AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Page 39
Höfundur: MALFRIÐUR KRISTJANSDOTTIR
NIÐURSTAÐA DÓMNEFNDAR
í tillögunni bendir höfundur fyrst og fremst á mögu-
leika innanlands. Mikið er gert úr því að uppistöðulón
séu náttúruspjöll og mælir höfundur sérstaklega með
nýtingu jarðorkunnar án þess að bera virkjun jarðhita
saman við aðra virkjunarkosti. Enn er óljóst hvort
Islands bíði blómatíð í framleiðslu lífrænna matvæla
til útflutnings og óvtst hvort hægt er efnahagslega
að sleppa hagkvæmustu orkuvinnslukostunum.
Framtíðarsýn höfundar byggir á verndunarsjónar-
miðum og hreinu og óspilltu landi. Hugmyndir hans
um landnotkun og landnýtingu þarfnast hins vegar
töluvert meiri úrvinnslu til að verða heildstæðar og
sannfærandi. Einna athyglisverðust er tillagan um
„hljóðlaus svæði" í óbyggðum á landnotkunarkortinu.
Nokkuð skortir á varðandi framsetningu myndmáls
og texta.
„Því hefur stundum verið haldið fram að ísland verði gert að þjóðgarði Evrópu.
Staða landsins mitt á milli Evrópu og Ameríku gerir landið forvitnilegt og
væntanlega mun ferðamannastraumur hingað stóraukast í framtíðinni.
Tillagan gerir ráð fyrir að landið viðhaldi hreinni ímynd, hreint land, hreinn sjór,
hreint loft, hreint vatn og óspill náttúra. Þá er gert ráð fyrir framleiðslu á hollum,
hreinum, náttúruvænum eða lífrænum matvælum til útlflutnings. Landinu er skipt
í svæði með sterkum byggðakjörnum og hefur hvert svæði sitt hlutverk. Ekki
skal stuðla að því að viðhalda byggð þar sem hún er þjóðhagslega óhagkvæm,
en nýta ber eftir föngum þær fjárfestingar sem þegar eru fyrir hendi.
Stefnt skal að því að landflutningar með vöru minnki og t.d. á austurlandi þar
sem ætlunin er að framleiða aðallega landbúnaðarvörur til útflutnings, fari sá
útflutningur um höfnina á Eskifirði-Reyðarfirði. Aðrar aðalhafnir verði t.d. á
Húsavík og ísafirði.
Það þarf að vernda hálendið gegn ferðamönnum ekki síður en sauðfé. Þangað
verði nær eingöngu leyfðar skipulagðar ferðir en þjónustumiðstöðvar í jaðri þess
verði styrktar (Húsafell, Mývatn, Möðrudalur, Geysir-Laugavatn).
Sköpuð verði „hljóðlaus svæði“ bæði á jöklum og öræfum þar sem umferð
vélknúinna ökutækja er bönnuð. Framkvæmdir vegna virkjana verði sem næst
byggð, jarðhiti nýttur í ríkari mæli og stefnt að stækkun á núverandi virkjunum.
Með breyttum áherslum á nýtingu landsins er hægt að skapa ört vaxandi þjóð
góð lífskilyrði11.
37