AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Page 46
BOÐKEPPNI
UM
skipulag ný-
byggingat*-
svæða í
ÁSLANDI OG
GRÍSANESI,
Hafnarfirði
Samkeppnissvæöiö Ásland og Grísanes.
Uppbygging íbúöarbyggöar á undan-
förnum árum í Hafnarfirði hefur veriö
mun meiri en áætlanir gildandi aðal-
skipulags 1980-2000 geröu ráð fyrir.
Fjöldi íbúða, sem byggöar voru á ári hverju var allt
aö þrefalt meiri i en ráö var fyrir gert. Vinna aö nýju
deiliskipulagi hefur þó ekki sem skyldi haldist í
hendur viö hraöan vöxt byggðar. Einsýnt var orö-
ið á síðastliðnu ári aö skortur yröi á byggingarlóð-
um fyrir fjölbreytilegar húsagerðir áöur en langt um
liði. Næsti áfangi í uppbyggingu bæjarins er aö
auki afdrifaríkt skref suður fyrir Reykjanesbraut í
fjölbreytilegt og viökvæmt landslag beggja vegna
Ástjarnar. Því ákvaö bæjarstjórn Hafnarfjarðar í
samræmi viö tillögu skipulagsnefndar aö boöa til
samkeppni um hugmyndir aö úrlausnum fyrir
deiliskipulag nýbyggingarsvæöa í byrjun apríl s.l.
Fyrir lágu vel mótuö áform aðalskipulags og
rammaskipulag fyrir þessi svæöi unnin af Birni S.
Hallssyni arkitekt og bæjarskipulagi Hafnarfjarðar
árin 1993 og 1994. Ákveðið var í samráði viö sam-
keppnisnefnd og í samræmi viö samkeppnisreglur
Arkitektafélags íslands aö boöa til lokaðrar sam-
keppni fimm fyrirtækja um þetta verkefni.
Dómnefnd álítur aö niöurstaöa keppninnar sýni aö
hún hafi tekist vel. Dómnefnd hefur fengiö tæki
færi til aö fá skýra sýn á byggðir framtíðarinnar í
nágrenni Ástjarnar, Ásfjalls og Grísaness. Þær til-
lögur sem hér eru til umfjöllunar hafa jafnframt sýnt
dómnefnd aö aldrei veröi fullyrt aö ein leiö eöa út-
færsla á skipulagi byggöar sé sú eina rétta. Ólík
sjónarmið, áherslur og aöferðir opna nýjar leiðir og
lýsa þannig fjölbreytileika í mótun byggöa.
í greinargerð þessari er leitast viö aö lýsa þeim fjöl-
breytileika og styrk, sem tillögurnar fjórar hver um
sig hafa fram aö færa. Leitast er viö aö leiðbeina
þeim sem um viðfangsefnið vilja fræöast. Megin -
markmið verkefnisins er aö upplýsa þá sem fjalla
munu um þessar niöurstööur til að stýra uppbygg-
ingu á nýbyggingarsvæöum á næstu tveimur ára-
tugum.
Dómnefndinni hefur reynst þessi vinna lærdóms-
ríkur ferill til aö skynja flókið samhengi þess aö
byggja nýjan bæjarhluta í óbyggöu og fögru lands-
lagi. Einnig er Ijósari sú ábyrgö sem hvílir á þeim
sem viö þessu verkefni taka til frekari úrvinnslu.
Er þaö sannfæring dómnefndar aö þessi greinar-
gerö dómnefndar meö greinargerðum keppenda
ásamt tillögum þeirra geti orðið gott vegarnesti á
þeirri leiö. Daníel Pétursson, formaöur dómnefnd-
ar.
44