AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Síða 12

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Síða 12
lengur og þá stefnu eða stefnuleysi, þar sem sífellt er verið að hleypa meira umferðarmagni á ofhlaðið gatnakerfi og inn í gróin íbúðarhverfi. Ef við horfum lengra fram í tímann en til morgun- dagsins eða næstu kosninga þá sjáum við þessi mál ef til vill skýrar. Svíar gera nú t.d. ráð fyrir að bifreiða- umferðin f Stokkhólmi muni aukast um 80% til ársins 2020 ef ekkert verður að gert. Við getum spurt okkur sjálf að því hverjir vilji búa við helstu umferðargötur höfuðborgarsvæðisins í framtíðinni ef umferðar- aukningin verður viðlíka og þar. Eitt af þeim hugtökum sem mörgum íslendingum er orðið tamt f munni þessa dagana er sjálfbær þróun og margir hafa lýst yfir fylgi við þá hugsun sem þar býr að baki. Fátt bendir enn til þess að þessi boðskapur hafi náð að festa varanlegar rætur hér á landi. Ennþá er verið að skipuleggja um allt land á svipaðan hátt og gert var fyrir mörgum áratugum, ennþá er verið að bjóða fólki sömu gömlu „lausnirnar1' og þegar þetta er skrifað búum við ennþá við meira en 30 ára gamla skipulagslöggjöf. f hugum margra íslendinga er skipulag ennþá ekki mikið annað en að búa til lóðir fyrir hús og ákveða hvar á að leggja götur og vegi. Aðrar þjóðir hafa fyrir löngu gert sér grein fyrir því að nútímaskipulag getur einmitt veitt þeim sem taka ákvarðanir nauðsynlegt yfirlit og samhengi til þess að taka sífellt betri ákvarðanir. Það er ekki lengur nóg að okkar „byggðastefna'1 eða byggðaskipulag beinist að því hvernig á að halda „jafnvægi í byggð landsins" heldur þarf hún ekki síður að fást við það hvernig heildarumhverfi við búum til til þess að tryggja áframhaldandi velmegun á íslandi og hvernig við viljum tengjast umheiminum á komandi árum. í sjálfu sér er hér ekki neinum um að kenna þótt við séum ef til vill sein að gera okkur grein fyrir því hvern- ig heimurinn er að breytast. í öllum löndum eru miklir hagsmunir fólgnir í því að viðhalda ríkjandi ástandi, hversu mikilvægar sem einhverjar breytingar kunna að vera, þegar á heildina er litið. Þær breytingar sem átt hafa sér stað undanfarna áratugi kunna þó að reynast smávægilegar miðað við þær breytingar sem eru að eiga sér stað á því þekkingarsamfélagi sem nú er að verða til í sam- skiptum og starfsumhverfi fólks. Auðvitað ættu stjórn- málaflokkar að vera í fararbroddi þessara breytinga og auðvelda þær í meginatriðum, í stað þess að taka allt of margar ákvarðanir um smáatriði sem eru háð stöðugri breytingu og þeir vita minna og minna um. Einstök sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar eru oft í mun betri aðstöðu til þess að nýta sér þekkingu og bregðast fljótt við ef þeim er á annað boró gert kleift að nýta sér upplýsingabyltingu samtímans. Opinberir aðilar leggja engu að síður að miklu leyti grundvöll að því heildarumhverfi sem við búum við og mynda rammann um þær ákvarðanir sem við tökum. Ef þessi grundvöllur og rammi er í góðu samræmi við þá þró- un sem nú er að eiga sér stað munum við öll njóta góðs af - ef hann er það ekki getum við auðveldlega sóað milljörðum í gagnslítil mannvirki um allt land á komandi árum eða menntunar- og þjónustukerfi sem koma okkur að litlu haldi í framtíðinni. Aldrei fyrr höfum við átt jafnmikið í húfi og nú og afdrifaríkustu mistökin geta eirrmitt orðið hjá þeim sem láta undir höfuð leggjast að meta stöðugt bæði stöðu og stefnu á sem flestum sviðum. Þetta veit hver skipstjóri og þetta vitum við í hjarta okkar hvert og eitt. í okkar breytilega heimi dugar ekki lengur að segja að eitthvert mál sé ekki til umræðu og að ekkert hafi breyst. Umhverfi okkar er stöðugt að breytast. Þessar breytingar koma okkur öllum mikið við og við viljum fá opinskáar umræður um það hvernig skuli brugðist við og fá að taka þátt í að móta okkar eigin framtíð. í þessu tímariti eru kynntar nokkrar af þeim hug- myndum sem nú eru uppi um framtíðarþróun íslands. Það er von aðstandenda AVS að þær verði mönnum hvatning til þess að átta sig á mikilvægi þessara mála. ■ 10
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.