Læknablaðið - 01.07.2022, Page 53
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 373
Dagur í lífi innkirtlalæknis barna
7:30 Síminn hringir, snooze x 2, skelli
mér fram úr, kötturinn stendur við
svefnherbergisdyrnar og sýnir mér með
ákveðnu augnaráði að hann þurfi mat.
Geri tvöfaldan espressó og tek með mér
í sturtu, er svo óheppin að vera í gipsi
á annarri hendinni og hárþvottur og
greiðsla er vægast sagt erfið þessa dagana
– lít út eins og lukkutröll.
Unglingarnir vaknaðir og allir í sturtu
– þvílík skynsemi að við settum fjögur
baðherbergi í húsið.
Skutla prinsunum á fimleikaæfingu
og bruna í Urðarhvarf – þar höfum við
Domus-barnalæknar komið okkur fyrir
– frábært að losna við umferðina niður á
Barnaspítalann suma daga vikunnar. Það
er þó fyndið hvað við getum kvartað yfir
þessari umferð og ég ekki undanskilin,
þar sem ég vann áður í Kaliforníu var
ég alsæl ef ég komst í vinnuna á einum
klukkutíma.
8:30 Fyrsti sjúklingurinn er mættur –
7 ára pólskur drengur, hefur alltaf verið
feiminn að tala íslensku en er ræðinn í
dag – segist ætla að vera alltaf í 1. bekk
því það sé svo gaman – renna nú á hann
tvær grímur þegar ég segi honum að á
hverju ári hækki hann um bekk og endi
í 10. bekk. „Verð ég þá gamall maður?“
Næsti mætir alltaf með spýtu eða prik í
heimsókn til mín, fer sjálfur á viktina en
við tölum alltaf um að mæla hvað börnin
eru sterk og dugleg, en ekki þung eða létt.
Í dag áttu ansi mörg börn afmæli á næstu
dögum og eitt þeirra, 7 ára stúlka, vildi
fá lifandi ref í afmælisgjöf og annar vildi
fara í „nördabúðina“ að velja afmælis-
pakka. Sá þriðji skildi ekki af hverju ég
væri ekki með skóhorn fyrst ég væri alltaf
að segja krökkum að fara úr skónum til
að mæla þau. Ein 9 ára spurði „Finnst þér
gaman í vinnunni?“, „Er gaman að vera
læknir? „Já ekki spurning, það er gaman
að hitta skemmtilega krakka eins og þig
og hjálpa þeim ef þau eru lasin .“ Síðasti
sjúklingur dagsins er lítil 14 mánaða
stúlka með eyrnabólgu, en ansi vinnusöm
inni á stofunni og sagði mamman að hún
væri kölluð brashildur heima hjá sér.
Tuttugu og tveimur börnum seinna segi
ég bless við litlu brashildi og tek símtöl.
10 börn á símalistanum – næ í flestalla
foreldrana, ræðum niðurstöður, meðferð
og næstu heimsóknir. Ræði við gríska
mömmu sem blessar mig í þriðja hverju
orði og mun hafa mig í bænum sínum.
Notalegt að ræða við svona yndislega
foreldra.
17:20 Loka tölvunni, er að verða alltof
sein að skutla öðrum prinsinum á fót-
boltaleik, en næ með sérlega útsjónarsöm-
um keyrsluhæfileikum. Leikurinn byrjar
ekki fyrr en eftir klukkustund svo það er
spurning hvort ég ætti að stökkva inn í
ræktina eða fá mér Tokyo-sushi. Legg frá
mér prjónana og bruna á leikinn. Mætt á
hliðarlínuna – búin að vera soccer-mom
samfellt í 25 ár, lifi mig mikið inn í leikinn
og sparka jafnvel með. Leik lokið með
sigri okkar megin enda lagði ég mig alla
fram.
20:30 Komin heim, kvöldmatartími
liðinn hjá hinum í fjölskyldunni en fót-
boltakappinn nýtir sér Gordon Ramsey
hæfileika sína og vippar upp steik fyrir
sig.
21:00 Skelli í þvottavél „the never ending
story“, kveiki á sjónvarpinu – horfi á
glæpaþriller, kveiki á ljóranum og fer yfir
blóðprufuniðurstöður, skipulegg verkefni
næsta dags og hver er að fara hvert og
hver skutlar. Loksins eru allir farnir að
sofa og ég nýt þess að sitja ein og klára
sjónvarpsþáttinn þó ég muni nú ekkert
hvað gerðist eftir að þátturinn er búinn.
Soffía G. Jónasdóttir
Soffía í vinnunni, – út um gluggann gefur að
líta Árbæinn og stærsta skóg á landinu,
höfuðborgarskóginn, og svo gömlu góðu Esjuna
sem er alltaf jafn sjúkleg.
Myndina tók Birna Guðbjartsdóttir.