AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Blaðsíða 71

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Blaðsíða 71
sýndi Guöjón bæöi málverk og skúlptúra. Sýning- in öll var unnin út frá ströngum formreglum þótt vissulega ætti hiö óvænta nokkurn þátt í sýning- unni, því stál-skúlptúrarnir höföu bókstaflega veriö sprengdir sundur með dínamíti. Verkin á sýning- unni voru þannig undarlegt samspil af vandlega ígrunduöum formalisma og óbeisluöum krafti, hreinni og tímalausri afstraksjón og jaröbundinni raunhyggju sem tengir verkin ákveönum staö í veruleikanum. Þau eru til vitnis um sköpunarferli sem er hvorki meö öllu hamiö né algjörlega tilvilj- anakennt. Útkoman er aö sama skapi ekki einhlít: annars vegar má segja aö sýningin hafi boriö ró- legt og fágaö yfirbragö, en hins vegar er ekki laust viö aö áhorfandinn finni fyrir ótta. Þaö er eitthvað hættulegt og stjórnlaust viö verkin, hversu vand- lega úthugsuö sem þau kunna aö virðast. Það samspil strangs formalisma og óreiöu sem er svo áberandi í skúlptúrunum er líka aö finna í mál- verkunum. Guöjón sýndi málverk sem unnin eru eftir hreinni flatarmálsfræði - afstrakt úrvinnslur á þeim möguleikum sem felast í einföldustu formum, krossum og hreinum hornum. Þessar myndir minna kannski einna helst á málverk bandaríska listamannsins Ad Reinhardts frá sjötta áratugnum, án þess þó aö líkja eftir þeim. Viö hliöina mátti síð- an sjá málverk sem einkenndust líkt og skúlptúr- arnir af óreiöu eða sjálfsprottnum lífrænum form- um; þau viröast vera niðurstaða einhvers ferlis sem er ekki alfarið á valdi listamannsins. Spennan milli þessara ólíku mynda var einmitt helsta ein- kenni sýningarinnar, spenna sem virðist benda til þess aö listamaðurinn feti einstigi milli tveggja ósamrýmanlegra póla. Vald og óreiöa eru pólarnir sem segja má aö skilgreini sköpunarferliö og dragi listamanninn áfram á ferö hans, ferö sem er „jafn sjálfstæö og jafn óskiljanleg og ferö brjálæðingsins sem allir forðast," eins og El Lissitzky orðaði þaö. Þótt tilviljun geti aldrei oröiö megininntak listarinnar veröur hún alltaf aö vera til staðar. Lista- maöurinn verður aö taka áhættu; hann verður að hætta á þaö aö láta ytri öfl taka af sér völdin. Verk Guöjóns Bjarnasonar eru gott dæmi um þetta og hann meðhöndlar hina skapandi orku af einstakri færni; stýrir henni án þess aö stjórna henni nokkurn tíma til fulls. Þetta skapandi ferli dæmum viö síðan eftir afuröunum - listaverkunum sem eft- ir sitja - en um leið eru verkin eins konar heimild um sköpun sína og þau geyma í sér söguna af því hvernig þau uröu til. Svört minning, úr myndröðinni Hnignandi þrá 1997. Verkin sjálf eru síöan þannig upp byggö aö þau endurspegla vissa stígandi frá því sem við fáum valdið til óreiðunnar sem viö getum ekki hamið. Sömu formin eru afmynduð á mismunandi hátt og mismunandi mikið, en þaö undirstrikar einmitt spennuna í vinnsluferlinu. Litaskalarnir sem sjást í málverkunum og í steyptum málmmyndum af lík- amshlutum sýna á svipaðan hátt hreyfingu eöa ferli, teygöir frá Ijósi í myrkur, milli reglu og óreiðu, á ferö milli tveggja póla sem er „jafn-óskiljanleg og ferö brjálæðingsins," en engu aö síður nauösyn- legur þáttur í mannlegri tilveru. Líkt og sköpunar- krafturinn veröur aldrei haminn aö fullu í listinni veröur listin aldrei hamin aö fullu í reynslu okkar af list eöa í skrifum okkar um hana. Hún er frekar eins konar útgangspunktur, kveikja aö einhverju nýju eöa vísbending um nýja leiö sem áhorfandinn eöa gagnrýnandinn veröur aö fara þótt hann viti ekki hvert hún liggur frekar en brjálæðingurinn veit hvert hann er að fara. Þessi leiö er ákvöröuö aö hluta til af skynseminni og aö hluta til af óræöum öflum sem viö höfum lítið vald yfir. Snar þáttur í því aö skilja list er aö gera sér grein fyrir því aö líkt og listamaöurinn veröur áhorfandinn aö láta frá sér völdin. Þetta er að vísu aldrei áhættulaust og þess vegna viröist góö list alltaf vera svolítiö ógnandi. Þaö er alltaf einhver hætta á ferðum, jafnvel í ög- uðustu listaverkum. ■ 69
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.