AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Side 15

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Side 15
ISLAND FRAMFARA Viö íslendingar höfum í aldanna rás þurft aö lifa í nánu sambýli viö hrikaleg náttúru- öfl, sem reglulega minna á sig með skelfi- legum hætti. Undanfarna mánuði hafa dunið yfir okkur snjóflóö, ofsaveður, eldgos og hlaup undan jökli. Og áföllin eru stór, oft aðeins fjárhagsleg en því miður stundum á fólki. Þessar aðstæður eru að mörgu leyti einstæðar og gera gífurlegar kröfur til æðruleysis og trúar, en ekki síður til verkþekkingar, mannauðs og úthalds. í hverju áfalli er lærdómur falinn og við nýtum þann lærdóm vonandi sem þest til að búa okkur undir það sem framundan kann að vera. Dæmin sanna að þetta hefurokkurtekist, oftar en ekki. Nú er svo komið að íslensk verkþekking og hönnun með óhagstæð veðurskilyrði í huga er með því besta sem gerist í heiminum ídag. Þaðeru líkafáirsem þurfaaðglíma við „láréttu rigninguna", sem fræg er hér á íslandi, hvað þá sífelldar sveiflur í veðurfari. Ekki er síður mikilvægt að vel takist til við skipulagsákvarðanir hvað þessi atriði varðar og sjáum við það af reynsl- unni, t.d. í Reykjavík, að það getur skipt sköpum að huga vel að þáttum sem lúta að veðri og öryggi áður en gengið er frá framtíðarstefnumótun. Þessi öld hefur verið öld stökkbreytinga í íslensku þjóðfélagi. Á nokkrum áratugum var tekin út fram- þróun í aðbúnaði, efnahagslífi og þjóðfélagsgerð sem tekið hafði nokkrar aldir í löndunum í kringum okkur. Slíkur vöxtur reynir auðvitað á þroska og stundum hefur mátt sjá þess merki að þetta tvennt hefur ekki haldist að öllu leyti í hendur. Þrengingar í efnahagslífi undanfarinna ára og skynsamleg úrvinnsla þeirra viðfangsefna sýnir þó glöggt að á því sviði hafa íslendingar þroskast frá óðaverðbólgu og krónukapphlaupi. Viðsnúningur í þessum efnum náð- ist með samstilltu átaki margra ólíkra afla í þjóðfélaginu. Samhliða þessu var ráðist í ýmis stórvirki, t.d. hvað varðar samgöngubætur, og grunnur lagður að öðr- um. Er nú svo komið að þau ár sem framundan eru Ekkert bendir til annars en að stórstígar framfarir undanfarinna ára haldi áfram. 13 DAVIÐ ODDSSON FORSÆTISRAÐHERRA

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.