Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Blaðsíða 51
Aðalfundur
SVFR
Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur
var haldinn í Víkingasalnum á Hótel Loft-
leiðum sunnudaginn 30. nóvember. Olafur
G. Karlsson, formaður félagsins, setti
fundinn og minntist látinna félagsmanna.
Fundarstjóri var Magnús Olafsson, en
fundarritarar Rósar Eggertsson og Olafur
Ólafsson. Framkvæmdastjóri félagsins,
Friðrik D. Stefánsson, flutti skýrslu um
starfsemina á liðnu starfsári og las reikn-
inga félagsins, sem voru samþykktir. I
skýrslu framkvæmdastjóra kom þetta m.a.
fram:
Stjórn og fulltrúaráð: A síðasta aðal-
fundi félagsins var Ólafur G. Karlsson
endurkjörinn formaður. Til tveggja ára
setu í stjórn voru kjörnir Halldór Þórðar-
son, gjaldkeri, Rósar Eggertsson og Ólafur
Ólafsson. Auk þeirra sitja nú í stjórn Jón
G. Baldvinsson, varaformaður, Karl Guð-
mundsson, ritari, og Ólafur H. Ólafsson.
Fulltrúaráðið er nú skipað eftirtöldum
félagsmönnum: Karl Ómar Jónsson, for-
maður, Magnús Ólafsson, Barði Friðriks-
son, Axel Aspelund og Gunnar Bjarnason,
allt fyrrverandi formenn félagsins, Edvard
Ólafsson, Garðar Þórhallsson, Guðmund-
ur Bang, Guðmundur J. Kristjánsson,
Guðni Þ. Guðmundsson, Gunnar Peter-
sen, Jón Kr. Sveinsson, Runólfur Heydal,
Víglundur Möller og Þorsteinn Þorsteins-
son.
Framkvæmdastjórn og skrifstofa:
Framkvæmdastjóri félagsins er Friðrik D.
Stefánsson og skrifstofumaður Hanna
Marta Vigfúsdóttir.
Félagsmenn: I upphafi starfsárs voru
félagsmenn 1929. Á árinu gengu 72 í félag-
ið, 10 félagsmenn létust á árinu og 58 voru
felldir út af félagaskrá vegna vangoldinna
gjalda eða sögðu sig úr félaginu. Eru því
félagsmenn nú 1933, en þar af eru 260 und-
anþegnir fullri gjaldskyldu vegna aldnrs.
Fjármál: Bókfærður hagnaður árið
1986 nemur kr. 424.436,- eftir afskriftir að
upphæð kr. 401.600,- og reiknuð verð-
breytingagjöld, sem námu kr. 1.199.778,-.
Árið á undan var afkoman neikvæð um
kr. 2.860.729,-. Velta félagsins var kr.
43.683.567,-, en nam kr. 34.144.075,- árið
á undan. Eigið fé er nú kr. 23.977.513,- en
var árið 1985 kr. 19.559.508,-. Hefur það
því aukist um 22,6 af hundraði milli ára.
Engin veðbönd eru á eignum félagsins.
Félagsstarfsemi og útgáfa Veiði-
mannsins: Árshátíð félagsins var að venju
haldin að Hótel Sögu, Súlnasal. Fór hún
fram föstudaginn 7. febrúar 1986 í 42.
skipti. Var salurinn þéttsetinn gestum og
þótti skemmtunin takast afbragðsvel. í
skemmtinefnd störfuðu Ólafur H. Ólafs-
son, formaður, Jimmy Sjöland, Jónas Jón-
asson og Jón Páll Sigurjónsson. Skemmti-
nefnd stóð fyrir fjórum opnum húsum í
félagsheimilinu. Þar voru flutt erindi um
VEIÐIMAÐURINN
47