Læknablaðið - 01.07.2022, Blaðsíða 24
344 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
að þessum þætti sé sleppt í daglegri umönnun15 af ýmsum orsök-
um, svo sem tímaskorti.
Sjúkratryggingar Íslands taka fullan þátt í niðurgreiðslu vegna
tannlækninga aldraðra og er þjónustan íbúum á hjúkrunarheimil-
um að kostnaðarlausu29 samkvæmt gildandi gjaldskrá ríkisins. Því
ættu þjónustugjöld tannlækna ekki að íþyngja íbúum, aðstand-
endum eða hjúkrunarheimilinu. 24
Æskilegt er að sett verði stefna um munnheilsuvernd í heil-
brigðisþjónustu íbúa og aðgengi þeirra að tannlæknisþjónustu
verði tryggt. Munnhirða þarf að vera regluleg og við hæfi og þjálf-
un og þekking starfsfólks tryggð í samræmi við gæðastaðla í heil-
brigðisþjónustu.30
Niðurstöður rannsóknarinnar eru gagnlegar og birta fyrstu
upplýsingar um munnheilsu íbúa á hjúkrunarheimilum og áhrif
munnkvilla á lífsgæði þeirra. Einnig kom í ljós að fjöldi skemmdra,
fylltra og tapaðra tanna, tannleysi og tanngervi skipta máli í þessu
sambandi. Mælt er með frekari rannsóknum á munnheilsuvernd
íbúa á hjúkrunarheimilum og skimunartækjum sem starfsfólki,
öðru en tannheilsumenntuðu, stendur til boða.
Styrkleikar og veikleikar
Eiginleikar þverfræðilegra rannsókna eru þess eðlis að ekki er
hægt að greina á milli orsaka og afleiðinga. Úrtakið var valið af
hentugleika og þátttaka íbúanna takmarkaðist við áhuga og
heilsufar þeirra til að taka þátt. Mismunandi vinnuaðstæður við
klíníska skoðun gætu hafa komið í veg fyrir að munnkvillar
greindust á heimili B. Hluti úrtaksins (n=13) svaraði ekki spurn-
ingu um hversu lengi þeir höfðu búið á heimilinu sem getur bjagað
samanburð eftir búsetu í svo litlu úrtaki og verið vísbending um
minnisglöp en þekkt er að hérlendis er meðaldvalartími heilabil-
aðra á hjúkrunarheimilum lengri en annarra íbúa.4
Rannsóknin gefur mynd af munnheilsu íbúa tveggja hjúkr-
unarheimila sem rekin eru af sömu rekstraraðilum. Niðurstöður
hefðu hugsanlega orðið aðrar ef fleiri heimili hefðu gefið kost á sér
í rannsóknina.
Styrkleikar rannsóknarinnar felast í því að nota þekkta alþjóð-
lega mælikvarða um munnheilsu OHS og tannheilsutengd lífs-
gæði OHIP-49.
Ályktun
Breytingar á tannheilsu aldraðra kalla á endurskoðun á þjónustu-
úrræðum á hjúkrunarheimilum og sýnir fram á þörf fyrir hald-
góða þekkingu starfsfólks á sértækum munn-, tann- og tanngerva-
tengdum vandamálum sem búast má við að finnist hjá íbúum.
Samstillt átak opinberra aðila og heilbrigðisstarfsfólks þarf til
að tryggja úrræði við hæfi á hjúkrunarheimilum þegar kemur að
því að viðhalda tannheilsu íbúa svo hægt verði að tryggja að
munnheilsutengdum lífsgæðum sé viðhaldið ævina á enda.
Þakkir
Lýðheilsusjóður og Rannsóknarsjóður Hrafnistu fá þakkir fyrir
styrki vegna rannsóknar, starfsfólk fyrir aðstoð á vettvangi og
þátttakendur fyrir framlag sitt til rannsóknar.
Viðauki
Tafla V. Fjöldi íbúa með tennur og föst tanngervi, tennur og parta eða heilgóma í báðum gómum.
Karl Kona Samtals
Tannheilsa Fjöldi (%a) (%b) Fjöldi (%a) (%b) Fjöldi (%b)
Tennur og föst tanngervi 8 (28,6) (11,0) 15 (33,3) (20,5) 23 (31,5)
Eigin tennur og laus tanngervic 8 (28,6) (11,0) 12 (26,7) (16,4) 20 (27,4)
Heilgómur (tannlaus) 12 (42,9) (16,4) 18 (40,0) (24,7) 30 (41,1)
Samtals 28 (100,0) (38,4) 45 (100,0) (61,6) 73 (100,0)
Skýringar: ahlutfall innan kyns, bhlutfall af heild. cMeð heilgóm eða tennur og part í öðrum gómi á móti eigin tönnum með eða án parts.
Greinin barst til blaðsins 22. febrúar 2022,
samþykkt til birtingar 10. júní 2022.