AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Page 87
Áætlað er að byggja þurfi 33.100 íbúðir á skipu-
lagstímanum, 26.000 í fyrsta áfanga til ársins
2018 og 7.100 í þeim seinni.
Fjöldi íbúða í heild mun þannig aukast úr um
62.000 í um 95.000 íbúðir árið 2024.
1.1 Atvinnustarfsemi 09 atvinnu-
svaeði
/ A\ Meginkjami
/ /d\ Svæðiskjami
/ / /c\ Hverfiskjarni
/ / / /d\ Þjónustukjarni
Kjarnasvæði.
Gert er ráð fyrir að störfum á höfuðborgarsvæð-
inu muni fjölga um 39.000 úr um 96.000 störfum
árið 1997 í um 135.000 árið 2024. Við þetta bæt-
ast um 12.000 störf sem koma til vegna þynningar
á núverandi atvinnusvæðum. Það eru því samtals
51.000 störf sem byggja þarf húsrými fyrir á tíma-
bilinu.
Þessi störf dreifast á þegar byggð svæði með
þéttingu byggðar og á nýbyggingarsvæði.
Atvinnustarfsemi er komið fyrir með íbúðum í
blandaðri byggð, í kjörnum og á sérhæfðum at-
vinnusvæðum fyrir iðnað og grófari starfsemi.
1.3 Flatarþörf
Samkvæmt tillögunni þarf að koma fyrir á skipu-
lagstímanum um 26.000 nýjum íbúðum og vinnu-
aðstöðu fyrir 43.000 ný störf í nýjum hverfum auk
þeirra sem komið er fyrir með þéttingu núverandi
byggðar. Þetta er gert á eftirfarandi hátt:
■ Blönduð byggð með íbúðum og vinnustöðum af
mismunandi þéttleika.
■ Kjarnar fyrir sérhæfð störf og verslanir.
■ Sérstök atvinnusvæði fyrir geymslur og iðnað.
Heildar flatarþörf fyrir nýja byggð til loka
skipulagstímans er áætluð vera um 2,200
hektarar, þar af um 1.750 ha. fram til ársins
2018.
1.4 Kjarnar á höfuðborgar-
svxðinu
í svæðisskipulagstillögunni eru skilgreind
kjarnasvæði þar sem margs konar
atvinnustarfsemi safnast saman. Gert er ráð
fyrir fjórum flokkum kjarna sem skilgreind eru
í samræmi við upplönd sem þau þjóna:
■ Miðborg Reykjavíkur ásamt Kringlunni,
Suðurlandsbraut og Skeifunni myndar
meginkjarnann sem þjónar öllu landinu auk
þess að þjóna bæjarhlutum, hverfum og
nánasta umhverfi.
■ Smárinn ásamt Mjódd er svæðiskjarni sem
þjónar öllu höfuðborgarsvæðinu en einnig
bæjarhlutum, hverfum og nánasta umhverfi.
■ Hverfiskjarnar eru í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópa-
vogi og Mosfellsbæ. Þeir þjóna hverfum og bæjar
hlutum en einnig nánasta umhverfi.
■ Þjónustukjarnar þjóna tilteknum svæðum hvað
varðar þjónustu og vörur til daglegrar notkunar
1. Landslagsskipulag og heildar-
yfirbragð byggðar
Unnið hefur verið að sjálfstæðri hugmyndarfræði
skipulagsgerðarinnar með tilliti til landslagsskipu-
lags og heildaryfirbragðs byggðar undir forystu
sérráðgjafans Steen Höyers, prófessors við Arki-
tektaskólann í Kaupmannahöfn. Fylgirit 1, Byggð-
in og landslagið, fjallar ítarlega um þennan mála-
flokk. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
Sérkenni byggðar á höfuðborgarsvæðinu felast í
legu hennar á nesjum við hafið í faðmi hárra fjalla.
Meginstyrkur höfuðborgarsvæðisins er fólginn í
þeirri umgjörð sem landslagið skapar. Varðveita
ætti til framtíðar legu byggðarinnar á milli fjalls og
Ný umferðarmannvirki.
85