er sagt
um hvern einstakan veiðistað. En bókin á
vissulega erindi til fleiri en þeirra, sem
veiða í Elliðaánum, því að í henni er marg-
víslegan fróðleik að finna, auk þess sem
myndirnar standa fyrir sínu.
Bókin er 204 bls., með um 110 ljós-
myndum, bæði gömlum, sögulegum
myndum og um 80 litmyndum, sem flestar
eru teknar sérstaklega fyrir þessa útgáfu
af Gunnari Vigfússyni, Rafni Hafnfjörð og
Birni Rúríkssyni. Þá er í bókinni loftmynd
í litum af Elliðaánum og nágrenni, þar sem
færð hafa verið inn nöfn allra veiðistaða og
örnefni í umhverfi ánna.
Uppsetning og útlit, prófarkalestur og
frágangur allur er til fyrirmyndar.
Það er Isafold, sem gefur út þessa eigu-
legu bók.
M.Ó.
28
VEIÐIMAÐURINN