Bændablaðið - 26.01.2023, Side 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
FRÉTTIR
Brákarey:
Markaðssetning utan
hefðbundins sláturtíma
Nýlega var Sláturhúsi Vesturlands
í Borgarnesi veittur styrkur úr
markaðssjóði sauðfjárafurða til
markaðssetningar á fersku kinda-
kjöti utan hefðbundins sláturtíma.
Ferska kjötið er markaðssett undir
vörumerkinu Brákarey.
Samstarfsaðilar í verkefninu
eru, auk bænda og veitingamanna,
Landbúnaðarháskóli Íslands og
Material Nord ehf. Að sögn
Eiríks Blöndal, stjórnarformanns
sláturhússins, hefur þetta verkefni
verið í undirbúningi í nokkurn tíma
– en með þessum styrk sé ætlunin að
auka enn frekar markaðssetninguna
fyrir ferska kjötið.
Veitingahús í föstum viðskiptum
„Það má segja að þetta tilrauna
verkefni hafi farið fyrir alvöru af
stað síðasta vetur og við settum
tvisvar ferskt lambakjöt á markað.
Það reyndist bara frekar vel og
hvatti okkur til að halda þessu
áfram – og reyna að auka jafnvel
framboðið til veitingahúsanna.
Við höfum verið með valin
veitingahús í föstum viðskiptum
við okkur og reiknum með að halda
því áfram, en veitingahúsin sækjast
eftir því að fá lambakjöt í sérstökum
gæðaflokki.
En þá þurfum við að markaðssetja
vöruna betur og því sóttum við um
þennan styrk,“ segir Eiríkur og
reiknar með að það verði slátrað
einu sinni í mánuði í vetur fyrir
þennan markað.
Vel hangið kjöt
„Við vitum að veitingamennirnir
vilja fá kjötið fullmeyrnað og því
látum við það hanga vel hjá okkur
eftir slátrun. Þetta kjöt stendur
svo kröfuhörðum viðskiptavinum
veitingahúsanna til boða og við
fáum ágætlega greitt fyrir þessar
afurðir okkar. En styrkurinn er
sem fyrr segir hugsaður til að
þróa frekari markaðssetningu á
afurðunum. Þar erum við að hugsa
um upprunatengingar líka svo
sagan skili sér alla leið frá bænum
þaðan sem kjötafurðin er komin,“
segir Eiríkur.
Hann segir að markmiðið sé ekki
að stækka þetta verkefni mjög mikið,
en samt sé vilji til að fá fleiri bændur
og veitingamenn inn í það.
Ekki bein samkeppni við
„hefðbundið lambakjöt“
Að sögn Eiríks er þetta verkefni
einhvers konar viðbragð við
umræðunni um skort á þessari
vöru og þörfinni á aukinni verð
mætasköpun í landbúnaði.
„Eins hafa rannsóknir hjá Matís
sýnt fram á sérstöðu slíkrar
ferskvöru. Íslenskt lambakjöt hefur
mjög verðmæta sérstöðu og í
þessu verkefni er verið að nálgast
afmarkaðan markhóp sem vill enn
meiri sérstöðu. Það er mikilvægt að
finna og þjónusta verðmætan hluta
markaðarins,“ segir hann.
Þegar hann er spurður hvernig
Brákarey muni fara að því að
geta reglulega boðið upp á þessa
vöru, hvort ekki þurfi að breyta
framleiðslukerfinu með fleiri
burðartímum, segir hann svo ekki
vera. „Í raun erum við bara að lengja
í tímabilinu. Við búum svo vel hér
að við höfum lítið sláturhús sem
við rekum í Borgarnesi, mannað
með úrvals fólki sem býr hér í
nágrenninu – og getum því slátrað
hvenær sem er ársins.
Við þurfum hins vegar að semja
við þá bændur sem taka þátt í þessu
verkefni með okkur, að geyma
gimbrar úr sláturtíðinni fram á
veturinn og fóðra þær vel við góðar
aðstæður.
