Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Page 58
Laugarbakkar x Hvítá: Veiðin að
Laugarbökkum er ekki mikil. Verð veiði-
leyfa er hins vegar í fullu samræmi við það,
enda seldust öll leyfi greiðlega.
Sogið: Formaður árnefndar er Ólafur
K. Ólafsson og með honum í nefndinni
þeir Gísli Guðmundsson, Magnús Tómas-
son og Þröstur Amórsson. Farið var austur
að Sogi hinn 16. júní með efni í nýja ver-
önd við húsið að Bíldsfelli. Var henni sleg-
ið saman þá þegar og hún síðan fúavarin og
lituð. Húsið er orðið nokkuð gamalt og
farið að láta á sjá, en ástandið er nú orðið
nokkuð gott miðað við aðstæður. Þegar far-
ið var að huga að Asgarðshúsi, kom í ljós,
að vatnstankur var orðinn hriplekur og
varð ljóst, að tæring hafði myndast í botni
hans. Var fengið trefjaplast og steypt í
botninn. Síðla sumars kom rafmagn í hús-
ið og er það til stórra bóta. Nú er þarna
bjart og hlýtt. Um húsið sjálft er það að
segja, að það hefur sigið, enda orðið nokk-
uð gamalt. Heldur reykháfurinn því uppi
í miðjunni og hefur það því skekkst. I Al-
viðruhúsinu má margt gera til bóta. Þar er
t.d. engin snyrtiaðstaða nema úti í náttúr-
unni. Vatn rennur við húsdyrnar, svo að
ekki er langt að sækja það. Hjólhúsinu var
komið fyrir að Syðribrú. Er það ágætis
íverustaður.
Sjá skýrslu hér í blaðinu um veiðina í
Sogi.
Stóra-Laxá: Hrunakrókur, Hólma-
hylur, Arfellsrennur, Dagmálahylur, Iðan,
Kálfhagahylur og Bergsnös, Skarðsstreng-
ir og Kvíslamót. Allt eru þetta nöfn á veiði-
stöðum, sem ómuðu fyrir eyrum á skrif-
stofu félagsins hér áður, aðeins fyrir örfá-
um árum. Þá seldust upp öll veiðileyfí á
neðri veiðisvæðum árinnar og svo til öll
uppi í gljúfrum. Aðeins örfá september-
leyfí lágu eftir í veiðileyfabakkanum í lok
veiðitímans. Svo kom stóra sprengjan.
Verðið hækkaði skyndilega og of mikið og
veiðin brást. Menn gleymdu ánni sinni.
Þetta á allt eftir að breytast, ef ekki næsta
sumar, þá þar næsta, því verðinu er ætlað
að lækka. Þá fara menn aftur að tala um
Hrunakrók, Hólmahyl, Kálfhagahyl og
Bergsnös.
Sjá veiðiskýrslu hér í blaðinu.
Er framkvæmdastjóri hafði flutt skýrslu
sína, tók formaður til máls og greindi frá
Veidihnífar
Merki um góðan útbúnað
Fæst í næstu
sportvöruverslun
Umboösmenn
I. Guðmundsson & Co. hf.
Símar: 24020/11999
Norimark
54
VEIÐIMAÐURINN