AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Blaðsíða 36
HARALDUR HELGASON ARKITEKT
SIÐAREGLUR ARKITEKTA
byrgð ark
tekta er
margvísleg.
Verk þeirra
eru yfirleitt áberandi í
umhverfinu, og í
byggingar og skipulag
er umtalsverðum fjár-
munum varið. Augljóst
er að ábyrgð arkitekta ei
mikil gagnvart samfélaginu og komandi kynslóð-
um, því að verk þeirra endast gjarnan langan tíma,
jafnvel svo öldum skiptir.
Arkitektar hafa aflað sér sérþekkingar í byggingar-
list og/eða skipulagsfræðum til þess að geta sinnt
umhverfishönnun sem best. Verkkaupi, sá sem
felur arkitekt ákveðið verkefni, treystir honum til
þess að fara vel með þá fjármuni, sem hann er
reiðubúinn að leggja í verkið. Ábyrgð arkitekts
gagnvart verkkaupa er því óumdeilanlega mjög
mikil, og margir verja í byggingar stórum hluta
þeirra tekna, sem þeir afla sér.
Arkitektar bera ennfremur ábyrgð gagnvart starfs-
bræðrum sínum. í lögum Arkitektafélags íslands
segir að tilgangur þess sé að stuðla að góðri bygg-
ingarlist í landinu, efla samvinnu félagsmanna og
standa vörð um hagsmuni þeirra.
Arkitekt, sem rekur teiknistofu og hefur aðra í
nu hjá sér, ber ábyrgð
ignvart launþegum sín-
m og hefur siðferðilegar
skyldur gagnvart þeim.
Honum ber að sjá til
þess að þeir fái notið
reynslu sinnar eins og
því verður frekast við
komið. Arkitekt er hluti
tti hópi hönnuða, þar sem
ýmsir ráðgjafar koma að máli. Hefur hann ábyrgð
gagnvart öðrum í hönnunarhópnum, því að yfirleitt
fer arkitekt með hönnunarstjórn og er mikilvægt að
hann gæti sanngirni gagnvart öðrum ráðgjöfum,
sjái þeim t.d. fyrir upplýsingum og stuðli að góðri
samvinnu þeirra á milli. Á byggingarstað hefur
arkitekt töluverð samskipti við fjölda fagmanna,
sem koma að verkinu. Ber honum þar að rækja
góðan starfsanda og koma fram af sanngirni.
Gildandi siðareglur arkitekta taka einkum á þeim
þáttum, er snerta samskipti arkitekts og verkkaupa
annars vegar og samskipti við starfsbræður hins
vegar. Siðareglur taka hins vegar ekki á ábyrgð
hans gagnvart samfélaginu, og yrði að fara með á-
kæru á slíku broti fyrir almenna dómstóla. Sömu
leið yrði að fara með ákæru gagnvart arkitekt, sem
talinn er hafa gerst brotlegur í samskiptum við aðra
ráðgjafa í hönnunarhópnum eða utan hans, svo og
starfsmenn á byggingarstað.
,yArkitekt er hluti af hópi hönnuða,
þar sem ýmsir ráðgjafar koma að máli.
Hefur hann ábyrgð gagnvart öðrum í
hönnunarhópnum, því að yfirleittfer
arkitekt með hönnunarstjórn og er mik-
ilvœgt að hann gœti sanngirni gagnvart
öðrum ráðgjöfum, sjái þeim t.d. fyrir
upplýsingum og stuðli að góðri sam-
vinnu þeirra á milli.“
Samþykkt um störf arkitekta, siðareglur arkitekta,
var samþykkt á aukaaðalfundi í Húsameistarafé-
lagi íslands 11. maí 1956, og á sama fundi var
samþykkt nafnbreyting á félaginu, sem hefur síðan
heitið Arkitektafélag íslands. Siðareglur arkitekta
gilda einungis fyrir félagsmenn í Arkitektafélagi ís-
lands, sem gangast undir að fylgja þeim ásamt
lögum félagsins. Félagsmaður getur ekki komist
undan því að taka afleiðingum gerða sinna með
því að segja sig úr félaginu, hafi hann verið félags-
maður þegar meint brot var framið. Laganefnd var
ekki til innan A.Í., þegar siðareglurnar voru sam-
34