AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Side 33

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Side 33
Sögu verður sú ákvörðun tekin á forsendum ráð- stefnuhaldara og Bændasamtakanna. Er lóðin nægilega stór? Hvar verður húsbóndavaldið? Verður hægt að koma fyrir tónlistarhúsi þarna svo það njóti sín og hvernig er umferðarmálum þarna háttað í dag? Verður hægt að koma í veg fyrir um- ferðaröngþveiti sem þarna mun myndast þegar ráðstefnur, bíósýningar og tónleikar verða samtím- is? Kannski eru þetta óþarfar áhyggjur. GAMLI MIÐBÆRINN Það er ekki vafi á að ef lóð finnst undir tónlistarhús í Gamla miðbænum mun tónlistarhús verða mikil lyftistöng fyrir hann. Sydney - hugmyndin hefur oft- ast verið inni í umræðunni og er þá átt við að stað- setja húsið niður við höfnina. Ef þarna er til lóð og hugsanlega er hún þarna ef grannt er skoðað, verða menn að sjá til þess að tónleikagestir og hugsanlegir ráðstefnugestir komist þurrum fótum inn í húsið. Reynsla undirritaðs af hafnarsvæðinu sem skútuskipstjóra er að oft gengur sjór yfir hafn- argarða og vindar verða miklir í norðan- og austan- átt. Óneitanlega mun tónlistarhús í Gamla mið- bænum vera glæsilegur kostur bæði fyrir þennan bæjarhluta og húsið sjálft. NÝJAR HUGMYNDIR Hvað með aðrar hugmyndir. Heyrst hefur að menn leiti að nýjum lóðum undir tónlistarhús og beinist leitin að gamla Miðbænum. En hvað með að tengja tónlistarhús annarri menningarstarfsemi. Listaháskólinn er búinn að vera lengi í burðarliðn- um. Undir hann var S.S.- húsið keypt fyrir nokkrum árum en það er staðsett við Laugalæk. Laugar- nestangi er opið svæði þar sem Listasafn Sigur- jóns er staðsett auk þess sem þarna eru nokkrar skemmur austan við listasafnið. í þjóðarsálinni á Rás 2 ekki alls fyrir löngu hringdi inn maður og stakk upp á að staðsetja tónlistarhúsið á Laugar- nestanganum þar sem hann sagði að nægt land- rými væri fyrir slíkt hús. Tenging tónlistarhúss við listaháskólann með brú yfir Kleppsveginn yrði mik- il lyftistöng fyrir báðar þessar stofnanir. Samnýting tónlistardeildar háskólans við tónlistarhúsið hvað varðar aðstöðu s.s. æfingarherbergi, tónleikasali, tónlistarbókasafn, nótnasafn, hljóðver og fleira væri af hinu góða. Þá mætti hugsa sér þarna einn- ig hljóðfærasafn en fjöldi merkra hljóðfæra er í eigu íslendinga. Þá gæti tónlistarhús verið lifandi vettvangur myndlistarsýninga o.s.frv. Menningar- miðstöð á Laugarnestanga? Glæsileg staðsetn- ing. Mjög spennandi en seinni tíma framkvæmdir hafa hugsanlega eyðilagt þessa hugmynd. AÐSTAÐA TÓNLISTARMANNA En til hvers að vera að velta sér upp úr þessu öllu ef ekki stendur til að byggja tónlistarhús heldur ráðstefnuhús. Ráðstefnuhús verður það ef tónlist- armenn verða ekki á varðbergi og gæta hagsmuna tónlistarinnar. Tónlistarmenn hafa í rúmlega fimm- tíu ár barist fyrir tónlistarhúsi og finnst nú að þeim komið. Tónlistarmenn hafa unnið vel í sínu fagi og unnið marga sigra á undanförnum árum. Það fer ekki á milli mála að íslenskir tónlistarmenn stand- ast alþjóðlegan samanburð og er þá ekki átt við fólksfjölda. Nú verður að sjá svo um að þarfir okk- ar verði hafðar alfarið í forgrunni, annað er ekki ásættanlegt. En hverjar eru þær? AÐBÚNAÐUR? Tveir salir. Annar sem tekur 12-1400 manns í sæti og hinn sem tekur allt að 600 manns. Hljómburður verður að vera eins og best verður á kosið. Hljóm- rými verður að vera mikið. Tónlistarmenn þurfa allt of oft að vinna við aðstæður þar sem hljómburður er slæmur, lítið rými, of fáir m2 og m3 sem kemur niður á gæðum tónlistarinnar og hefur neikvæð áhrif á heyrn hljóðfæraleikarans og samleik inn- byrðis. Æfingaherbergi með góðum hljómburði fyr- ir allar tegundir tónlistar ásamt geymslum og að- stöðu þar sem hljóðfærum er pakkað og hitað upp fyrir æfingar eða tónleika. Kaffi- og matsalur þar sem hægt er að horfa út um glugga og lofta út. Nægjanlegt rými fyrir stóra hljómsveit og kór án þess að til vandræða komi. Sú aðstaða sem tón- listarmenn hafa í Háskólabíói er gluggalaus, loft- laus og hefur niðurdrepandi áhrif á starfsanda þeirra sem þar starfa. Á ráðstefnu sem haldin var í York á Englandi og bar yfirskriftina Health and the Musicians kom fram að nauðsynlegt sé að búa þannig að tónlistarmönnum að þeim líði vel and- lega og líkamlega svo þeir geti staðið undir þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra í starfi sem er mjög krefjandi. AÐSTAÐA TÓNLEIKAGESTA Anddyri þarf að vera aðlaðandi og þar þarf að vera rúmt um gesti sem mæta á tónleika. Veitingaað- staða þarf að vera í anddyrinu og þannig skipulögð að ekki myndist raðir eða örtröð í hléum eða fyrir tónleika. Það sama á einnig að gilda fyrir geymslu 31

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.