AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Side 72
ÞÓRUNN SVEINBJÖRNSDÓTTIR SJÚKRAÞJÁLFARI
VINNUVERND
V E R K I
LÉTTUM AF ÞEIM BYRÐUNUM
Alagseinkenni eru algeng í nútíma-
samfélagi. Um það bil 80% af mann-
kyninu fá einhvern tíma um ævina
óþægindi í bakið. Óþægindin hafa áhrif
bæði í starfi og leik. í könnun á óþægindum frá hreyfi-
og stoðkerfi meðal íslensku þjóðarinnar 1986 höfðu
um 65% spurðra haft óþægindi frá mjóbaki einhvern
tíma síðustu 12 mánuðina og höfðu 17% þeirra ekki
getað sinnt daglegu starfi sínu vegna óþægindanna
(1). Kostnaður vegna álagsmeina, bæði beinn og
óbeinn, er ört vaxandi vandamál sem hvílir á einstakl-
ingum, fyrirtækjum og samfélaginu í heild um heim
allan (2). Orsakir álagseinkenna frá hreyfi- og stoð-
kerfi eru fjölþættar. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnuninni (1985) eru vinnuumhverfið og vinnu-
aðferðir tveir mikilvægir áhættuþættir. Helstu áhættu-
þættir sem tengja má vinnu eru: að lyfta þungu,
slæmar vinnustöður, einhæf vinna með síendur-
teknum hreyfingum og slæmt vinnuskipulag
(2,3,4,5).
tækniframfara er enn fjöldi starfa sem felur í sér að
starfsmenn þurfa að handleika þungar byrðar við
erfiðar aðstæður. Til að draga úr hættu á að starfs-
menn verði fyrir heilsutjóni vegna vinnunnar, sérstak-
lega bakmeiðslum.hafa verið settar reglur um öryggi
og hollustu þegar byrðar eru handleiknar (nr. 499/
1994). Reglurnar ná til aðstæðna þar sem verið er
að lyfta, ýta, draga, bera og færa til byrðar í starfi.
Byrðarnar geta verið jafnt hlutir, fólk sem dýr. í þessari
grein verður fjallað um hönnun vinnustaða í Ijósi
þessara nýlegu reglna.
HVAÐA ÁHRIF HAFA REGLURNAR Á
HÖNNUN?
Þegar hanna á nýja vinnustaði er mikilvægt að strax
í upphafi sé hugsað heildrænt. Til að álag á hreyfi-
og stoðkerfið við vinnu verði heppilegt þarf að setja
markmið bæði um vinnuskipulag og líkamsbeitingu,
sem síðan er leitast við að fylgja á öllum hönnunar-
stigum.
REGLUR UM AÐ HANDLEIKA BYRÐAR
Þó mörg líkamlega krefjandi störf hafi horfið í kjölfar
Notkun hjálpartækja léttir störfin.
Reglur um aó handleika
Þarf oð lyfta, ýto, draga, bera eða færa Samkvæmt reglunum á að gera skipulags-
til byrðar á vinnustaðnum þínum? ráðstafanir eða nota vélbúnað svo ekki þurfi
Ef svo er kynntu þér þá reglur sem eigo að handleika byrðar.
að tryggja öryggi og hollustu þeirra sem
handleika hluti, fólk eða dýr í starfi. Þegar ekki er hægt að komast hjá því að
starfsmenn handleiki byrðar á að:
• Meta vinnuaðstæður
Afvinnurekandi skal meta aðstæður við vinnu
til að tryggja öryggi og heilsu starfsmanna.
• Gera
ráðstafanir
Vinnuna og vinnuaðstæður
á að skipuleggja þannig að
ekki sé hætto á heilsutjóni.
Nota skal viðeigandi búnað og hjólpartæki
til að draga úr álagi.
• Veita upplýsingar og fræðslu
Starfsmenn eiga rétt á að fá upplýsingar um alla þætti
öryggis og hollustu er tengjast vinnu þeirra við að
handleika byrðar.
Þeir eiga einnig rétt á þjálfun
í líkamsbeitingu
og réttri notkun hjálpartækja.
• Hafa samstarf
Hafa ber samráð við starfsmenn og tryggja að samstarf
geti orðið sem best um öryggismál,
aðbúnað og hollustuhætti.
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Bíldshöfða 16-112 Reykjavík
Simi 567 2500 - Bréfsimi 567 4086
í framangreindum reglum er lögö mikil áhersla á að
ekki þurfi aö handleika byröar. Orðréttsegir: "atvinnu-
rekandi skal gera skipulagsráöstafanir eða nota við-
eigandi hjálpartæki, einkum vélbúnað, til að komast
hjá því að starfsmenn þurfi að handleika byrðar.”
Þetta ákvæði hefur bein áhrif á hönnun. Nauðsynlegt
er strax í upphafi að huga að samspili manns og
tækni og skoða hvaða hlutverki starfsmenn munu
gegna. Mikilvæg spurning er t.d. hvort sú tækni og
búnaður sem verið er að íhuga að nota við starfið
eða framleiósluna feli í sér að starfsmenn þurfi að
handleika byrðar. Ef svarið er játandi þarf að athuga
hvort ekki megi komast hjá því með því að velja aðra
tækni.
í reglunum segir ennfremur „Þegar ekki er hægt að
komast hjá því að starfsmenn handleiki byrðar skal
atvinnurekandi skipuleggja vinnuaðstæður, nota við-
eigandi búnað eða sjá starfsmönnum fyrir hjálpar-
tækjum til að draga úr þeirri áhættu sem felst í starfi
þeirra." Hann á einnig að sjá til þess að vinnusvæði
séu skipulögð þannig að öryggi og hollusta séu sem
allra mest. Hvaða þýðingu hafa þessi ákvæði við
skipulag og hönnun vinnustaða?
99
70