Svo reynum við líka að flýta
slátrun á sumrin fyrir hefðbundna
sláturtíð – og lengja í þeim enda
líka,“ segir Eiríkur Blöndal. /smh
Ferska lambakjötið sem var kynnt á Skál. Mynd / Kristinn Magnússon
Frá kynningu á ferska lambakjötinu á síðasta ári á veitingastaðnum Skál á
Hlemmi. Eiríkur Blöndal, stjórnarformaður Sláturhúss Vesturlands, er hér á
milli þeirra Guðrúnar Sigurjónsdóttur, bónda á Glitstöðum í Norðurárdal, og
Gísla Matthíasar Auðunssonar, veitingamanns á Skál. Mynd / Kristinn Magnússon
Sláturhús Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi. Mynd / smh
Landbúnaðarháskóli Íslands:
Skordýr sem
fóður og fæða
Við Landbúnaðarháskóla Íslands
er unnið verkefni sem snýr að því
að koma upp skordýraræktun
hérlendis og skapa með því
ný tækifæri í framleiðslu á
fóðurhráefnum, áburðarefnum
og jafnvel framtíðarfæðu.
Verkefnisstjóri er Rúna Þrastar-
dóttir, doktorsnemi við skólann.
Síðastliðið ár hefur Rúna
framkvæmt grunnathuganir á
möguleika skordýraræktunar
hérlendis með áherslu á mjölorma
og hermannaflugur. Prófaðar hafa
verið mismunandi fóðurtegundir.
Á vef LbhÍ segir að niðurstöður
athugana séu jákvæðar og á þessu
ári verði gerðar nákvæmari mælingar
á hverju þroskastigi skordýranna
fyrir sig. Þá er einnig ráðgert
að bæta ræktunaraðstöðuna hjá
Landbúnaðarháskólanum í samvinnu
við iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði
og tölvunarfræðideild Háskóla
Íslands.
Matvælaframleiðsla
alþjóðleg áskorun
Rúna segir að hluti verkefnisins
hafi verið að skoða samfélagslega
vitund og viðhorf Íslendinga
gagnvart skordýrum sem matvæli
og fóður fyrir dýr verið kannað og
verða niðurstöður birtar í grein á
vormánuðum.
„Matvælaframleiðsla framtíðar
er alþjóðleg áskorun þar sem
íbúafjöldi heimsins fer ört vaxandi
og yfir 10% af íbúum heimsins
þjást af vannæringu. Matvæla og
landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna, FAO, áætlar að til að
mæta vaxandi þörf mannkyns þurfi
matvælaframleiðsla að tvöfaldast
fyrir árið 2050. Ein leið til þess að
sporna gegn hungri og matarsóun
er að framleiða skordýr með því að
fóðra þau með lífrænum afgöngum
sem falla til og koma þannig upp
hringrásarframleiðslu. Rannsóknir
hafa sýnt fram á að margar
tegundir skordýra, meðal annars
hermannaflugur og mjölormar,
eru góð í að brjóta niður lífræn
efni og mynda prótein og þar með
endurnýta annars glatað næringarefni
til framleiðslu á próteinum.
Mjölormar og hermanna
flugulirfur eru jafnframt gott
fóðurefni fyrir dýr þar sem
næringargildi þeirra líkist mest þeim
próteingjöfum sem notaðir eru í dag,
soja og fiskimjöli. Einnig hefur
framleiðsla skordýramjöls minni
umhverfisáhrif en aðrir hefðbundnir
próteingjafar.“
Spennandi viðfangsefni
Að sögn Rúnu er því afar
spennandi viðfangsefni að koma
upp framleiðslu á skordýrum og
nokkur fyrirtæki hafa þegar litið
dagsins ljós í Evrópu sem eru ekki
einungis að huga að fóðurhráefnum
fyrir dýr heldur einnig sem matvæli.
Auk þess sem Evrópusambandið
lítur á skordýr sem umhverfisvæna
framleiðslu á próteinum og hefur
stutt við fjölda verkefna á því sviði.
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur
fengið úthlutaðan framhaldsstyrk
upp á 1.500 þúsund krónur frá
Uppbyggingarsjóði Vesturlands fyrir
verkefnið og verkefnið hefur einnig
hlotið styrk frá Orkurannsóknasjóði
Landsvirkjunar. /VH
Rúna Þrastardóttir.
Hermannafluga í eldi.