AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Page 16
stefna f að verða ein allra mestu framkvæmdaár í
seinni tíð, með stækkun álvers í Straumsvík, Hval-
fjarðargöngum, uppbyggingu í atvinnulífi og styrk-
ingu fyrirtækja. Við þessar aðstæður er mikilvægt
að ekki tapist niður sá góði árangur sem náðst hefur
undanfarin ár. Því þurfa menn að gæta að sér að
fara ekki of geyst, taka batann ekki út í einum bita,
heldur láta þessar góðu aðstæður verða grunninn
að löngu framfaraskeiði fyrir íslenska þjóð.
Nú nálgast aldamót óðfluga og eðlilegt að horft sé til
framtíðarog spáð hvaðhúnberi ískautisér. Ekkert
bendir til annars en að stórstfgar framfarir undanfar-
inna ára haldi áfram. Hröð þróun í upplýsingatækni
hefur verið áberandi og á nokkrum árum hafa sam-
skipti milli manna, hvort sem er innan fyrirtækja, milli
fyrirtækja eða milli landa, tekið stakkaskiptum. Net-
tengingar, samvinnsla og veraldarvefur eru hugtök
sem eru á hvers manns vörum og nýta menn sér
þessa nýju möguleíka í starfi og leik. Hönnuðir, verk-
fræðingar og framkvæmdaaðilar vinna stóran hluta
af sinni vinnu með aðstoð upplýsingatækni og fram-
þróun á tæknisviði kallar á byltingar frá ári til árs.
Þessar framfarir munu að öllum líkindum leiða til
mikilla breytinga á atvinnuháttum. Víst er að upp-
lýsinga- og fjarskiptatæknin mun geta opnað ný
sóknarfæri í iðnaði, viðskiptum og þjónustu. Þar búa
íslendingar meðal annars að því að opinn aðgangur
að upplýsingum og frjáls viðskipti um hraðvirka upp-
lýsingabraut bæta samkeppnisstöðu smærri fyrir-
tækja gagnvart þeim stærri og gera mikla fjarlægð
milli viðskiptaþjóða mun yfirstíganlegri. Nýlega hefur
verið lögð fram álitsgerð starfshópa um íslenska
upplýsingasamfélagið. M.a. á þeim grundvelli mun
framtíðarstefna á þessu sviði verða mörkuð. Ljóst er
þó að menntun íslenskra ungmenna og þjálfun þeirra
við að nýta sér ný tækifæri hlýtur alltaf að verða kjarni
framþróunar á þessu sviði.
Þegar horft er til framtíðar er mikilvægt að byggja á
grunni reynslunnar. Frumkvöðlar við verkleg stórvirki
undanfarinna áratuga, s.s. Jón Þorláksson aðalhvata-
maður Sogsvirkjunar, Hitaveitu Reykjavíkur og fleiri
stórvirkja, kenndu okkur að skipulag, þolinmæði og
úthald eru lykill þess að ná árangri. Með þennan lær-
dóm og nútímatækniþekkingu að vopni er ekki að
efa að næstu ár og áratugir verði tímar stöðugra fram-
fara í íslensku þjóðlífi. ■
ARNAR OG ARXNSTEINAR
ÍTALSKAR, SPÁNSKAR, FRANSKAR
ÞÝSKAR OG MEXÍKÓSKAR FLÍSAR
SKAPAÐU ÞÉR UMGJÖRÐ MEÐ FLÍSUM
MARÁS
FÚSABÚÐ
SÍÐUMÚLA 21 SÍMI 588 9311
14