Læknablaðið - 01.07.2022, Síða 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 323
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Magnús Haraldsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
2000
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Íslandspóstur
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
„Það er alveg ljóst að það verða að verða breytingar,“ segir Anna Björg Jónsdóttir
öldrunarlæknir sem heldur á einni allra heitustu kartöflu heilbrigðismála. Hún hefur verið
ráðin yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þurfum endurhæfingarúrræði,
ekki fleiri hjúkrunarrými
„Ég veit að það er ekki pólitískt vinsælt að segja
það, en við þurfum ekki endilega fleiri hjúkr-
unarrými,“ segir Anna Björg og bendir á að hér
á landi séu langflest hjúkrunarrými hlutfallslega
miðað við hin Norðurlöndin.
„Við þurfum annars konar úrræði. Við þurf-
um endurhæfingarúrræði, bæði endurhæfingu
fyrir inniliggjandi og endurhæfingu sem fólk
getur nýtt sér í dagþjónustu,“ segir hún. „Mér
reiknast til að það vanti um 1000 dagþjálfunar-
pláss á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hún og
bendir á að þau séu nú um 500, þar af 270 fyrir
einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm.
Anna Björg hefur störf sem yfirlæknir í ágúst.
Þar hyggst hún ráðast í endurskipulagningu.
„Við þurfum að endurskoða hvað heyrir undir
sérgreinina öldrunarlækningar. Öldrunarlæknar
eru takmörkuð auðlind og því þurfum við að
skoða verkaskiptinguna,“ segir hún og útskýrir
hvernig taka þurfi verk af þeim sem aðrar stéttir
geti sinnt svo þeir hafi ráðrúm til að sinna sínu
sérhæfða starfi.
„Þetta er svipað og þú getur ekki leyft þér að
láta markmanninn vera í sókn og spila án mark-
manns, jafnvel þó markmaðurinn kunni sóknar-
leikinn,“ segir hún. Nýta þurfi sérþekkinguna
rétt. „Það er ekki svo nú,“ segir hún.
„Dæmi um þetta er uppvinnsla og greining
á vitrænni skerðingu og greining á almennri
færniskerðingu. Hún er innan okkar vébanda og
læknarnir verða að hafa tíma til að sinna því,“
segir hún og að einnig sé mikilvægt að fá til
starfa aðrar fagstéttir sem hafi sérhæft sig innan
öldrunarlækninga.
„Við brennum líka fyrir bæklunarlækningum
aldraðra og það er eiginlega til skammar að við
höfum ekki komið þeirri þjónustu af stað innan
Landspítala,“ segir hún. Þá eigi öldrunarlækn-
ar að styðja kollega við mat á meðferðum sem
eldra fólk fái: krabbameinsmeðferð, fyrir skurð-
aðgerðir, samstarf þvert á fagstéttir.
„En almenn endurhæfing þarf ekki nauðsyn-
lega að vera í verkahring öldrunarlækna,“ segir
hún. „Það er þörf fyrir hverja einustu hönd, og
fleiri til, en við verðum að skipuleggja starfið
þannig að hver og einn geri það sem hann er
sérhæfður í.“
Hún bendir á að bæði forstjóri spítalans og
heilbrigðisráðherra hafi talað fyrir breytingum
og hún sé því fullviss um að fá stuðning þeirra.
„Við getum ekki notað hamarinn sem var bú-
inn til fyrir 30 árum. Hann virkar ekki lengur.“
Vinna þurfi í takti við samfélagið eins og það
er nú.
„Ég tel að við séum komin á þann punkt
núna að ef við gerum ekki breytingar muni stór
hluti af kerfinu okkar hrynja,“ segir hún. „Við
erum komin í öngstræti.“
Anna Björg er full tilhlökkunar að takast á
við verkefnið. „Ég ætla að sinna því eins vel og
ég get. Ég hoppa út í laugina með bæði augun
opin. Ég þekki til, hef unnið á Landspítala,
þekki kerfið.“ Hún hefur starfað síðasta árið
sem yfirlæknir öldrunarþjónustu á Heilsuvernd
í Urðarhvarfi þar sem Læknablaðið hittir hana á
sólríkum júnídegi.
En hvernig er að vera í sérgrein þar sem
þörfin er svona mikil og úrræðin fá? „Ég þekki
ekkert annað. Þetta er raunveruleiki okkar öldr-
unarlækna.“
Hvernig er að vera í sérgrein þar sem
þörfin er mikil og úrræðin fá?
„Þetta er raunveruleiki okkar
öldrunarlækna,“ segir Anna Björg.
Mynd/gag