Læknablaðið - 01.07.2022, Síða 45
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 365
öryggisdeildir en þeir sem eru, strangt til
tekið, ósakhæfir,“ segir hann.
„Fleiri úrræði þurfa að bjóðast hér.“
Þá þurfi að stækka teymið. „Sérstaklega
þar sem okkur var í fyrstu eingöngu ætl-
að að sinna þeim sem eru í afplánun en
sinnum nú einnig þeim sem eru komnir á
reynslulausn.“
Dapurleg vinnuaðstaða
Sigurður bendir einnig á að aðstaða
teymisins í fangelsum sé mjög dapurleg.
„Það er erfitt að veita góða geðheilbrigð-
isþjónstu í íslenskum fangelsum. Það er
ekki gert ráð fyrir slíkri þjónustu þar,“
segir hann. „Við höfum gert alvarlegar
athugasemdir við vinnuaðstöðuna okkar.“
Hann nefnir að á Litla-Hrauni sé
vinnuaðstaðan bágbornust. „Öryggismál-
in eru í ólestri. Við höfum oft ekki aðgang
að viðtalsherbergjum eða skrifstofum.
Höfum þurft að setjast niður með fartölv-
una í einhverju horni og nota hotspot til
að komast á netið. Því miður er það lenska
á Íslandi að gera ekki ráð fyrir öflugri
heilbrigðisstarfsemi.“
Aðstaðan sé betri á Hólmsheiði, en
ekki fullnægjandi. Nú standi þó til að
bæta aðstöðuna á Litla-Hrauni. Setja eigi
1,5 milljarða í álmu fyrir heilbrigðis- og
geðheilbrigðisþjónustu og aðrar úrbætur
við fangelsið. „Við erum að bíða eftir því
en myndum gjarnan vilja fá vistlega og
snyrtilega gáma fyrir þjónustuna þangað
til.“
Sigurður segir að þjónustan hafi þróast
hratt í COVID. Margt hafi breyst. Teymið
veiti nú meiri fjarþjónustu en áður.
„COVID-tímabilið var sérstakt í fangels-
um landsins. Loka þurfti þeim fyrir heim-
sóknum á löngum köflum, sem hafði kosti
og galla.“ Það hafi reynt á þolrif fanga að
hitta ekki fólkið sitt.
„En á hinn bóginn minnkaði inn-
streymi fíkniefna, sérstaklega á Litla-
Hrauni. Við sáum andlegar framfarir af
því einu. Ástand fanganna batnaði,“ segir
hann. Mikilvægt sé að neyslan sé lág-
mörkuð innan fangelsanna.
„Það er mikil neyslumenning innan íslensku fang-
elsanna,“ segir Sigurður. Mest á Litla-Hrauni. Með-
ferðir séu því oft ekki eins árangursríkar og þær gætu
verið. Mynd/gag
Konur þurfa betri úrræði
„Það er erfitt að vera kona í fangelsi hér á landi,“ segir Sigurður Örn Hektorsson
geðlæknir. Þeim sé mörgum mikið áfall að vera rifnar frá börnum sínum og fjöl-
skyldu. „Það er því ótækt að konur hafi ekki aðgang að opnu fangelsi í sama mæli
og karlar,“ segir hann.
„Það er erfitt fyrir konur að komast í opin úrræði og því þarf að breyta.“ Á
annan tug kvenna afpláni í fangelsi. Þær séu á Hólmsheiði. „Þær geta komist
í opið úrræði á Sogni en plássin eru fá. Þær komast ekki á Kvíabryggju,“ segir
hann. „Það er vilji til að leysa málið en það skortir fjármagn.“