Læknablaðið - 01.07.2022, Page 40
360 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
„Ég hef lært mikið og tel mig hafa mikið
fram að færa. Hef unnið með frábæru
fólki. Hef alltaf hlakkað til að fara í
vinnuna, á hverjum einasta morgni, og
þess vegna hlakka ég ekki til að hætta.
Það er eðlilegur vendipunktur hjá öllum
að hætta að vinna. Þá er eins gott að mað-
ur skipuleggi og ákveði brottförina sjálf-
ur,“ segir hann og brosir þar sem tekur á
móti blaðamanni Læknablaðsins hjá Emb-
ætti landlæknis í Höfðatorgsturninum.
Júní. Enn þrír mánuðir í lokadaginn.
„Ég held að það sé verst að brenna
upp í því sem maður er að gera. Þetta er
ástríðustarf og það mun því örugglega
taka mig einhvern tíma að jafna mig eftir
starfslokin,“ segir Þórólfur raunsær. Hann
er sérfræðingur í barnalækningum og
smitsjúkdómum barna. Útskrifaðist úr
læknisfræði frá HÍ 1981 og sérmenntaði
sig í Bandaríkjunum. Hann hóf störf sem
yfirlæknir á sóttvarnasviði Embættis
landlæknis árið 2002. Fyrir tveimur ára-
tugum.
Metur samstarfsfólkið mikils
„Það er ekki auðvelt að gefa eftirmanni
sínum almenn ráð en mín eru þau að trúa
og treysta á innsæi sitt. Leita ráðlegginga
hjá réttu fólki þegar á þarf að halda. Vera í
samstarfi við fólk. Passa að hafa gott sam-
ferðafólk með sér í vinnunni. Hafa and-
rúmsloftið og móralinn þannig að þú getir
staðið í svona verkefni frá degi til dags,“
ráðleggur Þórólfur arftaka sínum. Hann
„Ég hlakka ekki endilega til að hætta,“ segir Þórólfur Guðnason sem kveður starf sitt sem
sóttvarnalæknir þann 1. september, nákvæmlega 7 árum eftir að hann tók við því. „Ég hef
haft ánægju af starfinu og brunnið fyrir því“
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Vildi ekki vera dreginn út
af vinnustaðnum með
naglaförin á veggjunum
V I Ð T A L
segir að sóttvarnalæknir þurfi að koma
fram með þær lausnir sem hann trúi á.
„Þær þurfa ekki að vera þær sömu
og ég kom með,“ segir Þórólfur. En mun
eftirmaðurinn fást við COVID-veiruna
áfram? „Já, hún mallar enn í samfélaginu
og margir angar eiga eftir að koma upp.
Ákveða þarf framtíðarfyrirkomulag
bólusetninga. Hvernig á að fylgjast með
veirunni áfram. Ákveða hvort grípa þurfi
til nýrra ráðstafana. Svo koma nýjar veirur
eins og apabóluveiran. Það verða eilífar
áskoranir,“ segir Þórólfur sem trúir því
að í framtíðinni þurfi að beita svipuðum
nálgunum og nú í faraldrinum. Alltaf
þurfi þó að ákveða hversu víðtækar að-
gerðirnar eigi að vera.
Fálkaorða fyrir árangurinn
En bjóst Þórólfur við að ákvarðanir hans
í faraldrinum, fjarlægðartakmarkanir,
snertilaus samskipti og grímur, ættu eft-
ir að hafa svona víðtæk áhrif á hegðun
fólks?
„Já, ég var að vona það,“ segir hann og
hlær. En hann sé ekki viss um að þessi
breytta hegðun sé komin til að vera. „Mér
sýnist nú að við séum nokkurn veginn að
fara í sama farið og fyrr. Fólk er farið að
heilsast og ég er sjálfur þar þótt það fljúgi
þá í kollinn á mér hvort ég sé að gera rétt.“
Hann hugsi til efnahagshrunsins árið
2008. „Þá sagði fólk að nú myndi þanka-
gangurinn breytast. Fólk yrði varkárara
í fjárfestingum. Ég get ekki séð að það
hafi gerst. Lífið fer í hringi og við endum
stundum á sama stað eftir að hafa farið
langa Krýsuvíkurleið.“
Blaðamaðurinn snýr talinu enn og
aftur að lokapunktinum. Starfslokunum.
Ekki árangrinum. Hann er ljós. Fálkaorð-
an staðfestir hann. „Það er mikilvægt að
undirbúa starfslok vel svo þau verði ekki
eitt allsherjar sjokk,“ segir Þórólfur.
Undirbýr starfslokin
„En hvernig á maður að undirbúa sig?
Margir undirbúa sig með því að koma sér
upp áhugamáli sem tekur huga þeirra.
Menn þurfa að gera eitthvað. Menn geta
ekki vaknað, lesið Morgunblaðið – minn-
ingargreinarnar. Farið svo út í búð til
að kaupa sér kringlur og brauð, lagt sig,
gluggað í fleiri blöð og farið að sofa. Ef
rútínan verður þannig, geta starfslokin
orðið áfall,“ segir Þórólfur sem ákvað að
taka málin í sínar hendur og hætta ári
fyrir sjötugt. Ári áður en honum yrði gert
að hætta.
„Ég vildi ekki vera dreginn út af
vinnustaðnum með naglaförin á veggjun-
um.“ Það sé ekki gott að halda ekki sjálfur
um stjórnartaumana. Margt spili inn í.
Bæði persónulega og faglega. Starf sótt-
varnalæknis hafi verið krefjandi síðustu
tvö ár. Heimsfaraldur. Gríðarlegur hraði
og hann kominn á hefðbundinn eftir-
launaaldur.
„Það var alltaf verið að spyrja mig:
Hvenær ætlar þú að hætta? Ég sagði að
Hlustið á viðtalið
á hlaðvarpi
Læknablaðsins