AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Blaðsíða 76
SIGURÐUR EINARSSON ARKITEKT
Götumynd frá Kirkjustræti.
ALÞINGI
endurbygging og tengibygging
við Kirkjustræti 8b og 10.
Verkkaupi: Aiþingi íslendinga. Arkitektar endurbygging:
Batteríið ehf -arkitektar og Porgeir Jónsson arkitekt.
Arkitektar tengibygging: Batteríið ehf -arkitektar
Raflagnir og lýsing: Verkfræðifyrirtækið Víkingur
Burðarþol og lagnir: Verkfræðistofa Stefáns og Björns ehf
Aðalverktaki: Byrgi ehf
Forsætisnefnd Alþingis tók á árinu 1995
þá ákvöröun í uppbyggingu á Alþingis-
reitnum aö endurbyggja húsin Kirkju-
stræti 8b og 10 til þess aö nýta þau und-
ir starfsemi Alþingis. Kirkjustræti 10 var byggt árið
1879. Húsið, sem stendur á hlöðnum kjallara, er
timburhús meö hlöönum bindingi, ýmist úr hraun-
grjóti eöa múrsteini. Húsiö var upphaflega timbur-
klætt, meö svokallaðri listasúö, en var bárujárnsklætt
í byrjun aldar. Ýmsar aðrar breytingar voru geröar
á húsinu í áranna rás. Þær helstu voru viðbygging
til vesturs og stór kvistur á suöurhliö.
Kirkjustræti 8b var byggt áriö 1905. Húsiö er báru-
járnsklætt timburhús sem reist var á hlöðnum kjall-
ara. Miklar breytingar á jaröhæö, jafnt innanhúss
sem á útliti, höföu verið framkvæmdar um miöja
öldina. Viö þær breytingar höföu buröarbitar veriö
fjarlægðir og var húsiö oröiö talsvert sigiö í miöju.
Viö endurbyggingu húsanna var miöað viö aö færa
húsin í sem næst upprunalega mynd. Markmiðið
var aö nýta húsin undir skrifstofur þingsins en hús-
in eru upphaflega byggö sem verslunar- og íbúö-
arhús. Til aö ná því markmiði sem og kröfum nú-
tímans meö aðgengi, voru gerðar lítilsháttar breyt-
ingar á innveggjaskipan Kirkjustrætis 8b, auk þess
sem aðkoma í húsin var endurskipulögð.
Viöbygging, sem reist var á milli húsanna 1907 í
anda Kirkjustrætis 10, raskaöi mjög ró og hlutföll-
um þess húss. Ákveðið var aö rífa þá viðbygging-
una og reisa í staðinn tengibyggingu sem uppfyllti
kröfur um aðgengi aö húsunum.
Tengibyggingin er sjálfstætt stálgrindarhús á steypt-
um kjallara. Innra fyrirkomulag hennar ræöst alfariö
af þörf. í þessu þrönga sundi er komið fyrir inngangi,
tröppum, lyftu og brúm. Kjallarinn er klæddur grágrýt-
isflísum. Grófhöggnu steinarnir í kjallaraveggjum
Kirkjustrætis 10, grámálaöa pússningin á veggjum
74