Læknablaðið - 01.07.2022, Blaðsíða 27
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 347
R A N N S Ó K N
þeirra völdum en þeir sem voru með hærra menntunarstig. Í ljós
kom að 21-33% af aukningunni skýrðist af lægri tekjum og auknu
álagi í vinnu.5
Þetta er í samræmi við niðurstöður frá Bandaríkjunum en
lífslíkur þar við 25 ára aldur hafa minnkað á síðustu tveimur
áratugum síðustu aldar og er munurinn 0,9 árum meiri hjá þeim
sem hafa styttri menntun miðað við þá sem meira eru menntaðir.
Menntunarstigið eitt og sér skýrir 17,4% þessa mismunar í lifun.6
Þetta vekur spurningar um hvað geti verið að verki en lengi hefur
verið þekkt að félagsleg og efnahagsleg staða einstaklinga og hópa
hefur áhrif á heilbrigði.7
Rannsóknir Hjartaverndar og annarra hafa sömuleiðis sýnt
fram á öfuga fylgni milli menntunar og hjarta- og æðasjúkdóma.
Lægra menntunarstig tengist auknum áhættuþáttum, auknu
nýgengi og aukinni dánartíðni vegna æðakölkunarsjúkdóma.8,9
Ójöfnuður sem skýrist af mismunandi menntunarstigi hefur auk-
ist á undanförnum áratugum.
Tengsl félagslegrar og efnahagslegrar stöðu við áhættuþætti
kransæðasjúkdóma hafa verið mikið rannsökuð. Þannig hefur
verið sýnt fram á að áhættuþættirnir háþrýstingur,10 sykursýki,11
blóðfituröskun,12 reykingar,13 og offita14 tengjast öll félagslegri eða
efnahagslegri stöðu. Þannig má leiða að því líkur að aukin sjúk-
dómsbyrði hjarta- og æðasjúkdóma meðal þeirra sem hafa stutta
skólagöngu geti skýrst af óhagstæðri stöðu þekktra áhættuþátta
æðasjúkdóma.
Þótt rannsóknir hafi óyggjandi bent á óhagstæðari áhættuþætti
Tafla I. Grunngildi eftir menntunarstigi, fjöldi (%)
Karlar Grunnskóli Iðnmenntun Stúdentspróf Háskólapróf
n 493 1249 370 1139 p-gildi
Aldur m (sf) 49 (12,1) 53 (10,4) 46 (11,9) 48 (10,8) <0,001
Líkamsþyngdarstuðull m (sf) 28,4 (4,9) 28,4 (4,3) 27,9 (4,6) 27,6 (4,1) <0,001
Líkamsþyngdarstuðull > 30 158 (32,0) 368 (29,5) 98 (26,5) 261 (22,9) <0,001
Sykursýki af tegund II 34 ( 6,9) 94 ( 7,5) 14 ( 3,8) 54 ( 4,7) <0,01
LDL-kólesteról (mmól/L) m (sf) 3,3 (0,92) 3,3 (0,91) 3,3 (0,87) 3,3 (0,91) 0,53
HDL-kólesteról (mmól/L) m (sf) 1,27 (0,32) 1,32 (0,35) 1,31 (0,33) 1,33 (0,33) <0,01
Heildarkólesteról (mmól/L) m (sf) 5,2 (0,99) 5,3 (1,02) 5,2 (0,95) 5,2 (1,01) 0,14
Þríglýseríðar (mmól/L) miðgildi (fm*) 1,18
[0,86;
1,69]
1,19
[0,85;
1,71]
1,15
[0,82;
1,65]
1,08
[0,78;
1,52]
<0,001
Slagbilsþrýstingur mmHg m (sf) 126 (15,0) 129 (16,1) 126 (13,8) 126 (15,3) <0,001
Reglubundin hreyfing <0,001
Lítil 229 (46,5) 487 (39,0) 111 (30,0) 238 (20,9)
Miðlungs 126 (25,6) 379 (30,3) 128 (34,6) 453 (39,8)
Mikil 138 (28,0) 383 (30,7) 131 (35,4) 448 (39,3)
Háþrýstingslyf 107 (21,7) 382 (30,6) 65 (17,6) 230 (20,2) <0,001
Blóðfitulækkandi lyf 65 (13,2) 194 (15,5) 30 ( 8,1) 117 (10,3) <0,001
Aspirín 65 (13,2) 210 (16,8) 29 ( 7,8) 116 (10,2) <0,001
Reykingasaga <0,001
Aldrei reykt 117 (23,7) 385 (30,8) 166 (44,9) 595 (52,2)
Hefur reykt 206 (41,8) 553 (44,3) 126 (34,1) 398 (34,9)
Reykir 170 (34,5) 311 (24,9) 78 (21,1) 146 (12,8)
Fjölskyldusaga um kransæðasjúkdóma 172 (34,9) 459 (36,7) 108 (29,2) 339 (29,8) 0,001
Efnaskiptavilla 127 (25,8) 350 (28,0) 67 (18,1) 212 (18,6) <0,001
Alvarleg æðakölkunarskella 78 (15,8) 200 (16,0) 28 ( 7,6) 79 ( 6,9) <0,001
Leyfði tengingu við sjúkraskrá 478 (97,0) 1221 (97,8) 356 (96,2) 1086 (95,3) 0,01
Saga um kransæðasjúkdóm eða heilaáfall 44 ( 9,2) 108 ( 8,8) 13 ( 3,7) 49 ( 4,5) <0,001
Saga um kransæðasjúkdóm 29 ( 6,1) 86 ( 7,0) 11 ( 3,1) 43 ( 4,0) <0,01
Kransæðasjúkdómur eða heilaáfall innan 10 ára 63 (13,2) 181 (14,8) 26 ( 7,3) 91 ( 8,4) <0,001
Kransæðasjúkdómur innan 10 ára 51 (10,7) 154 (12,6) 18 ( 5,1) 76 ( 7,0) <0,001
Dauðsfall innan 10 ára 26 ( 5,4) 64 ( 5,2) 12 ( 3,4) 31 ( 2,9) 0,02