Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins:
Bændur áhugasamir um jarðrækt
og betri nýtingu áburðar
Frá síðasta vori hefur á jarð-
ræktar sviði Ráðgjafarmiðstöðvar
land búnaðarins (RML) verið
unnið að verkefni sem miðar
að bættri áburðarnýtingu í
landbúnaði á Íslandi. Unnið er að
verkefninu með stuðningi matvæla-
ráðuneytisins í kjölfar tillagna
spretthópsins frá því í júní á
síðasta ári, vegna alvarlegrar stöðu
í matvælaframleiðslu á Íslandi.
RML fékk þannig hlutdeild í
jarðræktarstuðningi stjórnvalda í
febrúar á síðasta ári vegna hækkunar
áburðarverðs, um 50 milljónir úr
700 milljóna króna potti til að leita
leiða um bætta nýtingu áburðar og
möguleika á því að draga úr notkun
á tilbúnum áburði. „Við gerðum
samning við matvælaráðuneytið um
bætta áburðarnýtingu í landbúnaði
síðasta vor.
Sá samningur byggir fyrst
og fremst á meiri þunga á
jarðræktarráðgjöf í okkar starfi og
með markmiðum um meiri gögn, til
dæmis með hey- og jarðvegssýnum,
til að byggja á allar áætlanir um bætta
nýtingu áburðarefna,“ segir Borgar
Páll Bragason, fagstjóri á rekstrar- og
umhverfissviði Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins.
Vegvísir um bætta nýtingu
lífrænna efna
Borgar segir að í kjölfar undirritunar
samningsins við ráðuneytið hafi þrír
jarðræktarráðunautar verið ráðnir
til starfa hjá RML, þau Elena
Westerhoff, Baldur Örn Samúelsson
og Sigurður Max Jónsson, sem
bætast við reynslumikinn hóp
sem er fyrir.
Teymið hafi farið í tvær
umfangsmiklar hringferðir um
landið með fræðslufundi um bætta
nýtingu áburðar. Fyrst í apríl
og svo aftur núna í nóvember.
„Samningurinn er til tveggja ára en
skilar sér í raun til mun lengri tíma,“
segir hann.
„Við höfum einnig unnið
talsvert í vegvísi um bætta nýtingu
lífrænna efna sem er að fara í
samráðsgátt stjórnvalda, undirbúið
bændahóparáðgjöf í samstarfi við
Anu Ellä, grasræktarráðgjafa hjá
ProAgria í Finnlandi, og fyrstu
tveir hóparnir byrja núna í febrúar.
Þá hefur þátttakendum í Sprotanum
fjölgað sem er ráðgjafarpakki hjá
okkur í jarðrækt.“
Aukinn áhugi bænda á jarðrækt
„Það er greinilegur aukinn áhugi
bænda á jarðrækt og að leita leiða
við að nýta allan áburð sem best og
þá ekki síst búfjáráburðinn,“ segir
Borgar. „Það sýnir sig meðal annars
í aukinni þátttöku í Sprotanum sem
meðal annars innifelur sýnatöku og
áburðaráætlun, en þeim fjölgaði um
tíu á síðasta ári og þar eru núna um
70 þátttakendur.
Bændur eru duglegri við að
efnagreina hjá sér bæði hey og
jarðveg sem nýtist vel til að
leiðbeina sem best um kölkun og
áburðargjöf. Í sumum tilfellum
sjáum við tækifæri í því að draga
úr áburðargjöf en oft þarf að huga
að endurræktun, kölkun, viðhaldi
framræslu og tækjabúnaði við
dreifingu. Mikið til snýst þetta um að
finna leiðir með bændum sem geta
gengið upp fjárhagslega, án þess þó
að verið sé að spara til skaða.
Þátttaka bænda á fundunum í
haust var almennt mjög góð. Við
hvöttum áburðarsalana til að koma
á fundina sem og þeir gerðu sem
var mjög gott fyrir umræður eftir
fyrirlestrana. Við höfum fengið mjög
jákvæð viðbrögð frá bæði bændum
og áburðarsölum eftir þessa fundi og
við stefnum á að endurtaka leikinn
að ári.“
Farvegurinn fyrir lífræna
úrganginn
Að sögn Borgars verða stóru
málin varðandi farveginn fyrir
nýtingu á lífrænum efnum, til
framleiðslu á lífrænum áburði,
tekin til umfjöllunar í áðurnefndum
vegvísi sem von er á fljótlega inn í
samráðsgátt stjórnvalda.
„Þetta skýrist á næstu dögum, en
RML hefur fyrst og fremst komið
með faglegt innlegg í þessa vinnu
sem hefur reynst mjög mikilvægt.
