AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Síða 13

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Síða 13
arkitekta, verkfræðinga, tæknifræðinga og bygg- ingamenn; að ógleymdu fólkinu sjálfu, frumkvæði þess og krafti. En samþætting þessa þjóðarátaks og forystuhlutverk hefur, af ríkisins hálfu, verið í höndum Húsnæðisstofnunar. Félagslegur þanka- gangur hefur alla tíð verið grundvallaratriði í starf- semi hennar og hún hefur aldrei haft annarra hagsmuna að gæta en þeirra, að hún gagnaðist þjóðinni sem bezt. ÚRSLITAÁHRIF í ATVINNUMÁLUM Það mætti víða koma við ef hér ætti að telja dæmi um öll þau áhrif, sem stofnunin hefur haft með starfsemi sinni á þjóðlíf hérlendis. Tvisvar hefur hún haft úrslitaáhrif í atvinnumálum þegar djúp efnahagskreppa gekk yfir landið. Fyrra skiptið var á árunum 1967-1969, er ríkisvaldið aflaði henni mikils fjár, til viðbótar hennar eigin, sem hún lánaði til stórfelldra íbúðabygginga, m.a. "FB-fram- kvæmdanna" svonefndu. í síðara sinnið áttu lán- veitingar hennar mjög stóran þátt í að draga úr at- vinnuleysi í efnahagslægðinni djúpu, sem nú er loks nýgengin yfir landið. í bæði skiptin tókst að forða frá miklum ófarnaði, bæði í byggingariðnað- inum og tengdum atvinnugreinum; og þótti samt ýmsum nóg um. Hið sama gerðist í Noregi, þar sem Húsbanki norska ríkisins hélt uppi at- vinnustiginu í byggingariðnaði og hliðargreinum hans. Það gerðist hins vegar hvorki í Finnlandi né Svíþjóð, þar sem lánveitingar hinna ríkisreknu húsnæðisstofnana höfðu verið lagðar niður, með geigvænlegum afleiðingum, m.a. vegna stórfellds atvinnuleysis og stórhækkaðra útlánsvaxta hjá bönkum og sparisjóðum. ÚRELDING ÍBÚÐA Það er eins og sumum finnist, um þessar mundir, að íslendingar hafi „lokið sér af" í húsnæðismálun- um og nú þurfi þjóðin ekki að hugsa um þau aftur í bráð. En það er mikil meinvilla. í raun og veru er aðeins fyrstu umferð lokið og þegar tímabært að hugsa fyrir þeirri næstu. Á komandi áratugum og á næstu öld hlýtur að eiga sér stað gerbreyting á húsakosti landsmanna. Bæði mun mikill fjöldi í- búða ganga úr sér; íbúðir, sem voru misjafnlega hannaðar og byggðar af vanefnum, vegna skorts á byggingarefnum, fjármunum og verkþekkingu. Þær eru börn síns tíma og því hlýtur ýmis gangur að vera á því hve vel þær henta fjölskyldum sam- tímans og framtíðarinnar. Þeir tímar fara í hönd, að úrelda þarf mikinn fjölda slíkra íbúða og reisa aðr- ar í staðinn, sem sniðnar eru að þörfum og sjónar- miðum ungra fjölskyldna, bæði hvað varðar innra skipulag, útlit, nánasta umhverfi og reksturskostn- að. Að sjálfsögðu þarf ríkisvaldið að hafa frum- kvæði og forystu um þá þróun, a.m.k. er harla ólík- legt að viðskiptabankarnir hafi burði til þess. Og þá þarf sú stofnun að vera fyrir hendi, sem getur ann- azt það verkefni, m.a. í nánu samstarfi við sér- fræðingafélögin í þessari atvinnugrein. FRAMTÍÐARHLUTVERK Húsnæðisstofnunin stendur frammi fyrir stórfelld- um verkefnum á þeim tímum, sem í hönd fara. Hún þarf að beita sér fyrir: ■ vandaðri íbúðahönnun, samfara hóflegum byggingarkostnaði íbúða; ■ endurbótum á eldra íbúðarhúsnæði og úreld- ingu þess, sem ekki svarar lengur kröfum tím- ans; ■ því, að þjóðin öll búi við sem mestan jöfnuð varðandi gæði húsnæðis, verð og kostnað við rekstur þess, er fari ekki yfir hófleg mörk; ■ því, að ungu fólki gefist kostur á að byggja / kaupa almennar fjölskylduíbúðir á viðráðanleg- um kjörum með húsnæðislánum, sem unnt er að greiða niður með launum fyrir eðlilegan vinnutíma; ■ því, að sérstakir hópar (s.s. gamalt fólk, náms- menn, öryrkjar, einstæðingar með börn, o.fl.) fái sem hagstæðasta úrlausn sinna mála; ■ því, að nánasta umhverfi íbúða í byggðarlögun- um verði fegrað og friðað, svo að fólk geti notið þar góðs og vandaðs mannlífs, án skarkala og mengunar; ■ því, að byggingarlist hérlendis fái stóraukið vægi, einkum í húsnæðismálum og nánasta umhverfi íbúða í byggðarlögunum; ■ því, að skipulagning íbúðahverfa og gerð íbúða taki meira mið af því erfiða, norðlæga veðurfari, sem landsmenn búa við. Öllum þessum mikilvægu markmiðum verður ekki sinnt nema fyrir hendi sé öflug ríkisstofnun, er hafi þau á sinni könnu, í náinni samvinnu við hlutaðeig- andi aðila, svo sem verið hefur. Svo mikið er a.m.k. víst, að ef svo verður ekki, er hætt við að margt fari á verri veg, svo sem gerðist í Finnlandi og Svíþjóð. Vonandi ber íslenzka þjóðin gæfu til að reka áfram, um ókomin ár, þá velferðarstefnu í húsnæðismál- um, sem gert hefur verið til þessa. Þá mun henni farnast vel. ■ 11
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.