AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Side 38

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Side 38
angri. Á aðalfundi A.í. 1991 greindi formaður frá til- lögum stjórnar um að kjósa sérstaka siðanefnd fé- lagsins, sem m.a. skyldi endurskoða reglurnar með hliðsjón af gildandi siðareglum norrænu arki- tektafélaganna. Var tillagan samþykkt, en ekkert varð þó úr því að henni yrði framfylgt. Málinu var þó haldið vakandi, og á aðalfundi 1993 var tillaga stjórnar samþykkt um að siðanefnd skipuðu þrír fyrrverandi formenn félagsins. Er siðanefnd ráð- gjafarnefnd stjórnar, sem beinirtil hennar málum til úrvinnslu, en stjórn afgreiðir þau með formlegum hætti. Siðanefnd Arkitektafélagsins hefur fengið nokkur mál til umfjöllunar. Ljóst er, að gildandi siðareglur eru ekki lengur í takt við tímann, og var því farið í gang með viðamikla endurskoðunarvinnu. Drög að nýjum siðareglum Arkitektafélagsins hafa verið kynnt á tveimur félagsfundum síðast liðið haust, og eru þau enn í mótun. Stefnt er að því að afgreiða þau nú í vetur. Er gert ráð fyrir því að siðanefnd starfi sjálfstætt og án þess að stjórn komi þar nærri eftir að siðanefnd hefur fengið þau til meðferðar. Málsaðilar geta hins vegar áfrýjað úrskurði siða- nefdar til sérstakrar áfrýjunarnefndar telji þeir úr- skurð siðanefndar óréttlátan. Fær slíkt mál þá flýti- meðferð hjá áfrýjunarnefnd. Þá er gert ráð fyrir því að siðanefnd greini í tímariti félagsins frá málum, er hún kveður upp úrskurð í, svo að félagsmönn- um gefist kostur á því að fylgjast með túlkun nefnd- arinnar á siðareglunum. Sé um alvarlegt brot á siðareglum að ræða eða ef viðkomandi hefur ítrek- að gerst sekur við reglurnar, mun nafn hins sak- fellda verða birt, en annars verður ekki um nafn- birtingu að ræða. Ljóst er að á tímum hraðra breytinga og vegna að- ildar íslendinga að margvíslegum alþjóðlegum sáttmálum, verður að gera ráð fyrir því að endur- skoða verði siðareglur títt, og nær engar líkur eru til þess að nýjar siðareglur arkitekta geti gilt lítið breyttar næstu fjóra áratugina. ■ Cluggar smíbabir úr uPVC efni þurfa ekkert vibhald. uPVC efni er hvítt plastefni sem formaö er í prófíla. Viö höfum smíöaö glugcja, huröir, sólstofur, veggeiningar og fleira ur uPVC efni síöan 1985. Efniö stenst íslenska veöráttu fullkomlega. Þaö þolir vel breytilegt hita- og rakastig. Þrútnar hvorki né springur og heldur alltaf útliti sínu. Hagkvœm og varanleg lausn íslensk framleibsla J Gluggar og Garðhús ht ---Dalvegi 4 Kópavogi S 554 4300- íslenska útvarpsfélagib uPVC gluqga og huröir þarf aldrei aö mála því efniö helst alltaf sem nýtt og því er viöhald í lágmarki. Hveragerbi Kríuhólar 2 36

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.