AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Blaðsíða 48
Dómnefnd flokkaöi þessi sjónarmiö í eftirfar-
andi höfuöþætti í mati sínu á tillögunum:
Heildarmynd, byggöarmynd, samspil viö náttúrlegt
og manngert umhverfi, fjölbreytileiki í íbúöagerö-
um, tölrænn grunnur skólahverfa o.s. frv.
Umferðarkerfi, gatnakerfi (flokkun gatna) og raun-
hæfni þess, almenningsvagnakerfi, stígatengsl,
umferðaröryggi og aögengi.
Miösvæöi, þjónusta viö hverfi og nágrenni þeirra.
Útivist, aðgengi íbúa hverfanna og annarra aö í-
þróttasvæöum, grænum svæöum í hverfunum og
náttúrusvæöum í nágrenni.
Tölulegar forsendur rammaskipulags:
Ennfremur voru tillögur metnar meö tilliti til tölu-
legra forsendna, s.s. íbúðafjölda, stæröar íbúöar-
svæöa, þéttleika byggöar o.þ.h. þátta, sem lúta aö
raunhæfni tillögugerðar. Inni í reiknuðum heildar-
stærðum ibúðarsvæöa í forsendum eru stofnana-
svæöi og opin svæði milli hverfishluta.
Niðurstaða dómnefndar var aö tillaga nr. 21, auð-
kennd “15000”, lýsi best farsælum aöferöum til aö
byggja nýjan bæjarhluta í Hafnarfirði í samræmi
viö forsendur keppninnar. Tillagan byggir á "átaka-
lausum" og látlausum hugmyndum, sem innihalda
nauðsynlegan sveigjanleika til frekari ákvarðanna
um skipulag þessara hverfa. Tillöguna einkennir
djúpur skilningur á mikilvægi náttúrulegs umhverf-
is og dómnefnd mælir meö aö skipulagsnefnd hafi
fyrst samráö viö höfunda hennar um framhald
skipulagáætlana.
í dómsoröi um þessa tillögu segir eftirfarandi:
„Höfundur leggur hér fram raunhæfa tillögu sem
byggir á hugmyndum um bæjarskipulag þar sem
byggingar eru hvergi hærri en þrjár hæöir. Byggö-
inni er skipt í 13 svæöi sem hvert um sig getur tek-
iö viö mismunandi deiliskipulagi og húsagerðum.
Öll hafa íbúðarsvæðin góöan aðgang aö stór-
brotnum útivistarsvæðum innan og utan byggöar-
hlutanna og eru umlukin tengibraut. Höfundur
leggur áherslu á miösvæöi í hverfunum þar sem
staösett er samfélagsleg þjónusta s.s. grunnskóli,
safnaðarstarf, gæsluvöllur o.þ.h. Einnig leggur
hann áherslu á tengsl hverfanna viö þjónustu-
svæöi utan tengibrautar þar sem séö er fyrir ann-
arri þjónustu viö íbúa hverfanna og aðra.
RAMMASKIPULAG
Stæröir svæöa:
Ásland 70ha
Grísanes 90ha
Samtals 160ha
íbúöafjöldi
Ásland 950 íbúöir
Grísanes 1000 íbúöir
Samtals 1950 íbúðir
Péttleiki
Ásland 13,6 íbúðir/ha
Grísanes 11,1 íbúöir/ha
Heild 12,2íbúöir/ha
Stæröir skólalóða
(skóli, leikskóli, gæsla):
Ásland 3,5ha
Grísanes 4,5ha
TILLAGA
Stæröir svæöa:
Ásland 77ha
Grísanes 95ha
Samtals 172ha
íbúöafjöldi
Ásland 1034 íbúðir
Grísanes 872 íbúöir
Samtals 1906 íbúöir
Þéttleiki
Ásland 13,4 íbúöir/ha
Grísanes 9,2 íbúöir/ha
Heild 11,1 íbúðir/ha
Stæröir skólalóða
(skóli, leikskóli, gæsla):
Ásland ca.3,5ha
Grísanes ca.3.5ha
Tillagan sýnir meö skýrum og látlausum hætti
raunhæfa heildarmynd. Frávik frá aöalskipulagi
eru veggöng fyrir Reykjanesbraut ofan kirkjugarðs
og veggöng í vesturhlíöum Vatnshlíðar fyrir hluta
ofanbyggöavegar. Góöar hugmyndir sem krefjast
nánari úrvinnslu.
Annað frávik er, aö gert er ráö fyrir aö hluti Grísa-
neshverfis rísi í Hádegisskaröi og á svæöi sem nú
er undir og sunnan háspennulína. í aðalskipulagi
er á þessum svæöum gert ráö fyrir blandaöri byggö
undir lok eöa eftir gildistímabil aöalskipulags.
46