AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Síða 18

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Síða 18
un ríkisins er ein af velferðarstofnunum þjóðfélags- ins. Sú stoð var styrkt með lögum frá 1965 þegar stofnunin fékk heimild til að veita Öryrkjabandalagi íslands lán til byggingar á leiguhúsnæði í kaup- stöðum og kauptúnum. Síðar var þessi heimild aukin svo hún næði einnig til aldraðra og annarra félaga öryrkja. Fyrstu lánssamningar voru gerðir 1968 vegna fyrsta áfanga í byggingum Öryrkja- bandalags íslands við Hátún í Reykjavík, sem allir landsmenn þekkja. Á þessum aldarfjórðungi, sem liðinn er frá fyrstu lánveitingunum, hefur orðið bylt- ing í húsnæðismálum öryrkja og aldraðra. Má ætla að samkvæmt þessari lagaheimild og þeim, er síð- ar komu, hafi um eða yfir 1.000 íbúðir verið byggð- ar, með tilstyrk stofnunarinnar. Félagslegt hlutverk stofnunarinnar var styrkt enn frekar með lögum frá 1970 um Húsnæðisstofnun ríkisins en þá var gerð grundvallarbreyting á skipu- lagi verkamannabústaðakerfisins. Byggingarsjóð- ur verkamanna var fenginn húsnæðismálastjórn til forsjár og fluttur til stofnunarinnar. Með þessu varð sú meginbreyting, að öll opinber afskipti af íbúðar- byggingum, nema lánveitingar úr Stofnlánadeild landbúnaðarins, voru færð undir eina stjórn. Hús- næðisstofnun annaðist þar með veitingu lána úr báðum byggingarsjóðunum, þ.e. Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna. Þrátt fyrir veigamiklar breytingar á lögum um verkamanna- bústaði var megininnihald laganna hið sama og áður, þ.e. að aðstoða launafólk til að eignast hús- næði. Árið 1970 höfðu verið byggðar 1.748 íbúðir í verkamannabústöðum. Félagslegar íbúðir á ís- landi, frá upphafi, eru nú taldar samtals um 11.000 íbúðir eða tæplega 11% af heildaríbúðareign landsmanna. FÉLAGSLEGUM ÍBÚÐUM FJÖLGAR Árið 1973 urðu breytingar á lögum um Húsnæðis- stofnun ríkisins, sem fólu það í sér að sveitarfélög, sem ekki áttu kost á að byggja sams konar íbúðir og Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar frá ár- inu 1965, gátu byggt leiguíbúðir með sambærilegu lánshlutfalli. Gert var ráð fyrir að byggðar yrðu allt að 1.000 leiguíbúðir á 5 árum á vegum sveitarfé- laga utan höfuðborgarsvæðisins. Teiknistofu Hús- næðismálastofnunar var falið að annast kostnað- areftirlit með framkvæmdum þessum en alls voru byggðar 849 leiguíbúðir samkvæmt þessum lög- um. Þremur árum síðar var lögum um leiguíbúðir sveitarfélaga breytt á þann veg að sveitarfélögum var heimilað að selja leiguíbúðirnar á almennum markaði. Sveitarfélög urðu þó að eiga a.m.k. 20% íbúða ef byggðar höfðu verið fleiri en fimm íbúð- ir. Miklar breytingar urðu á starfsemi teiknistofunn- ar með þessu nýja verkefni ásamt því að hlutverk hennar breyttist og fékk heitið tæknideild. Nánar er sagt frá þessu annars staðar í tímaritinu. Upp- byggingu á félagslegu húsnæði var haldið áfram. í kjölfar samninga milli aðila vinnumarkaðarins í febrúar 1974 gaf ríkisstjórnin út yfirlýsingu, þar sem segir m.a., að íbúðarbyggingar fyrir efnalítið fólk skuli auknar og að því stefnt, að eigi minna en þriðjungur af áætlaðri byggingarþörf landsmanna yrði framvegis byggður á félagslegum grundvelli. Við undirritun kjarasamninga milli ASÍ og vinnu- veitenda í febrúar 1976 var yfirlýsingin frá 1974 á- réttuð af þeirri ríkisstjórn, sem þá var tekin við völdum. Það markmið, að þriðjungur allra íbúða í landinu yrði byggður á félagslegum grundvelli, var síðan tekið inn í ný lög um Húsnæðisstofnun frá árinu 1980. Annað stórátak í byggingu íbúðarhúsnæðis, þar sem stofnunin kom mikið við sögu, var eftir eldgos- ið í Vestmannaeyjum hinn 23. janúar 1973. Ham- farirnar eyðilögðu þriðjung af öllu íbúðarhúsnæði í Eyjum og varð til þess, að um 2500 manns þurftu að yfirgefa heimili sín. Fyrirmynd að þeirri bygging- aráætlun voru Breiðholtsframkvæmdirnar frá 1965. Húsnæðismálastjórn afgreiddi umsóknir frá bæjarstjórn Vestmannaeyja um framkvæmdalán úr Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna til almennra íbúðabygginga og fé- lagslegra íbúða af ýmsu tagi, sem allar voru byggðar innan ramma áætlunarinnar. ÝMSAR GRUNDVALLARBREYTINGAR í júlí 1980 tók gildi ný löggjöf, lög nr. 51/1980, um Húsnæðisstofnun ríkisins. Með henni voru gerðar margar grundvallarbreytingar á húsnæðismálum landsmanna og starfsemi stofnunarinnar. Mark- miðið í kjarasamningunum 1974 um að stefnt skuli að því, að þriðjungur allra íbúða í landinu verði byggður á félagslegum grundvelli, var tekið inn í lögin. Nafni stofnunarinnar var breytt úr Húsnæð- ismálastofnun ríkisins í Húsnæðisstofnun ríkisins. Með sömu löggjöf voru veittar nýjar lánveitinga- heimildir, sem ýmist voru ekki áður fyrir hendi eða mjög nýjar af nálinni, jafnframt því sem eldri heim- ildir voru í sumum tilfellum mjög auknar. Má nefna sem dæmi lán til orkusparandi framkvæmda við 16 j
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.