Bændablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Bændur og hinn almenni neytandi hafa lengið staðið bökum saman við
að tryggja sanngjarnt verðlag á Íslandi með aðhaldi við endursöluaðila.
Ósanngjarnt þætti ef hógvært framleiðsluverð bænda myndi enda sem
sífellt minni hluti af endursöluverðinu vegna álagningar milliliða.
Þó erfitt sé að fullyrða um álagningu heildsala og endursöluaðila er hægt
á góðan hátt hægt að fylgjast með fylgni framleiðsluverðs og neysluverðs
matvæla og er hughreystandi að sjá hversu mikil fylgnin er þar á milli, bæði
í tilfelli verðhækkana og -lækkana.
Allt frá árinu 2015 hafa vísitölur framleiðsluverðs og neysluverðs matvæla
haldist mjög þétt að. Ef rýnt er betur í þróun síðastliðins árs
sést að sambandið þarna á milli er enn þá sterkt.
Samband neysluverðs og
framleiðsluverðs í matvælum
Einnig er þess virði að rýna í breytingar á afurðaverði til bænda í samhengi
við þróun neysluverðs og framleiðsluverðs.
Ef skoðaðar eru breytingar á milli ára á vísitölu neysluverðs matvæla og
framleiðsluverðs matvæla og þær bornar saman við breytingar á afurðaverði
til bænda á dilkakjöti, nautgripakjöti og mjólkur,
sést að þótt sveiflurnar séu oft og tíðum miklar þá
jafna þær sig út og meðalfrávikið er lítið.
Á undanförnum sex árum hefur afurðaverð
til bænda í þessum þremur vöruflokkum
hækkað að meðaltali um 0,4% umfram
vísitölu framleiðsluverðs matvæla og 0,1%
umfram vísitölu neysluverðs matvæla.
Það hafa því vissulega komið tímar þar
sem endursöluverð hefur hækkað umfram
afurðaverð og svo hefur það leiðrétt sig.
Sambandið er nokkuð jafnt þegar horft
er til lengri tíma og bendir það til þess að
samband framleiðsluaðila og endursöluaðila
hafi haldist tiltölulega óbreytt
á tímabilinu sem um
ræðir, þ.e. verð er ekki að
hækka né lækka umfram
afurðaverð nema til
skamms tíma, sem getur þó
hlaupið á árum, sem hefur
síðan fengið leiðréttingu.
Verðlagsþróun neysluverðs og framleiðsluverðs 2015-2022
Verðlagsþróun 2022
Frávik frá verðlagsþróun framleiðslu matvæla
Frávik frá verðlagsþróun framleiðslu matvæla
Markaðir
156,1 kr
Evra
143,76 kr
USD
176,65 kr
Pund
323,1286 kr
95 okt bensín
332,2662 kr
Díesel
19,43 USD
Mjólk (USD/100 pund)
6,8 USD
Korn (USD/sekkur)
29,7 EUR
Kartöflur (EUR/100 kg)
1339 AUD
Ull (AUD/100 kg)
1,98 USD
Ostur (USD/pund)
5000 EUR
Smjör (EUR/tonn)