AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Qupperneq 69
g
CD
NORDREGIO
Nordregio (Nordic Centre för Spati-
al Development) er ný norræn
stofnun sem Norræna ráðherra-
nefndin kom á fót þ.1. júlí árið
1997. Með stofnun Nordregio
sameinuðust tvær norrænar
stofnanir, Nordplan (Nordiska Institutet för Sam-
hállsplanering) og NordREFO (Nordiska Institutet
för Regional Politisk Forskning). í ársbyrjun 1998
bættist þriðja stofnunin við, NOGRAN (Den Nor-
diska Gruppen för Regional Analyse). Nordregio
byggir því á 30 ára reynslu í skipulags- og byggða-
málum sem fengist hefur með starfi þessara
þriggja stofnana.
Nordregio mun fást við það sem mætti kalla dreif-
ing og þróun í rými (spatial development - rumlig
udvikling) í víðri merkingu, þ.m.t. byggðastefnu og
eðlisrænt skipulag. Stofnunin mun beita sér fyrir
rannsóknum á þessu sviði, kennslu, gagnasöfnun
og varðveislu gagna sem nýta má í stefnumótun
og við ákvarðanatöku. Reynt verður að sjá til þess
að sem flestir geti notið þess sem stofnunin hefur
upp á að bjóða. Nefna má að Nordregio gefur út
The Nordic Journal of Regional Development and
Territorial Policy.
Með stofnun Nordregio, starfi stofnunarinnar og
með því að ekki mun aðeins verða litið til Norður-
landanna heldur og til Evrópu allrar er viðurkennt
að þróun byggðamála og skipulags í einu landi er
háð umheiminum. Á sama hátt og
skaðleg áhrif á umhverfið fara ekki eft-
ir pólitískum landamærum eru svæði
og sveitarfélög háð því sem skeður
annarsstaðar í veröldinni.
í framtíðarsýn fyrir Nordregio er þess
vænst m.a. að stofnunin geti orðið
leiðandi í Evrópu sem miðstöð rann-
sókna og kennslu á sínu sviði og að
með starfi hennar náist að tengjá sam-
an stjórnmál, stjórnsýslu, rannsóknir
og kennslu. Auk starfsmanna Nor-
dregio hefur stofnunin net rannsókn-
armanna og opinberra starfsmanna
frá öllum Norðurlöndunum sér til að-
stoðar.
Stjórn Nordregio, sem er útnefnd af Norrænu ráð-
herranefndinni, er skipuð fimm fulltrúum, einum
frá hverju Norðurlandanna, og þremur áheyrnar-
fulltrúum frá löndum með heimastjórn auk fulltrúa
starfsmanna stofnunarinnar. Fulltrúi íslands í
stjórninni er Sigurður Guðmundsson, forstöðu-
maður Þróunarsviðs Byggðastofnunar, og vara-
maður hans er Þorvaldur S. Þorvaldsson, skipu-
lagsstjóri Reykjavíkur.
Stjórnin hefur skipað sérfræðingaráð sér til að-
stoðar. Fulltrúar í ráðinu koma frá háskólum og op-
inberri stjórnsýslu, þ.m.t. ráðuneytum og skipu-
lagsstofnunum. Noregur, Danmörk, Finnland og
ísland eiga hvert um sig þrjá fulltrúa í ráðinu og
Grænland, Færeyjar og Áland hvert tvo fulltrúa.
Fulltrúar íslands í sérfræðingaráðinu eru Stefán
Thors, skipulagsstjóri ríkisins, sem er varaformað-
ur ráðsins, Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, sviðsstjóri
á Borgarskipulagi Reykjavíkur, og Trausti Valsson,
dósent við Fláskóla íslands. Sérfræðingaráðið
kom saman í fyrsta skipti í febrúar 1997. Drög að
viðamikilli vinnuáætlun ráðsins hafa verið lögð
fram. Fulltrúar í stjórn og sérfræðingaráði eru til-
nefndir af forsætisráðuneytinu.
Starf Nordregio er stutt á veg komið enn sem kom-
ið er. Starfsmannafjöldi þess fer vaxandi og hafa
sex nýjar rannsóknarstöður í m.a. byggðamálum
og umhverfi borga verið auglýstar. Nordregio hef-
ur aðsetur í Stokkhólmi. Þeir sem óska eftir að fá
frekari upplýsingar um stofnunina og starfsemi
hennar geta snúið sér til Liselott Happ-Tillberg,
Nordregio, Box 1658, SE-111 86 Stockholm, fax +
468 463 5401. ■
o=
3J
O
67
R. GUÐLAUGSDÓTTIR, SKIPULAGSFRÆÐINGUR BORGARSKIPULAGI REYKJAVIKUR