AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Blaðsíða 86
DR. BJARNI REYNARSSON AÐSTOÐARSKIPULAGSSTJÓRI í REYKJAVÍK
RE YKJ AVIK
vistvæn höfuðborg norðursins
AÐALSKIPULAG REYKJAVÍKUR 1996-2016
Nú stendur yfir kynning á tillögu aö nýju
aðalskipulagi fyrir Reykjavík, Aöal-
skipulag Reykjavíkur 1996 - 2016.
Sýning á skipulagstillögunni hefur
staöiö yfir síöan 3. apríl s.l. og lýkur kynningartíma
30. maí. Hér fer á eftir stutt samantekt á nýjum á-
herslum í tillögunni, forsendum og helstu breyting-
um á landnotkun og aðalgatnakerfi frá gildandi aö-
alskipulagi. Greininni lýkur á stuttum útdrætti úr
greinargerð aöalskipulagsins.
Aöalskipulag Reykjavíkur 1996-2016 er fimmta
staðfesta aöalskipulagiö fyrir Reykjavík og tekur
viö af Aðalskipulagi Reykjavíkur 1990-2010.
Stefnan er að hefja endurskoðun á aðalskipulagi í
upphafi hvers kjörtímabils Aðalskipulagið er 150
bls., greinargerö og landnotkunarkort í mæli-
kvaröa 1: 20.000. Útdráttur úr greinargerð og
þemakort eru prentuö á bakhlið kortsins.
NÝJAR ÁHERSLUR
í þessari endurskoöun er lögö mikil áhersla á um-
hverfismál í samræmi viö Staðardagskrá '21 sem
íslendingar samþykktu ásamt öörum þjóöum á
heimsráðstefnu Sameinuðu þjóöanna í Ríó de
Guörún Ágústsdóttir forseti borgarstjórnar opnar sýningu á aöal-
skipu lagi Reykjavikur í Tjarnarsal ráðhússins 2. apríl.
Janeiró 1992 um umhverfi og þróun. Staöardag-
skrá '21 er ítarleg framkvæmdaáætlun sem tekur
til allra þátta umhverfis- og þróunarmála. Þessari
áætlun er ætlað aö vera leiöbeinandi fyrir alþjóöa-
samvinnu og aðgerðir ríkja í umhverfismálum, sem
miöa aö sjálfbærri þróun.
í aðalskipulaginu eru settar fram nýjar áherslur í
samgöngumálum sem lúta að vistvænni sam-
göngum, umferðaröryggi og vistlegu umhverfi.
Stefnt er aö því að jafnvægi ríki milli allra sam-
göngumáta, þ.e. gangandi, hjólandi og akandi.
Unnin veröur sérstök áætlun um umhverfi og sam-
göngur eftir útgáfu þessa aðalskipulags, með það
markmið að draga úr neikvæðum áhrifum umferö-
ar. Hugtakið „Borgarvernd" er endurskilgreint og
nær nú til mannvirkja í borginni auk hins náttúrlega
umhverfis. Gerö hefur veriö áætlun um húsvernd
og heildarskipulag útivistarsvæöa. Flokkar land-
notkunar og leyfileg starfsemi í hverjum landnotk-
unarflokki eru nú skilgreind nánar en áður hefur
veriö gert.
FRAMTÍÐARSÝN
í aðalskipulaginu er mikil áhersla á framtíðarsýn
og markmiö og leiðir í einstökum efnisþáttum.
Framtíöarsýn aðalskipulagsins í heild er þessi:
Reykjavík veröi vistvæn höfuöborg noröursins.
Höfuðborgin sé öflug miðstöö atvinnulífs, þjónustu
og samgangna í landinu, meö áherslu á hreint yf-
irbragð, verndun umhverfis og nýsköpun í atvinnu-
lífi. Samgöngur veröi öruggar og vistvænni en nú
er. Þær lífgi upp á umhverfið en spilli hvorki því né
heilsu manna. Hér séu góöar almenningssam-
göngur og aölaöandi umhverfi fyrir gangandi og
hjólandi. Fráveitumál styrki hreina ímynd landsins
og uppfylli alþjóölegar skuldbindingar. Hér eigi sér
staö flokkun sorps og endurvinnsla sem samræm-
ist sjónarmiðum um sjálfbæra þróun. íbúðahverfi
státi af ómenguðu og vistlegu umhverfi í góöu
samspili viö landslag og náttúru, sem stuöli að
84