Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Síða 65
Þrír 22 p hængar
kepptu um verðlaun
Verðlaun fyrir stærstu laxana, sem veidd-
ust á vatnasvæðum SVFR sumarið 1986,
voru afhent á árshátíð félagsins 6. febrúar
s.l.
Sigurveig Stefánsdóttir veiddi stærri
lax en nokkur önnur kona og hlaut fyrir
það Sportstyttuna. Laxinn hennarvar 14 p
hængur og veiddi hún hann á maðk í Krók-
eyrarhyl í Svartá 22. ágúst.
Stærstu flugulaxarnir í Norðurá voru
þrír 15 pundarar og með hlutkesti hlaut
Ingibergur Ingibergsson Norðurárílugu-
bikarinn. Hrygnan hans tók rauða túpu-
flugu í Munaðarnesveiðum 18. júní, en
hængur Arnar Bjartmars Péturssonar tók
Black Sheep nr. 6 á Brotinu 20. júní, og
hængur Péturs Georgssonar tók Frances
nr. 10 í Munaðarnesveiðunum 8. júlí.
Haraldur Guðjónsson fékk Utilífs-
bikarinn fyrir stærsta flugulaxinn í Elliða-
ánum, 15 p hæng á Dentist straumflugu
nr. 8 á Hrauninu 18. ágúst.
Vesturrastarstyttan er veitt fyrir stærsta
laxinn, sem veiðist á hvaða leyfilegt agn
sem er á veiðisvæðum SVFR. Þar komu
þrír félagsmenn til greina, sem allir höfðu
veitt 22 p lax s.l. sumar. Við hlutkesti kom
upp nafn Axels Magnússonar, sem þann 6.
september veiddi 22 p hæng á maðk í Hlíð-
arkvörn í Svartá. Hinir veiðimennirnir
voru Hrafnkell Kjartansson, sem fékk 22 p
hæng á Klöppinni á veiðisvæði Alviðru í
Sogi 13. ágúst á Þingeying nr. 10, og Jens
P. Clausen, sem fékk 22 p hæng 10. sept-
ember í Kofastreng fyrir landi Bíldsfells í
Sogi á Labrador Black nr. 6.
Sportvalsbikarinn hlýtur sá, sem veiðir
stærstan lax á flugu. Þar komu til greina
þeir Hrafnkell Kjartansson og Jens P.
Clausen fyrir flugulaxana, sem sagt er frá
hér að ofan. Þegar varpað var hlutkesti,
kom upp nafn Hrafnkels.
Þá var komið að Gull og Silfur flugunni,
sem einnig er veitt fyrir stærsta flugulax-
inn. Sigurður Steinþórsson gerði grein
fyrir þessum verðlaunagrip, sem vinnst til
eignar og er sérsmíðaður hverju sinni úr
gulli og hvítagulli, og með demanti, ef um
30 p lax eða stærri verður að ræða, sem
enn hefur ekki komið til. Þessi fagri gripur
er gefinn í minningu Steinþórs Sæmunds-
sonar gullsmíðameistara. Gull og Silfur
fluguna hlaut Hrafnkell Kjartansson fyrir
laxinn, sem að ofan er getið, en hans nafn
kom upp, þegar varpað var hlutkesti milli
þeirra Jens P. Clausen.
Auk þessa fengu allir, sem til greina
komu, verðlaunapening.
Frá verðlaunafhendingunni,
f.v. Rósar Eggertsson form.
bikarnefndar, Hrafnkell
Kjartansson, Axel Magnús-
son, Örn Bjartmars Péturs-
son, Pétur Georgsson, Ingi-
bergur Ingibergsson og
Ólafur H. Ólafsson form.
skemmtinefndar. s-ljósmyndir.
VEIÐIMAÐURINN
61