Við höfum lagt áherslu á að lífræn
efni sem eru auðnýtanleg sem
áburðarefni í landbúnaði verði fyrst
og fremst nýtt þar og hvatar verði
þá frekar í þá átt að þau efni sem
innihalda minni áburðarefni verði
nýtt til landgræðslu.“
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
þáverandi umhverfis- og auðlinda-
ráðherra, lagði árið 2021 fram
stefnu sína í úrgangsmálum,
Í átt að hringrásarhagkerfi“, fyrir
árin 2021 til 2032. Nú starfar
stýrihópur Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar umhverfis-, orku- og loftslag -
ráðherra að því að vinna að framgangi
stefnunnar. Borgar segir að
þýðingarmikill hluti hennar sé að ná
betri árangri við nýtingu á lífrænum
efnum. Með lagabreytingu sem tók
gildi um síðustu áramót er bannað
að urða tiltekinn lífrænan úrgang,
í þeim tilgangi að koma í veg fyrir
myndun metans þegar úrgangurinn
rotnar við urðunina, sem veldur
skaðlegum loftslagsáhrifum.
Með því að minnka sóun lífrænna
efna aukist möguleikarnir á nýtingu
þeirra umtalsvert, sérstaklega til
skemmri tíma í landgræðslu og til lengri
tíma litið einnig í landbúnaði. /smh
Borgar Páll Bragason, fagstjóri á rekstrar- og umhverfissviði Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins.
Við gerðum samning við matvælaráðuneytið um
bætta áburðarnýtingu í landbúnaði síðasta vor.
Sá samningur byggir fyrst og fremst á meiri þunga á
jarðræktarráðgjöf í okkar starfi og með markmiðum um
meiri gögn, til dæmis með hey- og jarðvegssýnum, til að
byggja á allar áætlanir um bætta nýtingu áburðarefna.“
Fiskræktarsjóður starfar á grundvelli laga nr. 72/2008, með síðari breytingum.
Meginhlutverk sjóðsins er að veita lán eða styrki til verkefna sem þjóna þeim
markmiðum að efla fiskrækt, bæta veiðiaðstöðu, styðja við rannsóknir í ám og vötnum
og auka verðmæti veiði úr þeim.
Umsóknarfrestur um lán og styrki úr Fiskræktarsjóði, sem koma til greiðslu árið 2023,
er til og með 1.mars 2023. Þeir sem fengið hafa styrk úr sjóðnum og sækja aftur um
vegna sama verkefnis, skulu skila inn framvinduskýrslu með nýrri umsókn.
Athugið breytt umsóknarferli
Sótt er um styrkveitingu úr Fiskræktarsjóði rafrænt á heimasíðu Fiskistofu í gegnum
umsóknagátt. Umsóknina má finna á www.fiskistofa.is undir þjónusta og velja þar
„Fiskræktarsjóður“.
Einungis verður tekið við umsóknum í gegnum umsóknagáttina. Hvorki verður tekið
við umsóknum í tölvupósti né á pappírsformi.
Á heimasíðu Fiskistofu má nálgast verklagsreglur sjóðsins. Einnig er hægt að hafa
samband við Höllu Björk Garðarsdóttur, starfsmann Fiskistofu, í síma 569 7900.
STYRKIR 2023STYRKIR 2021
Fiskræktars ur starfar á grundvell aga nr. 72/2008, með síðari
breytingum. Meginhlutverk sjóðsins er að veita lán eða styrki
til verkefna sem þjóna þeim markmiðum að efla fiskrækt, bæta
veiðiaðstöðu, styðja við rannsóknir í ám og vötnum og auka
verðmæti veiði úr þ im. Umsókn rfrestur um lán og sty ki úr
Fiskræktarsjóði, sem koma til greiðslu árið 2021, er til og með
1.mars 2021. Þeir sem fengið hafa styrk úr sjóðnum og sækja aftur
um vegna sama verkefnis, skulu skila inn framvinduskýrslu eð
nýrri umsókn.
Umsóknareyðublöð vegna styrkveitinga úr Fiskræktarsjóði má
nálgast á http://www.fiskistofa.is undir lax- og silungsveiði,
skila skal umsókn í fimmriti. Þar má einnig nálgast verklagsreglur
sjóðsins. Einnig er hægt að hafa samband við Höllu Björk
Garðarsdóttur, starfsmann Fiskistofu, í síma 569 7900. Umsóknum
um styrki eða lán úr sjóðnum skal skila til formanns Fiskræktarsjóðs
á eftirfarandi heimilisfang:
Fiskistofa
v/Fiskræktarsjóðs
Borgum v/Norðurslóð
600 Akureyri
Í DEIGLUNNI