AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Blaðsíða 11
G E S T U R
Ó L A F
S S O N
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
40 ÁRA -
Fátt er mönnum mikilvægara en að eiga sér
einhvem fastan samastað. Þetta á þó sérstak-
lega við hér á íslandi þar sem veðráttan leyf-
ir okkur ekki að búa við annað en talsvert
vandaðan húsakost ef við viljum lifa sæmilegu lífi. Öld-
um saman bjuggu flestir Islendingar í torfhúsum sem
engum finnst boðlegir mannabústaðir í dag. Engu að
síður áttu þeir þessi hús yfirleitt skuldlaus og enginn gat
gengið að þeim og boðið þau upp. A þessari öld höfum
við hrundið af okkur oki aldanna, rifið torfbæina og
reist svo til öll íbúðarhús landsmanna úr steinsteypu,
timbri og gleri þannig að þau standast nú fyllilega
tæknilegan samanburð við það besta sem gerist hvar
sem er í heiminum í dag.
Síðastliðin 40 ár hefur Húsnæðisstofnun ríkisins haft
mjög mikilvægu hlutverki að gegna í húsnæðismálum
þjóðarinnar. Þegar stofnunin kom til sögunnar var
tæknilegum undirbúningi húsagerðar víða um land
mjög ábótavant og segja má að á þessum áratugum hafi
hún miðlað mikilvægri þekkingu um undirstöðuatriði
góðrar húsagerðar bæði til húsbyggjenda og byggingar-
aðila.
Hjá jafnríkri þjóð af fé og hugviti og Islendingar eru
ætti það ekki að vera neitt stórmál fyrir hvern sem er að
eignast húsnæði. Nóg er til af þokkalega góðu og ódýru
byggingarlandi og tækniþekking í byggingariðnaði vex
stöðugt. Þó er það svo að margt ungt fólk sér ekki leng-
ur nokkra möguleika á að eignast þak yfir höfuðið án
þess að leggja nótt við dag áratugum saman. Hjá þeim
sem eiga að nafninu til íbúðimar sínar sjálfir hefur líka
hallað undan fæti undanfarin ár. Síðastliðin sextán ár
hefur skuldsetning íbúðarhúsnæðis á íslandi hækkað úr
um 20% í um 50%. Hér er um mjög umtalsverða eigna-
tilfærslu frá íbúðareigendum til fjármálastofnana að
ræða en þær eiga nú tilkall til helmings af öllu íbúðar-
húsnæði landsmanna. Að þessu leyti til höfum við ekki
staðið okkur eins vel og forfeður okkar í torfbæjunum.
Hér er einhvers staðar brotalöm sem full ástæða er að
rannsaka frekar. Það er ekki nóg að gera ungu fólki auð-
velt að fá lán til íbúðarkaupa heldur þarf líka stöðugt að
vinna að því að það eigi völ áó dýru, hentugu og góðu
húsnæði sem þarf lítið viðhald. Lífið býður upp á margt
annað en að hálfdrepa sig á því að borga húsnæðislán
alla ævina. Tíminn stendur ekki heldur kyrr. Þær kröf-
ur sem við gerum til íbúðarhúsnæðis eru stöðugt að
brey ast. Ibúðarhverfi og íbúðir sem voru byggðar fyrir
einungis nokkrum áratugum eru nú að hluta til orðnar
úreltar auk þess sem þær eru famar að kalla á umtals-
vert viðhald á mörgum sviðum. Fjöldi aldraðra sem býr
í þessum íbúðum fer líka ört vaxandi og það er mikil-
vægt að geta stöðugt breytt þessu húsnæði, endumýjað
það og oft reyndar heil íbúðarhverfi í samræmi við
breytilegar þarfir íbúanna.
I dvergríki eins og Islandi er það mikilvægt að eiga ein-
hvern aðila sem hefur bæði reynslu og burði til þess að
eiga samstarf við aðrar þjóðir á þessu sviði, stunda
grundvallarrannsóknir á húsnæðis- og byggingarmálum
þjóðarinnar og koma þessum niðurstöðum á framfæri
við þá sem eru að skipuleggja og hanna íbúðarhúsnæði
fyrir komandi kynslóðir. Ef þessari reynslu er ekki
komið áfram höldum við áfram að gera sömu mistökin
aftur og aftur. Sú fjömtíu ára reynsla sem Húsnæðis-
stofnun býr nú yfir - reynsla af því að hanna og sjá um
„Hér er um mjög umtalsverða eigna-
tilfœrslu frá fbúðareigendum til fjár-
málastofnana að rœða en þœr eiga
nú tilkall til helmings af öllu íbúðarhús-
nœði landsmanna. Að þessu leyti til
höfum við ekki staðið okkur eins vel
og forfeður okkar í torfbœjunum.
byggingu íbúðarhúsnæðis við íslenskar aðstæður hvar
sem er á landinu - ætti líka að geta orðið íslenskum
hönnuðum og byggingariðnaði mikilvægur bakhjarl og
lyftistöng og hugsanlega einnig mikilvæg útflutnings-
vara ef rétt er á haldið.
Hér er mikið starf óunnið sem ekki er hægt að ætlast til
að bankar, lánastofnanir og einstakir ráðgjafar annist að
öllu leyti. Húsnæðisstofnun ríkisins hefur bæði burði,
yfirsýn og reynslu til þess að gegna þessu mikilvæga
hlutverki þótt ekki sé nema eðlilegt að það hlutverk
breytist nokkuð í áranna rás. Um leið og AVS óskar
Húsnæðisstofnun til hamingju með þennan áfanga fylg-
ir því einnig ósk um að landsmenn allir fái notið starfs-
krafta hennar enn um langa framtíð. ■