Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
Leiksýningin Marat/Sade, sem
frumsýnd var föstudagskvöldið
20. janúar í Borgarleikhúsinu,
markaði tímamót, enda stigu á
svið margir af elstu og ástsælustu
leikurum þjóðarinnar í einni og
sömu sýningunni. Þau yngstu um
sjötugt og þau elstu komin fast
að níræðu!
Sýningin, sem heitir öðru nafni
Ofsóknin og morðið á Jean
Paul Marat, sýnt af vistmönnum
geðveikrahælisins í Charenton undir
stjórn De Sade markgreifa ... er eitt af öndvegisverkum 20. aldarinnar –
marglaga og margslungið í efni og formi. Bæling og losti, kúgun og uppreisn,
hinir jaðarsettu gegn valdinu!
Margrét Guðmundsdóttir (89 ára) leikur Charlotte Corday, sem er hvað þekktust
fyrir að hafa ráðið Jean Paul Marat af dögum í frönsku byltingunni. Margrét
lék sama hlutverk í uppfærslu Þjóðleikhússins árið 1967, eða fyrir tæpum 56
árum síðan. Hún hefur sannarlega engu gleymt!
Næstu sýningar eru fimmtudaginn 26. janúar kl. 20, föstudaginn 27 jan.
kl. 20 og svo 5. febrúar kl. 20 – en miða er hægt að nálgast á vefsíðu
Borgarleikhússins. Þarna er um einstakt tækifæri að ræða, upplifun og
sjónarspil sem gleður okkur ekki á hverjum degi. /SP
„Kraftur og fjölskyldan
mín hafa komið mér í
gegnum þetta“
Kolluna upp
fyrir mig,stelpukraft og
Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem
greinst hefur með krabbamein og aðstandendur.
Kaupum kolluna á lifidernuna.is
fjölskylduna!
Liðsmenn Leikdeildar Eflingar
heldur úti leiklistarstarfi í
Reykjadal í Þingeyjarsveit en nú
í nóvember hófu þau æfingar á
verkinu Gauragangi eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
Sagan gamalkunna fjallar um
hetjuna hann Orm Óðinsson, nemanda
á síðasta ári í gagnfræðaskóla,
lífsviðhorf hans, upplifanir og öflugt
félagslíf.
Kitlar taugar margra
Var bókin um Orm útgefin í fyrsta
skipti árið 1988 og naut mikillar hylli
enda kitlaði söguhetjan taugar margra. Á það
við jafnt ungra sem aldinna og geta eflaust
einhverjir enn þann dag í dag sett sig í spor
þessa gæðings sem er að feta fyrstu spor sín
í átt til fullorðinsáranna. Ólafur Haukur gaf
í kjölfarið út sjálfstætt framhald sögunnar,
Meiri gauragangur, sem einnig átti vel upp á
pallborðið hjá lesendum. Er leikverkið sem
slíkt einnig afar vinsælt og verður gaman að
sjá tilþrifin sem Leikdeild Eflingar býður upp
á nú í febrúar.
Þarna stíga á svið bæði gamalreyndir
meðlimir áhugaleikhússins auk nokkurra
nemenda framhaldsskólans, en að verkinu
koma upp undir 20-30 manns sem bæði vinna
fyrir framan og bak við tjöldin, og leikstjóri
er hún Jenný Lára Arnardóttir.
Stefnt er á frumsýningu fyrstu eða aðra
helgina í febrúar og því mikil spenna í lofti,
bæði hjá þeim sem bregða sér í hlutverkin svo
og þeim er munu á horfa.
Setið í hring
Skemmtilegt er að segja frá því að í stað
hefðbundins leiksviðs verður uppsetningin á
nýstárlegan hátt, sitja gestir í hring, við borð
– kvenfélagið býður upp á vöfflukaffi – en
leikendur láta ljós sitt skína inni í hringnum.
Sýnt verður á Breiðumýri að venju, og
áætlaðar eru um tíu sýningar. Miða er hægt að
kaupa í gegnum tölvupóst og síma og verður
auglýst þegar nær dregur og um að gera að
festa sér einn slíkan sem allra fyrst. /SP
MENNING
Landssamband eldri borgara kynnir
til leiks öldungalandslið leikara!
