Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Blaðsíða 48
Þetta þýðir að eldisfiskurinn leggur til
7% „ónákvæmni í ratvísi“ hjá staðbundnu
stofnunum.
Þar sem hér er um að ræða fisk með
miklum frávikum í genatíðni, mun svo
stórt blöndunarhlutfall breyta genatíðn-
inni hjá viðkomandi laxastofni tiltölulega
hratt.
I þessu sambandi þarf vart að ræða það
hvað gerist ef blöndunin er meiri en við
áætluðum, eða hvernig hlutirnir verða eft-
ir 10 ár með þeirri aukningu sem nú á sér
stað í laxeldinu.
Það má spyrja hvort „ókunni“ fískurinn
taki jafn mikinn þátt í hrygningunni og
heimastofninn. Það er erfitt að svara þessu
svo vit sé í. En jafnvel þó að svo vel væri að
ókunni fiskurinn taki þátt í hrygningunni
aðeins að hluta til, þá er ýmislegt sem
bendir til þess að aðrir þættir geri hann
ennþá skaðlegri en fjöldinn einn gefur til
kynna.
Tilgangur náttúrunnar með ónákvæmni
í ratvísi er að koma í veg fyrir úrkynjun,
en hann er einnig sá að auka erfðabreyti-
leikann. Það er þekkt bæði hjá plöntum og
dýrum að svona víxlblöndun veldur s.k.
blendingsþrótti hjá afkvæmunum. Þetta
gildir sérstaklega um eiginleika sem hafa
lágt arfgengi, og á einkum við um frjósemi
og lífslíkur. Líklegt er því að stofnblönd-
un leiði til fleiri afkvæma (seiða), sem lifa
lengur, - m.ö.o. hafí meiri áhrif en fjöldi
hrygningarfiska einn út af fyrir sig gæti
gefíð til kynna.
Ágiskun okkar, sem að vísu byggir á
miklum getgátum vægast sagt, varar okkur
við því sem er að gerast í laxveiðiánum. Því
er ekki úr vegi að benda á aðgerðir til úr-
bóta, en fyrst skulum við minnast aðeins á
aðra hluti sem hafa áhrif á erfðafræðiþætti
staðbundinna laxastofna.
B. Annað sem getur breytt
erfðafrœðilegri sérstöðu ein-
stakra laxastofna
Vatnsorkuverin hafa fengið á sig kvöð
vegna tjóns sem þau hafa valdið fískstofn-
um ánna. Hún er oft sú, að setja í árnar
ákveðið magn seiða. Þannig hafa Ríkis-
orkuverin verið skylduð til þess að sleppa
alls rúmlega 300000 gönguseiðum á ári
undanfarið.
51I517KR
Silstar veiöihjól í þínum höndum.
Fæst í næstu sportvöruverslun
c°
Einkaumboð
þ |. Guðmundsson & co hf.
Símar: 24020/11999.
44
VEIÐIMAÐURINN