AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Page 78
greiningar á þörfum þeirra og óskum, og svo má ekki
gleyma því að almenningur gerir oft það sem honum
finnst eða sýnist í þessum efnum sem öðrum. Það er
með öðrum orðum til annað sjónarhorn á vöxt og þróun
þessa samspils borgar og náttúru sem Trausti skoðar í
bókinni, sem er fjölbreytileiki og afstæðni hlutanna með
tilliti til viðhorfa, valds og viðtöku almennings á
rýmishugsuninni sem borgin birtir.
Mannfræðingar hafa á síðustu árum bent á hversu
afstæðar hugmyndir mannsins eru um náttúruna, en
náttúruhugtakið og samspil þess við mannheima er
forvitnilegt viðfangsefni í bók Trausta. í bókinni tekur
hann undir þá kenningarlegu hugsun að „náttúra" sé
afstætt hugtak, en heldur fram að hugtakið búi fyrst og
fremst yfir jákvæðum eðliskostum og feli í sér eftirsókn-
arverð gildi. Sú afstaða er í takt við þau visthverfu sjón-
armið í náttúruverndarumræðu sem vilja stíga mjög var-
lega niður þegar kemur að notkun mannsins á nátt-
úrunni. Til þess að sú umræða sé á vitrænum nótum
þarf hins vegar að skilgreina og ræða hverskonar nát-
túru sé verið að tala um, mörk hennar og mannheims,
svo og rétt hennar gagnvart mannhverfum sjónar-
miðum. Bók Trausta er gott innlegg inn í þá umræðu
sem vonandi flestir finna sig knúna til að taka þátt í,
hvort heldur það eru arkitektar, skipulagsfræðingar eða
fræðimenn úr greinum félagsvísinda. ■
THE ANTHROPOLOGY OF ARCHI-
TECTURE AND PLANNING
In this article, Sigurjón Baldur Hafsteinsson reviews a
book by Trausti Valsson, entitled Borg og náttúra: ekki
andstæður heldur samverkandi eining (2000) (City and
Nature: Not Opposites, but an Interactive Unit). This
work looks at the place where anthropology, architec-
ture and planning intersect. Valsson looks at how
Reykjavík has grown and developed, from the settle-
ment to the present day, and explores who the
Icelanders were, are, and may become, using their
choice of housing on which to base his theories.
The book is divided into three main sections. In the
first, the author’s theoretical approach is introduced,
as well as the methods he uses. In the second, a his-
torical analysis of how the city has developed is given,
and is divided into three stages: man’s involvement
with nature, man’s alienation from nature, and a new
relationship between tnan and nature. In the fínal sec-
tion of the book, Valsson discusses the main influ-
ences on the city’s development, and possibilities for
further development. ■
A vef okkar
www.ev.is
má fá ítarlegar
upplýsingar um
framleiðslu
fyrirækisins
ásamt teikningum
og lýsingum á
einingunum.
Framtíðin felst í forsteyptum einingum
Einingaverksmiðjan erframsækið fyrirtæki
sem sérhæfir sig í framleiðslu forsteyptra
eininga. Tækjabúnaður og þekking gerir
okkur kleift að afgreiða stór og smá
byggingaverkefni fljótt og örugglega.
Gæði framleiðslunnar er undir stöðugu
eftirliti, bæði innra gæðaeftirliti og opinberu
eftirliti Rannsóknarstofnunar
Byggingariðnaðarins.
Við veitum ráðgjöf og aðstoð við útfærslu
teikninga og gerð burðarþolsútreikninga.
Kostnaðaráætlanir og tilboð eru unnin fljótt
og örugglega. Auk þess veitum við þjónustu
við stærri framkvæmdir, s.s. flutninga,
reistningu, öflun efnis og leigu búnaðar.
EININGAVERKSMIÐJAN EHF.
Breiðhöfða 10-112 Reykjavík - Sími 587 7770 • Fax 587 7775