AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Page 44
að skipulag slíks verkefnis fer mjög eftir því fjár-
magni sem til þess á að verja.
Frá upphafi hefur verið gert ráð fyrir að fjár yrði afl-
að víða. Fjár til verkefnisins á að afla frá borgaryf-
irvöldum, frá ríkisvaldi og frá einkaaðilum. Miðað
er við að sérstakur sjóður verði settur á laggirnar
og í hann renni öll framlög hvort sem þau koma frá
borg, ríki eða einkaaðilum. Mikil vinna er því
framundan að ná til styrktar- og kostunaraðila inn-
an lands og utan.
AÐ SKAPA NÝTT
Tíminn líður hratt. Nú er einungis 21 mánuður þar
til árið 2000 rennur upp. Þann tíma verður að nota
vel. Þegar á þessu ári verða að koma til viðbótar-
fjárveitingar frá Reykjavíkurborg til að hægt sé að
hefja fyrir alvöru undirbúning fjölmargra þeirra
verkefna sem hugmyndir hafa verið settar fram
um. Þó að við séum stolt af því sem til er í dag þá
hljótum við að setja markið hærra. Markmiðið með
menningarborgarári á ekki aðeins að vera að sýna
það sem til er heldur að skapa nýtt. Hlutverk stjórn-
ar M-2000 er ekki einungis að standa fyrir verkefn-
um heldur ekki síður að styðja og styrkja verkefni
og hugmyndir einstaklinga, félaga og stofnana og
fella inn í heildardagskrárramma ársins. Markmið-
ið með menningarborgarárinu er að örva listsköp-
un og auðga menningarlífið í víðtækum skilningi
þess orðs. Viðburðir ársins verða að ná til almenn-
ings þannig að hinn almenni borgari verði þátttak-
andi en ekki fjarlægur áhorfandi. Hátíðin 2000
verði hátíð almennings sem skilji eftir sig þá tilfinn-
ingu að lista- og menningarstarfsemi á að vera
samofin mannlífinu, en ekki afgangsstærð. Ef
skilningur á því verður orðinn almennur árið 2001
er það árangur sem mun skila sér vel á nýrri öld. ■
LINDAB útveggjakerfið er: Traustur og einfald-
ur byggingarmáti • Allt að 65-75% styttri byggingar-
tími • Allt efni fyrirfram sniðið og tilbúið á bygg-
ingarstað • Lítið umfang efnis og létt í meðförum
• Byggingarmáti óháður veðurfarslegum skilyrðum
•TRAUST
•EINFAII
•VARANLEGT
LINDAB
útveggjakerfið:
Dregur ekki
í sig raka • Hefur minni
kuldaleiðni en timbur • Er ekki
unnið úr heilsuspillandi efnum
• Heldur ávallt upprunalegri
lögun • Er eldtraust •
Hafiö óhikað samband •
við sérfróða tœknimenn =
okkar og fáið upplýsingar j
TÆKNIDEILD iKhjfK
30S~
Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavík
Sími 587 5699 • Fax 567 4699
42