AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Síða 57
Ljósmyndir í greininni teknar af Gísla Sigurðssyni.
pússaðir að utan sem innan, gólf eru úr slípaðri
steinsteypu með innfelldri gönguleið úr grágrýti og
viðir í burðarvirki eru gagnheilir.
Safnaðarheimilið er allt minna og lægra en kirkj-
an og að hluta til „falið” með grasi grónum mönum
sem skilja sig síðan frá húsinu og mynda útirými
umhverfis húsin. Það er áfast suðurvegg kirkjunn-
ar og er skilið á milli húsanna með fellivegg á
brautum. Húsið er tvískipt; annars vegar er safn-
aðarsalur, sem tekur 60 eða fleiri í sæti við mess-
ur, en er auk þess nýtanlegur fyrir samsæti og
annan mannfagnað, hins vegar eru þjónusturými
(anddyri, snyrtingar, skrifstofa prests, eldhús o.fl.).
Safnaðarsalurinn er hærri, með um 3m lofthæð og
gluggaband umhverfis, en þjónustuhlutinn lægri,
með u.þ.b. 2.3 m lofthæð.
Kirkjan er staðsett framarlega á hraunkambi
sem er um 900 m sunnan við þjóðveginn, vestan
við heimreiðina að Ljósavatnsbænum. Stór kross
stendur í slakkanum framan við kirkjuna og kemur
í stað kirkjuturns. Aðkoma að kirkjunni er sunnan
að, liggur í sveig austur og norður fyrir kirkjuna og
endar í bílastæðum. Göngustígur liggur þaðan
innfyrir áður nefnda grasmön, framhjá klukkna-
porti að kirkjunni sjálfri og safnaðarheimilinu.
Markmið þau sem við settum okkur við hönnun
kirkjunnar komu fram í ávarpi sem við fluttum við
vígslu kirkjunnar:
„Þegar rætt er um húsbyggingar á íslandi er
oftast talað mest um fermetra og frágang. Því er-
um við oftast spurðir fyrst um það hversu Þor-
geirskirkja sé stór að flatarmáli. Við svörum því þá
til að hún sé um það bil 60 km2 að stærð, þar af
155 m2 undir þaki. Byggingarlist snýst nefnilega
ekki í aðalatriðum um veggi og gólf, þök og
glugga, dyr og dyngjur, heldur um rýmið sem þes-
sir hlutir, þessi verkfæri okkar arkitekta, mynda
saman sem heild.
Hugmynd okkar við hönnun kirkjunnar var að
55