AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Blaðsíða 17
Fjölbýlishús i Breiöholti.
sem væru af hóflegri stærö, einföld aö allri gerð og
eins ódýr í byggingu og kostur væri. Þúsundir í-
búöa voru reistar eftir teikningum stofnunarinnar á
næstu áratugum, einkum í dreifbýli. Bera sumir
þéttbýlisstaöir sterkt svipmót af þessari hönnunar-
vinnu. Má nefna Þorlákshöfn og Tálknafjörð sem
dæmi um þaö. Teiknistofan var löngum umdeild og
svo fór að árið 1993 þótti tímabært aö leggja þessa
starfsemi niöur, enda hæfileikaríkir hönnuöir
komnir til starfa um land allt. Engu aö síður má
segja aö þann aldarfjórðung, sem hún starfaöi,
haföi stofan merku og mikilvægu hlutverki aö
gegna, sem eru gerö betri skil annars staöar í
þessu riti.
BYLTING í KJÖLFAR KJARASAMNINGA
Á síöastliönum áratugum hefur átt sér staö bylting
í húsnæðismálum íslendinga; það er óumdeilt.
Einhverjar mestu framfarirnar hafa orðið í tengsl-
um viö gerö kjarasamninga. Sérstaklega var þetta
áberandi á sjöunda ng áttunda áratugnum en þá
átti sér staö grundvallarbreyting í húsnæöismálum
þjóöarinnar.Samningarr. !• 1964 voru hinir fyrstu
þessarar gerðar og voru undanfari mikilla fram-
fara, sem fóru í hönd. Áriö 1964 var mikil áhersla
lögö á húsnæöismál í kjarasamningum. Einn af
fjórum liöum í „Júní-samkomulagi" ríkisstjórnarinn-
ar, Alþýöusambands íslands, Vinnuveitendasam-
bands íslands og Vinnumálasambands samvinnu-
félaganna var, aö aflaö yröi stóraukins fjár til þess
aö auka lán Húsnæöisstofnunar til íbúðarbygg-
inga. Á næsta ári, meö „Júlí-yfirlýsingu" ríkisstjórn-
arinnar og samningum milli aöila vinnumarkaöar-
ins, var lagður grundvöllur aö hinum miklu bygg-
ingarframkvæmdum í Breiöholti, sem kenndar
hafa veriö viö Framkvæmdanefnd byggingaráætl-
unar ríkisins og Reykjavíkurborgar. í kjölfariö var
gerö áætlun um byggingu 1250 íbúöa í Reykjavík.
Samkvæmt henni voru byggðar og afhentar sam-
tals 1251 íbúðir á árunum 1968-80. Þar af voru
200 leiguíbúðir, er komu í hlut Reykjavíkurborgar,
sem var aðili aö byggingaráætluninni. Samhliða
þessum aögeröum var hiö almenna húsnæöis-
lánakerfi styrkt enn frekar meö ýmsum aögeröum.
Áratug síðar var fariö í svipaöar aðgerðir í íbúöar-
byggingum á landsbyggðinni og er þeirra getiö hér
á eftir.
FÉLAGSLEGT HLUTVERK STYRKIST
Þaö kemur skýrt fram í lögum aö Húsnæöisstofn-
15