Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Qupperneq 61
Veiðipósturinn
Árni Steinsson á Akureyri sendi Veiði-
manninum eftirfarandi línur og myndirn-
ar, sem hér fylgja með:
„Við veiðifélagarnir höfum oft rætt
okkar á milli að senda Veiðimanninum
eitthvert efni, en aldrei orðið úr. Þegar ég
skoðaði myndir frá liðnu sumri, lét ég
verða af því að senda þessar línur.
Fyrri myndin er tekin fyrir utan Vöku-
holt við Laxá í Þing. og sýnir fallega
veiði, sem aldna kempan Kristján P. Guð-
mundsson fékk s.l. sumar. Kristján fékk
4. júlí fimm stórlaxa, frá 14 til 22 pund,
alla á flugu.
Þrjá af þessum löxum, 22, 20 og 19
pund, sjáum við á myndinni. 22 punda
fiskurinn fékkst á Oseyri á Laxá blá, 20
pundarinn fékkst við Hrúthólma á Fox fly
og 19 punda laxinn tók Laxá blá á Oseyr-
inni. Allar voru flugurnar nr. 6.
Seinni myndin er tekin við Brúarhyl í
Laxá í Þing. Hvað eru mennirnir að gera?
Þessi fallegi 19 punda lax gleypti bók-
staflega „járnið“, svo að veiðifélagarnir,
Þórður Hinriksson og Halldór Gestsson,
þurftu að beita allri lagni til að losa fisk-
inn, sem var nýrunninn og fallegur.
Kristján P. Guðmundsson tneð
22, 20 og 19 punda laxa, veidda á
Óseyri og við Hrúthólma í Laxá í
Þing.
57