Bændablaðið - 26.01.2023, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
LÍF&STARF
Nýsköpun:
Smáforrit sem mælir
kolefnisbindingu trjáa
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið
Orb vinnur að hugbúnaði sem
mælir og áætlar kolefnisbindingu
skóga á einfaldan hátt. Íris
Ólafsdóttir, stofnandi og
framkvæmdastjóri félagsins,
segir hugbúnaðinn geta aukið
gegnsæi kolefnisverkefna.
„Smáforritið Orb er notað til
að skanna tré í ákveðnum reitum
í skógi. Mælingarnar ásamt
gervihnattamyndum eru notaðar til
að áætla kolefnisbindingu skógarins.
Hugbúnaðurinn er þróaður með
það að markmiði að mælingar inni
í skóginum verði það einfaldar að
ekki þurfi sérfræðiþekkingu til að
framkvæma þær, einfalda ferlið
og lækka kostnað við að búa til
vottaðar kolefniseiningar með
skógrækt. Við viljum gera ábyrga
kolefnisskógrækt aðgengilega
svo sem flestir geti tekið þátt í
baráttunni við loftslagsvána,“
segir Íris. Hún hefur fengið styrki
úr frumkvöðlasjóðum Íslandsbanka
og Kviku, auk Fræ styrks úr
Tækniþróunarsjóði til að þróa
grunnvirkni smáforritsins.
Tæknilega skemmtileg áskorun
„Smáforritið nýtir tölvusjón og
gervigreind til að mæla tré og
getur nú mælt þvermál trjáa í
brjósthæð sem er einn mikilvægasti
mælikvarðinn á rúmmál og þar
með kolefnisbindingu trjáa. Nú
erum við í fjármögnun til að geta
þróað og gefið út fyrstu útgáfu
hugbúnaðarins í sumar.“
Íris segir hugmyndina að
verkefninu hafa kviknað í kringum
2020 þegar símar fóru að bjóða upp
á aukna rýmisgreiningu, t.d. LiDAR
myndavélar sem byggja á að mæla
endurvarp ljóss til að reikna dýpt og
fjarlægð hluta frá myndavél.
„Ég fór að skoða í hvað mætti nota
tæknina og þar voru skógmælingar
áberandi. Eftir skemmtilega fundi
með Kolefnisbrúnni, Skógræktinni
og ýmsum aðilum sem koma að
skógrækt, kolefnismörkuðum og
umhverfismálum fannst mér orðið
mjög skýrt að þarna væri þörf á
tæknilausn til að einfalda mælingar
og ferlana við kolefnisskógrækt.
Verkefnið tikkar í öll boxin; er
tæknilega skemmtileg áskorun, í því
liggja mikil tækifæri á ört vaxandi
kolefnismörkuðum og svo hefur það
jákvæð áhrif á náttúruna, stuðlar að
skógrækt og endurheimt vistkerfa.“
Samlífi sveppa og trjáa heillandi
Íris segist sjálf elska tré og skóga.
Hún er þó sérstök áhugamanneskja
um sveppi.
„Ég hangi öll haust úti í skógi,
mikið í Borgarfirðinum, að tína
sveppi. Kóngsveppi, kantarellur,
gulbrodda, kempur, hneflur. Fyrir
norðan og austan kemst maður svo
í lerkisveppaparadísir. Svo er þetta
samlífi svepprótarsveppa og trjáa
líka svo heillandi, þar sem samlífið
við sveppina eykur lifun trjánna og
hraðar vexti þeirra.“
Hugbúnaðinum er einnig ætlað
að auka gegnsæi kolefnisverkefna.
„Þannig geta kaupendur
kolefniseininga fylgst með þróun
verkefnisins og mælingum, en
gegnsæi eykur líka verðmæti
hverrar kolefniseiningar. Að auki
eru fleiri þættir en kolefnisbinding
farnir að skipta máli og aukin
áhersla er á endurheimt vistkerfa og
að stuðla að líffræðilegri fjölbreytni.
Þegar mælingar eru framkvæmdar
með síma inni í skógi opnast ótal
möguleikar við að safna gögnum,
bæði hljóði og myndgögnum
sem gefa til kynna hvernig lífið í
skóginum er að þróast,“ segir Íris.
Vefsíða verkefnisins er orb.
green/is. /ghp
Íris Ólafsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins
Orb. Myndir / Aðsendar
Ræðismaður
skipaður í Moldavíu
Moldavía er landlukt land í
Suðaustur-Evrópu og liggur milli
Úkraínu og Rúmeníu. Landið, sem
í dag er Moldavía, hefur í gegnum
tíðina tilheyrt Rúmeníu, Póllandi,
rússneska keisaradæminu, Sovét-
ríkjunum en frá hruni þeirra
hefur landið verið sjálfstætt.
Snemma á síðasta ári afhenti
Árni Þór Sigurðsson, sendiherra
Íslands í Moskvu, forseta Moldavíu
trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands
í landinu og er það í fyrsta skipti
í 15 ár sem það er gert. Þann 1.
desember sl. var formlega opnuð
ræðismannsskrifstofa, fyrsta
ræðismanns Íslands í Moldavíu.
Með sendiherra í för voru Ilona
Vasilieva, viðskiptafulltrúi sendiráðs
Íslands, og Ágúst Andrésson, sem
fulltrúi úr íslensku viðskiptalífi.
