AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Page 51

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Page 51
svæðisins að framkvæma verkið. Þetta atferli hugsa ég að sé ekki mögulegt fyrir alla arkitekta fjárhagslega séð. Meðal margra verka arkitekts- ins, er „Rokko Houses" íbúðareiningarnar, sem Tadao lagði til borgaryfirvalda. Þessar íbúðir urðu fyrir miklum skemmdum í jarðskjálfta. En fallegustu byggingar eftir arkitektinn Tadao eru án efa kirkjulegs eðlis. Kirkja vatnsins i steingarð- inum, eins og Tadao sjálfur kallar hana, er staðsett fyrir framan stöðuvatn, þar niðri í er staðsettur kross. Frá kirkjunni sést landslag með skógi og fjöllum. Yfir vetrartímann er hægt að njóta landslagsins samt sem áður, í gegnum glugga með kross í miðj- unni. Önnur kirkja, kölluð kirkja Ijóssins, andstætt fyrri kirkjunni, hleypir birtunni í gegnum op sem er kross í laginu, birtan endurspeglast i loftinu eftir tíma dagsins. Hof vatnsins: þar er um að ræða tjörn, þar sem á fljóta 500 lótusblóm, tákn búdd- isma. Stigi sem virðist fara niður í vatnið, þar sem er inngangur hofsins. Þetta búddiska hof var í upp- hafi gagnrýnt af trúarleiðtogum, en fljótlega kom í Ijós að hofið dró til sín fjölmarga ferðamenn, því ákvaðu þeir að láta borga aðgangseyri (jafnvel þó að Tadao væri ekki sammála). Byggingin stóðst með ágætum jarðskjálfta. Inn í hofið kemur rautt Ijós frá litlum hliðargluggum, birtan gerir umhverfið mjög leyndardómsfullt. Síðasta slædsmyndin sýnir vinnustofuna, sem er í fimm hæða byggingu, svo eru tvö kýraugu þar sem hundur Tadaos, sem heitir Le Corbusier, get- ur kíkt út. Vinnustofa Tadaos er staðsett nálægt innganginum, segir hann sjálfur að það sé til að fylgjast með, að arkitektarnir hans fari ekki út fyrr en vinnutími þeirra sé búinn. Teikniborð Tadaos er undir stiganum, til að sam- starfsmenn hans geti hallað sér fram, og hlustað þegar meistari þeirra kallar á þá. Þegar fyrirlestrinum er lokið, flýtir Tadao Ando sér í burtu, með liðsmenn sína í nálægð, svo að aðdá- endur hans komist ekki nálægt honum. Af tilviljun komumst við inn í herbergi, þar sem er staddur Tadao, nokkrir stjórnarerindrekar og prófessorar. Biðjum um að fá viðtal, en hann neitar. Tökum nokkrar myndir og förum svo í burtu. ■ TONLEIKAR TIL VORSINS 5. febrúar Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari Einleikari: Thorleif Thedéen jean Sibelius, Sinfónía nr. 6 Hafliöi Hallgrímsson: Herma, sellókonsert Wolfgang A. Mozart: Sinfónía nr. 36, K 425 19 febrúar Hljómsveitarstj.: Guöni Emilsson Kynnir: Hákon Leifsson Glæsileg hljómsveitarverk sem kynnt veröa á tónleikunum 5. mars Hljómsveitarstjóri: Jurjen Hempel Hafliöi Hallgrímsson: Hljómsveitarmyndir op. 19 Carl Nielsen: Sinfónía nr. 5 12., 13. og 14. mars „West End" Hljómsveitarstjóri: Martin Yates Einsöngvarar: Deborah Myers, Kim Criswell, Andrew Halliday og james Graeme Söngleikjatónlist m.a. úr Vesalingunum, Cats, Evita, Miss Saigon, Oliver ofl. 19. mars Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari Einsöngvari: Andrea Catzel Richard Strauss: Don juan Richard Strauss: Fjórir síöustu söngvar W. Lutoslawski: Konsert fyrir hljómsveit 2. og 4. apríl Hljómsveitarst.: Paul W. Griffiths Einsöngvari: Sigrún Hjálmtýsd. Óperutónlist m.a. eftir Mozart, Rossini, Bellini, Donizetti, Verdi ofl. 7. maí Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari Einieikari: Guöný Guömundsd. Richard Wagner: Lohentjrin, forspil oð 7. þœtti Páll P. Pálsson: Fiölukonsert Alexander von Zemlinsky: Hafmeyjan 14. maí Hljómsveitarst: Ole Christian Ruud Einleikari: Bella Davidovich Ludwig van Beethoven: Egmont, forleikur Ludwig van Beethoven: Píanókonsert nr. 3 Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 6 5. júní Listahátíö í Reykjavík Hljómsveitarst.: Yan P. Tortelier Einleikari: Viviane Hagner Gabriel Fauré: Pelléas & Mélisande Alban Berg: Fiölukonsert Maurice Ravel: Gœsamamma, svíta Paul Hindemith: Symphonic Metamorphoses (?) I SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS I Háskólabíói við Hagatorg Sími: 562 2255 Fax: 562 4475 Nánari upplýsingar á sinfóníu- vefnum: www.sinfonia.is

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.