Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Side 52
stangaveiðimál, kvikmyndir sýndar o.s.
frv. Þátttaka var yfirleitt mjög góð. Þá var
efnt til nokkurra fluguhnýtingakvölda eða
rabbfunda. Þar var hins vegar þátttaka
dræm. A árinu komu út þrjú tölublöð
Veiðimannsins. Ritstjórar eru sem fyrr
Magnús Olafsson og Víglundur Möller.
Félagsheimilið: Leigusamningur við
SS um afnot salarins rann út á miðju síð-
asta ári. Síðan hefur salurinn ekki gefið fé-
laginu neinar umtalsverðar tekjur. Salur-
inn er fallegur, en viðkvæmur, og kannski
er ekki eftir svo miklu að slægjast að leigja
hann út, einmitt þess vegna, og þá alls ekki
nema með öruggri gæslu og eftirliti.
A undanförnum árum hefur félagið
eignast nokkrar veiðistangir, sem hefur
verið komið fyrir í salnum. Má líta á þessa
muni sem eins konar vísi að Stangaveiði-
safni.
Kennslu- og kastnefnd: Starfsemin
hófst í októbermánuði og stóð til loka apríl
1986. Auk kastkennslunnar var sýni-
kennsla í fluguhnýtingum við lok hvers
námskeiðs. Var aðsóknin góð. I lokin voru
fengnir nokkrir framleiðendur og inn-
flytjendur veiðitækja að sýna og kynna vör-
ur sínar. Samstarfsaðilar nefndarinnar
voru Kastklúbbur Reykjavíkur og Stang-
veiðifélag Hafnarfjarðar. Utiæfingar voru
iðkaðar í maímánuði. I sama mánuði, 25.
maí, var haldið kastmót SVFR. Þátttaka
var sæmileg og náðist góður árangur.
Nefndin er skipuð eftirtöldum mönnum:
Astvaldur Jónsson, formaður, Analíus
Hagvaag, Gísli J. Helgason, Gísli R. Guð-
mundsson, Ingi Arnason, Þorsteinn Þor-
steinsson og Þórarinn Olafsson.
Klak og eldi: Klak- og fiskræktarnefnd
félagsins var skipuð þeim Runólfi Heydal,
formanni, Guðmundi Bang, forstöðu-
manni eldisstöðvar SVFR að Skógarnesi,
Finnbirni Hjartarsyni, Friðberti Páls-
syni, Hilmari Sigurðssyni og Runólfl Run-
ólfssyni. Nutu nefndarmenn aðstoðar
Guðna Olafssonar, Hrafns Jóhannssonar
og fleiri mætra manna. I skýrslu klak-
nefndar kemur fram, að vatnsleysi hafi
valdið nokkrum vandræðum í vetur leið.
Þegar síðan tók að rigna og vatnið átti að
skila sér úr vatnsbólinu, hafí komið í ljós
missig á lögninni, þannig að nauðsynlegt
reyndist að grafa hana upp til viðgerðar.
Síðan hefur leiðslan staðið ber, því að
Veiðikassar
og stangahólkar
Léttir, sterkir og duga vel
Fæst í næstu sportvöruverslun
Umboösmenn
I. Guðmundsson & Co. hf.
Símar: 24020/11999
48
VEIÐIMAÐURINN