Moldavía er með skráðan
íbúafjölda upp á um 3,5 milljónir
en um ein milljón þeirra eru
farandverkamenn sem vinna
í öðrum löndum og nema
heimgreiðslur þeirra um fimmtungi
af þjóðarframleiðslu landsins.
Ræðismannsskrifstofa í Kisínev
Ræðismaðurinn heitir Dinu Cristian
og er með skrifstofu í Kisínev,
höfuðborg landsins. Hann er
fæddur 1990, kvæntur og á tvö börn.
Cristian er menntaður í viðskiptum
og stjórnunarfræðum og starfar sem
sölustjóri Radacini, eins af stærstu
vínframleiðendum Moldavíu.
Ágúst segir landið áhugavert og
bjóða upp á ýmis viðskiptasambönd
fyrir Íslendinga. „Í ræðu sinni við
opnunina benti Árni á að samskipti
Íslands og Moldavíu væru smám
saman að aukast. Hann minnti á að
utanríkis- ráðherrar landanna hafi
átt fund í Póllandi fyrir skömmu
og að forsetar landanna hefðu hist
í nóvember á síðasta ári. Auk þess
sem forsætisráðherra Íslands og
forseti Moldavíu hafi hist í Prag í
október síðastliðinn.“
Mikið mætt á Moldavíu
„Það hefur mikið mætt á Moldavíu
vegna móttöku flóttafólks frá
Úkraínu og íslensk stjórnvöld hafi
ákveðið að veita landinu stuðning
með fjárframlögum. Það að skipa
ræðismann fyrir Ísland í Moldavíu er
eitt skrefið í að efla tengsl þjóðanna.
Síðan átökin brutust út í Úkraínu
hafa ríflega 600.000 flóttamenn
flúið þaðan en flestir þeirra hafa
ýmist haldið áfram til annarra landa
í Evrópu eða snúið heim aftur. Engu
að síður eru yfir 80.000 flóttamenn
frá Úkraínu enn í Moldavíu.“
Ágúst segir að Moldavía sé
lítið land, eða um 1/3 af flatarmáli
Íslands. „Landið er þekkt fyrir
framleiðslu á góðum vínum og þar
er stærsti vínkjallari heims, sem er
um 200 kílómetra langur og telur
um tvær milljónir flaskna.“
Efla tengsl milli Íslands
og Moldavíu
Í tengslum við opnun ræðis-
mannsskrifstofunnar átti Árni
Þór Sigurðsson sendiherra og
íslenska sendinefndin fundi með
fulltrúum stjórnvalda, þjóðþingsins,
viðskiptalífs og rannsókna- og
vísindasamfélags. Meðal annars átti
sendiherrann fund með Veaceslav
Dobîndă varautanríkisráðherra
þar sem rætt var um samskipti
ríkjanna, bæði á pólitísku sviði og
eins að því er varðar viðskipti og
menningarsamskipti.
Ágúst segir að farið hafi verið
yfir stöðuna í viðræðum um
fríverslunarsamning EFTA og
Moldavíu, samstarf á sviði flugmála,
málefni flóttafólks og áhrif
stríðsreksturs Rússlands í Úkraínu
á moldavískt samfélag.
„Sendiherrann heimsótti þingið
og átti fundi með Igor Grosu,
forseta þess, og Ion Groza,
varaformanni utanríkismálanefndar
og formanni sendinefndar Moldavíu
á Evrópu- ráðsþinginu. Auk þess
fundaði sendiherra með Constantin
Borosan varaorkumálaráðherra
og fulltrúum úr orkugeiranum um
samstarf á sviði jarðhitamála og
Ilona Vasilieva, viðskiptafulltrúi
sendiráðsins, gerði grein fyrir
þekkingu og möguleikum Íslands
í því sambandi. Einnig var efna-
hagsráðuneytið heimsótt þar sem
sérstaklega var rætt um starfs-
umhverfi lítilla og meðalstórra
fyrirtækja, Rannsóknamiðstöð
Moldavíu, fyrirtæki í landbúnaði og
fyrirtæki í annars konar starfsemi.
Nýskipaður ræðismaður, Dinu
Cristian, tók þátt í allri dagskrá
sendiherrans.“
Sendinefnd væntanleg til Íslands
Ágúst segir að stefnt sé að móttöku
viðskiptasendinefndar frá Moldavíu
til Íslands í vor. „Í heimsókn okkar
til landsins kom fram að þeir hefðu
mikinn áhuga á kynna sér hvað
Ísland og Íslendingar hafa upp
á að bjóða. Ekki síst hvað varðar
þekkingu á jarðhita og orkumálum.“
/VH
Dinu Cristian, ræðismaður Íslands í Moldavíu, Ágúst Andrésson, Árni Þór
Sigurðsson sendiherra, Ilona Vasilieva viðskiptafulltrúi og Vasile Luca,
framkvæmdastjóri Radacini. Myndir / Aðsend
Moldavía er þekkt fyrir framleiðslu á
góðum vínum. Þar má finna stærsta
vínkjallara heims, um 200 km langan,
sem inniheldur um tvær milljónir
flaskna.
Eigum hina vinsælu vagna frá þessum
þekkta framleiðanda til afgreiðslu Strax
BÚFJÁRFLUTNINGAVAGNAR
frá Ifor Williams
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is