Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Side 57
Eftir það var mjög tregt sökum vatnsleys-
is, en veiðin skánaði heldur er kom fram í
september og rigningar juku vatnsmagn í
ánum. Sumarið 1986 var mun skárri lax-
veiði en árið á undan. Alls veiddust 102
laxar og 164 bleikjur. Arið 1985 veiddust
hins vegar aðeins 46 laxar, en 254 bleikjur.
Sex fiskar voru 10 pund og þar yfir, en
tveir stærstu fiskarnir voru 17 punda.
Meðalþyngd laxins var 5,8 pund. Bleikjan
var oft mjög falleg, oftast 1,5 til 2 pund og
einstaka upp í 3 pund. Gjöfulustu veiði-
staðirnir voru Strengir (Símastrengur)
með 25 laxa og Hamarshylur með 19 laxa.
Veiðikort með gömlum nöfnum veiði-
staða, sem Hjörtur Einarsson, bóndi, hafði
safnað saman, var gefið út af SVFR.
Svartá: Arnefnd skipuðu Grettir
Gunnlaugsson, formaður, og Karl Björns-
son. Þar sem fyrir lá að reyna að auka sölu
veiðileyfa á silungasvæði Svartár, var farið
norður í Svartárdal í maí til að afla upplýs-
inga til kortagerðar af efri hluta Svartár og
Fossá. Til liðs við nefndarmenn var feng-
inn Þorleifur Jóhannesson bóndi í
Hvammi, en hann hefur mikinn áhuga á
þessu vatnasvæði öllu og er þar manna
kunnugastur. Fyrir veiðitíma var svo til-
búið ljósritað kort af silungasvæðinu, svo
að nú er allt veiðisvæði Svartár kortlagt.
Ekki hafði nefndin nein afskipti af niður-
setningu gildrunnar í ánni, en hún var í ár
á sama stað og 1985. Kassarnir voru tveir
eins og í fyrra, en nú brá svo við, að nær all-
ur fiskur gekk í vestara hólfið. í flestu er
farvegur árinnar óbreyttur frá fyrra ári,
nema milli Hólahorns og Svartárbrúar, þar
sem Vegagerðin breytti farveginum, lík-
lega til að fá strauminn þvert undir brúna.
Er þar allmikið rask og malarhaugar.
Eins og í fyrra var Svartárlaxinn í
smærra lagi, meðalþyngd nú 7,14 pund.
Meðalþyngdin 1985 var 6,24 pund, en
10,14 pund 1984. Þrátt fyrir slaka meðal-
þyngd veiddist í sumar stærsti fiskur, sem
fengist hefur úr Svartá í mörg ár, og reynd-
ist sá vega 22 pund. Það var Axel Magnús-
son frá Neskaupstað, sem þennan stór-
fisk dró. Framan af sumri gekk fiskur
mjög tregt úr Blöndu í Svartá, og sem hin
síðari ár var mikið um særðan fisk. Veiðin
jókst nú úr 330 löxum í fyrra í 388 laxa í
ár. Auk þess veiddust tveir laxar uppi á
silungasvæðinu, sem eru ánægjuleg tíðindi
og sannar það, sem ýmsir hafa haldið fram,
að eitthvað af laxinum gengur langt fram
ána. Það vekur athygli, hve mikið veiðist
rétt neðan .við gildruna, og komu nú 17
fiskar úr Hólahorninu. Þarf tæplega að
draga í efa, að gildran stöðvar eða tefur
göngu laxins.
I ár var haldin veiðibók fyrir silunga-
svæðið. Þar veiddust tveir laxar, 12 urriðar
og 132 bleikjur. Fengsælastir urðu þeir,
sem lögðu leið sína inn með Fossá, en lax-
arnir veiddust báðir í Hallarhyljum,
skammt framan við Hvamm.
Sjá veiðiskýrslu hér í blaðinu.
Blanda: Eins og á fyrra ári hafði SVFR
á leigu þriðja hvern dag á tímabilinu frá 5.
júní til 4. september. Stangveiðifélag
Austur-Húnvetninga og Stangveiðifélag
Sauðárkróks höfðu hvort um sig hina
þriðjungana. í Blöndu veiddist mjög vel í
sumar og komu 1816 laxar á land.
Breiðdalsá: Vatnasvæði Breiðdals gaf
158 laxa í sumar og hefur ekki veiðst þar
jafnmikið í allmörg ár, eða síðan 1980.
Eitt ár er eftir af leigu- og ræktunarsamn-
ingi og hefur SVFR fullan hug á endur-
nýjun samnings við veiðiréttareigendur,
sem ætíð hefur verið gott að skipta við.
Snæfoksstaðir í Hvítá: Eins og árið
á undan höfðu SVFR og Stangveiðifélag
Selfoss samvinnu um leigutöku veiðinnar
á þessu svæði. Þarna veiddist ágætlega.
VEIÐIMAÐURINN
53