Læknablaðið - 01.07.2022, Síða 12
332 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
ábendingar kransæðaþræðinga voru sjúklingar með NSTEMI
(non-ST-elevation myocardial infarction) sameinaðir sjúklingum með
óstöðuga hjartaöng. Ástæðan er sú að NSTEMI-flokkurinn í gagna-
grunninum var búinn til árið 2013 og flokkun þessara sjúklinga
því ekki sambærileg öll ár rannsóknartímabilsins.
Upplýsingar um dánardaga sjúklinga voru fengnar frá Hag-
stofu Íslands og miðaðist eftirlit við 29. apríl 2021. Miðgildi eftir-
fylgnitíma var 4,7 ár (fjórðungsbil 2,6-7,6) hjá víkkunarhópi en 6,5
ár (fjórðungsbil 3,9-8,9) hjá hjáveituhópi.
Tölfræði var unnin í forritinu R, útgáfu 4.0.4 (R Foundation for
Statistical Computing, 2021). Tölfræðileg marktækni miðaðist við
p-gildi <0,05. Talnabreytur voru sýndar sem meðaltöl með staðal-
fráviki eða miðgildi með fjórðungsbili, en flokkabreytur sem fjöldi
með tiltekið gildi ásamt hlutfalli í prósentum. Tengsl meðferðar-
kosta við aðrar breytur voru metin með tilgátuprófum: einhliða
fervikagreiningar (one-way analysis of variance, ANOVA) hjá talna-
breytum, kí-kvaðrat próf hjá flokkabreytum og Bartletts próf til að
kanna mun á aldursdreifingu sjúklinga með tilliti til meðferðar.
Heildarlifun var reiknuð með aðferð Kaplan-Meier og lifunarkúrv-
ur hópa bornar saman með log-rank-prófi. Gerð var Cox-aðhvarfs-
greining þar sem leiðrétt var fyrir breytum sem voru marktækt
breytilegar á milli víkkunar- og hjáveituhóps: aldur, hjarta-
bilunarlost, fyrri saga um hjáveituaðgerð, frábending fyrir hjáveitu-
aðgerð og dreifing sjúkdóms. Breyturnar sem voru notaðar upp-
fylltu skilyrði um hlutfallslega áhættu.
Niðurstöður
Á árunum 2010-2020 voru alls gerðar 18.649 kransæðamyndatökur
með þræðingu. Rannsóknarþýðið samanstóð af 1485 sjúklingum
með sykursýki en kransæðamyndatökurnar voru hins vegar 1905
talsins þar sem hluti sjúklinga fór oftar en einu sinni í kransæða-
myndatöku á rannsóknartímabilinu (mynd 1). Hlutfall sjúklinga
með insúlínháða sykursýki var 30,0% en sú sundurliðun var þó
Tafla 1. Samanburður bakgrunnsþátta og sjúkdómsástands milli meðferðarhópa.
PCI
(n=1230)
CABG
(n=274)
Lyfjameðferð
(n=401)
p-gildi
Aldur (ár) 66,4 ± 10,7 67,6 ± 9,7 68,4 ± 9,3 <0,001
Kvenkyn 291 (23,7) 54 (19,7) 70 (17,5) 0,022
Líkamsþyngdarstuðull (kg/m2) 30,8 ± 5,6 30,6 ± 5,1 31,4 ± 14,1 0,318
Reykingara 0,028
Reykir 227 (18,5) 47 (17,2) 53 (13,2)
Áður reykt 687 (55,9) 149 (54,4) 260 (64,8)
Insúlínb 362 (29,4) 71 (25,9) 139 (34,7) 0,047
Meðhöndlaður háþrýstingurc 1026 (83,4) 232 (84,7) 354 (88,3) 0,127
Blóðfitulækkandi lyfd 936 (76,1) 213 (77,7) 353 (88,0) <0,001
Skert nýrnastarfsemie 250 (22,2) 56 (21,1) 99 (25,4) 0,348
Hjartabilunarlostf 44 (4,3) 3 (1,3) 5 (1,7) <0,001
Saga um hjartadrepg 292 (23,7) 49 (17,9) 137 (34,2) <0,001
Saga um PCIh 357 (29,0) 51 (18,6) 154 (38,4) <0,001
Saga um CABG 180 (14,6) 6 (2,2) 148 (36,9) <0,001
Annars konar frábending fyrir CABGi 56 (4,6) 0 (0,0) 6 (1,5) <0,001
Ábending fyrir kransæðamyndatöku <0,001
STEMI 192 (15,6) 5 (1,8) 5 (1,2)
NSTEMI/óstöðug hjartaöng 606 (49,3) 130 (47,4) 155 (38,7)
Stöðug hjartaöng 373 (30,3) 93 (33,9) 175 (43,6)
Lokusjúkdómar 10 (0,8) 28 (10,2) 5 (1,2)
Annað 49 (4,0) 18 (6,6) 61 (15,2)
Gildi eru gefin upp sem meðaltöl ± staðalfrávik eða fjöldi (%).
PCI=percutaneous coronary intervention. CABG=coronary artery bypass grafting. STEMI=ST-myocardial infarction. NSTEMI=non-ST-myocardial infarction.
aUpplýsingar um reykingar vantaði hjá 33 sjúklingum, binsúlín hjá 25 sjúklingum, cmeðhöndlaðan háþrýsting hjá 14 sjúklingum og
dblóðfitulækkandi lyf hjá 25 sjúklingum. eGaukulsíunarhraði var reiknaður með Cockcroft-Gault-jöfnunni en gaukulsíunarhraði sem var <60
mL/mín var skilgreindur sem skert nýrnastarfsemi.13 fHjartabilunarlost var skilgreint sem flokkur 4 í Killip-flokkunarkerfi og upplýsingar
um það vantaði hjá 21 sjúklingum. gUpplýsingar um sögu um hjartadrep vantaði hjá 159 sjúklingum, hsögu um PCI hjá tveimur sjúklingum
og iannars konar frábendingu fyrir CABG hjá 84 sjúklingum.
P-gildi voru reiknuð með einhliða fervikagreiningu (analysis of variance, ANOVA) hjá talnabreytum en kí-kvaðrat prófi (chi-squared test) hjá
flokkabreytum. P-gildið sýnir þó einungis hvort munur sé á milli einhverra af meðferðarhópnum þremur.