Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Page 44
grundvöllur líísins. Prótínin eru úr löng-
um keðjum amínósýra. 20 mismunandi
amínósýrur eru þekktar sem bygginga-
steinar prótína.
Það er röð amínósýranna sem ræður
mestu um séreinkenni prótínsins. Ein-
kennin ráða svo starfsemi eða hlutverki
prótínsins, þ.e.a.s. hvernig þau virka.
Að baki hvers prótíns standa erfðaefni
sem stjórna framleiðslu á viðkomandi pró-
tíni.
Hjá hinum ýmsu tegundum hryggdýra
má fínna u.þ.b. 100000 mismunandi pró-
tín, og að því best er vitað hefur hver
tegund sérstakt „sett“ prótína.
Genin og þar með hvert einstakt prótín
eru í pörum, annar hlutinn kemur frá móð-
ur (egginu), hinn frá föður (sáðfrumunni).
Yfirgripsmiklar rannsóknir á prótíni hafa
leitt í ljós, að i fiskum eru u.þ.b. 9% hinna
100000 gena sem framleiða fleiri en eina
gerð prótíns. Þessi erfðabreytileiki, sem
við finnum t.d. hjá laxi, á sér rætur í 9000
genum. Við höfum þannig breytileika í
samsvarandi fjölda prótína. Fræðilega gef-
ur þetta möguleika á 2 í veldinu 9000 eigin-
leika, - óskiljanlega hárri tölu.
Hvaða tilgang hefur svo afgangurinn,
yfir 90% af genunum? Jú, það eru þau sem
búa til prótínin sem skilja laxinn frá öðrum
hryggdýrum, plöntum o.s.frv.
3. Genatíðni
Fyrir hvert það gen sem sýnir breyti-
leika, má gera ráð fyrir eftirfarandi:
Báðir hlutarnir í genaparinu mynda ná-
kvæmlega sams konar prótín.
Það getur verið besta hugsanlega gerð af
viðkomandi prótíni, gerðin A. Þá erum við
með arfgerðina AA. Einnig getur verið til
örlítið önnur gerð af þessu prótíni sem er
ekki eins heppileg, - gerðin a. Hún gæti
t.d. hafa orðið til við svokallaða stökk-
breytingu. Við fáum þá arfgerðina Aa.
Hlutfall annars af tveimur svona genum
nefnum við genatíðni. Með því að gena-
tíðnin breytist smám saman, veldur fín-
þróunin því að lífveran aðlagast hinum sér-
stöku umhverfisþáttum.
Fræðilega þekkjast fjórar aðferðir til
þess að breyta genatíðninni. Náttúran not-
ar allar þessar aðferðir í viðleitni sinni við
að aðlaga lífverurnar að staðháttum.
Þessar fjórar aðferðir eru:
a. Tilviljanakennd breyting á genatíðninni
Fæst í næstu sportvöruverslun
Léttir og sterkir
River Systems vöðluskór og vöðlusokkar.
Hlýir og liprir.
Umboðsmenn I. Guðmundsson & CO hf.
Símar: 24020/11999.
40
VEIÐIMAÐURINN