Leikdeild Eflingar Breiðumýri:
Gauragangur í
Þingeyjarsveitinni
Eins og kom fram í 17. tölublaði Bændablaðsins þann 22. september
síðastliðinn, setti Leikfélag Hveragerðis upp verkið um hann Benedikt
búálf í tilefni 75 ára afmælis félagsins og var frumsýnt við mikinn
fögnuð þann 24. september síðastliðinn.
Þennan káta svein þekkja margir,
en höfundur sögunnar er Ólafur
Gunnar Guðlaugsson, tónlistin
í höndum Þorvalds Bjarna
Þorvaldssonar, söngtextana
sömdu þau Andrea Gylfadóttir og
Karl Ágúst Úlfsson og leikstjóri er
Gunnar Gunnsteinsson.
Fjallar sagan um samskipti þeirra
Benedikts búálfs og mannabarnsins
Dídíar sem tengjast vinaböndum
ásamt því að lenda í alls kyns
ævintýrum.
Verkið hefst á því að Dídí
mannabarn rekur augun í Benedikt, þar sem hann stendur með handklæði
um sig miðjan, á baðherberginu hennar, nýkominn úr baði. En búálfar eru
aðeins sýnilegir mannabörnum þegar þeir eru blautir!
Örlög búálfa eru með þeim ósköpum að þegar þeir lenda í þeim hremmingum
að verða mannabörnum sýnilegir, þá ráða mannabörnin hvað verður um
þá. Benedikt og Dídi verða góðir
vinir og lenda í miklum ævintýrum
og mikilli hættu í Álfheimum, en
allt fer þó vel að lokum.
Svo skemmtilega vill til að sýningin
er enn í gangi og því um að gera
að næla sér í miða. Fer miðasalan
fram á tix.is og auglýstar sýningar
verða helgina 28.-29. janúar og
svo 4.-5.febrúar næstkomandi en
sýnt er í Leikhúsinu í Hveragerði
að Austurmörk 23. /SP
Nú fer hver að verða síðastur!
Um þessar mundir er því fagnað að 50 ár eru liðin frá því að Leiklistarskóli SÁL
hóf göngu sína, en SÁL skólinn var settur á stofn í kjölfar þess að áður höfðu
samtök áhugafólks um leiklistarnám, SÁL, verið stofnuð til þess að þrýsta á
ríkisvaldið að stofna leiklistarskóla.
Leiklistarskóli SÁL var rekinn af nemendum sem stunduðu nám við skólann.
Merkilegt framtak sem vert er að halda á lofti.
Þessara merku tímamóta hefur verið minnst með margvíslegum hætti, m.a.
hefur gögnum um sögu samtakanna og skólans verið safnað og þau afhent
Leikminjasafni Íslands til varðveislu. Sýning með hluta þessara gagna var
opnuð í Landsbókasafni 13. október og stendur fram í mars 2023.
Í tengslum við sýninguna er nú í undirbúningi málþing um tilurð og sögu SÁL
skólans með þátttöku margra þeirra sem komu við sögu, bæði nemenda og
kennara sem tengdust skólanum.
Málþingið verður haldið 2. febrúar kl. 16 í Landsbókasafni/Þjóðarbókhlöðu.
Öllum er boðið að koma hlusta og njóta.
Málþing um Leiklistarskóla SÁL –
kyndilberar á Kyndilmessu
Mynd / gunnlod jona
Hér að ofan má sjá svipmyndir frá æfingum leikaranna og
greinilegt er að mikið fjör er í mannskapnum. Við sjáum bregða
fyrir þeim Hrólfi Jóni Péturssyni, Arndísi Ingu Árnadóttur,
Guðrúnu Kolbrúnu Gabríelsdóttur, Valdemar Hermannssyni,
Eyhildi Ragnarsdóttur, Arneyju Dagmar Sigurbjörnsdóttur,
Eyþóri Kára Ingólfssyni, Sigurbirni Árna Arngrímssyni, Önnu
Kristjönu Guðbergsdóttur, Benedikt Guðbergssyni, Dagrúnu Ingu
Pétursdóttur og Kristrúnu Kristjánsdóttur í hlutverkum sínum.