Bændablaðið - 26.01.2023, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
UTAN ÚR HEIMI
Útflutningur á nautakjöti frá Banda-
ríkjunum til Kína hefur marg-
faldast á síðustu tveimur árum.
Á síðastliðnum tveimur árum
hefur útflutningur Bandaríkjanna
á nautakjöti til Kína aukist úr um
20.000 tonnum á ári í 263.000 tonn.
Írski landbúnaðarmiðillinn Irish
Farmers Journal greinir frá. Þar er
refsiaðgerðum og viðskiptahömlum
í forsetatíð Donalds Trump kennt
um en lausnin fólst í endurreisn
viðskiptasambands milli landanna
og samkomulag um aukin
milliríkjaviðskipti.
Leiddi það m.a. til aukinnar
sölu á nautakjöti og mun Kína
nú vera þriðji stærsti innflytjandi
bandarísks nautakjöts á eftir Japan
og Suður-Kóreu. Á meðan hrundi
innflutningur Kínverja á bandarísku
svínakjöti, en það var 200.000
tonnum minna á fyrstu 11 mánuðum
ársins 2022 en á sambærilegum
tíma árið 2021. Ástæða minni
eftirspurnar er endurreisn kínverska
svínastofnsins sem varð illa úti í
svínaflensunni árið 2019. /ghp
Grilluð tólg á kínverska vegu er talið
lostæti. Mynd/ K Hsu
Bandaríkin:
Kínverjar margfalda
innflutning á nautakjöti
Umframframleiðsla
á lífrænni mjólk
Franskir bændur framleiða um 250
milljónir lítra af lífrænni mjólk á
ári hverju.
Kaup neytenda á lífrænum
mjólkurvörum hefur dregist saman
undanfarið og er því ekki markaður
fyrir allri framleiðslunni.
Mjólkursamlagið Lactalis hefur
brugðið á það ráð að selja allt að
40% lífrænu framleiðslunnar sem
hefðbundna. Samlagið hefur hvatt
sína innleggjendur til að hætta lífrænni
framleiðslu og breyta yfir í venjulega.
Talsverður verðmunur er á þessum
tveimur flokkum mjólkur – lítri af
lífrænni kostar 2,8 evrur, á meðan
lítri af hefðbundinni kostar 1,4 evrur.
/ÁL
Erfiðlega hefur gengið að koma allri lífrænni mjólk á markað sem framleidd
er í Frakklandi. Mynd / Elisabeth Dunne
Tæplega 700 vísindamenn um
allan heim hafa undirritað
yfirlýsingu til stuðnings mikilvægu
hlutverki búfjárræktar í sjálfbæru
matvælakerfi.
Samfélagslegt hlutverk búfjár
og kjöts var rætt á tveggja daga
alþjóðlegum leiðtogafundi í Dublin
á Írlandi í október 2022. Þar komu
saman fræðimenn og vísindamenn á
sviði búfjárræktar til að fylgja eftir
umræðum á leiðtogafundi Sameinuðu
þjóðanna um matvælakerfi árið 2021.
Mikilvægi kjöts í mataræði fólks,
hlutverk þess í sjálfbæru umhverfi
og menningarlegt gildi þess voru þrjú
meginstef leiðtogafundarins.
Í ástralska landbúnaðarmiðlinum
MLA er haft eftir forstjóra kjötafurða-
fyrirtækis að leiðtogafundurinn hafi
þjónað mikilvægum tilgangi við að
undirstrika mikilvægi búvísinda og
faglegra rannsókna á sviði landbúnaðar.
Búfjárrækt sé studd og grundvölluð
af þekkingu og fræðum, rannsóknum
sem hafa birst í þúsundavís í ritrýndum
miðlum. Yfirgnæfandi niðurstaða
vísindamanna er sú að rannsóknir
styðja ekki nálgun þeirra sem reyna að
heyja hugmyndafræðilegt stríð gegn
búfjárrækt, segir Chris Taylor meðal
annars í MLA.
Í framhaldi leiðtogafundarins var
mótuð ályktun og stefna sem hefur
fengið heitið Dyflinnaryfirlýsingin.
Tilgangur hennar er að varpa ljósi
á þau áreiðanlegu vísindi sem lagt
hafa grunn að farsælum framförum
í búfjárrækt og benda á mikilvægi
kjöts í matvælakerfum mannkyns.
Í yfirlýsingunni segir að búfjárrækt
hafi þróast á grundvelli ströngustu
vísinda, hún sé of dýrmæt til að
verða fórnarlamb smættarhyggju,
einföldunar og ofstækis.
Þar segir einnig að matvælakerfi
heimsins standi frammi fyrir ærnum
áskorunum sem felast í því að tryggja
fæðuöryggi og næringu fyrir sífellt
vaxandi mannfjölda heims. Um leið
þurfi hún að mæta kröfum um bættar
aðferðir í takt við þarfir umhverfisins.
Meðal þeirra sem hafa skrifað
undir viljayfirlýsinguna eru 85
vísindamenn á Spáni, 72 í Banda-
ríkjunum, 52 á Ítalíu og 50 vísinda-
menn í Ástralíu en enn þá er hægt
að styðja í gegnum vefsíðuna
www.dublin-declaration.org.
Enginn vísindamaður með aðsetur
á Íslandi hefur skrifað undir en yfir
þrjátíu manns á Norðurlöndum hafa
þegar stutt Dyflinnaryfirlýsinguna
/ghp
Búvísindi:
Vísindamenn styðja
kjöt- og búfjárrækt
Matvælasvik:
Mataráhöld upprætt
í hundraðavís
Hundruð plastvara sem innihéldu
fylliefni af jurtauppruna, s.s.
bambus og maís, voru upprættar
í átaksverkefni eftirlitskerfisins
Food Fraud Network gegn
óleyfilegri notkun á slíkum efnum
í matarílát og mataráhöld.
Borðbúnaður sem markaðssettur
er sem umhverfisvænn staðgengill
plasts hefur á undanförnum
árum vaxið mikið á markaði.
Bambusvörur af ýmsu tagi, svo
sem hnífapör og matarílát, eru til
að mynda vinsælar meðal neytenda
sem vilja vera vistvænni.
Hins vegar eru allmörg dæmi
um að vörur, markaðssettar sem
náttúrulegar bambusvörur, séu
gerðar úr plastefni sem kallast
melamín, bambus er síðan
notað sem fylliefni. Evrópska
matvælaöryggisstofnunin hefur
ályktað að notkun á fylliefnum af
jurtauppruna sem ætlað er að snerta
matvæli þarfnist frekari rannsókna.
Melamín-bambusvörur eru því
bannaðar.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins og Evrópska
eftirlitskerfið Food Fraud
Network ruddu úr vegi árið 2021
átaksverkefni með tollyfirvöldum
sambandsþjóðanna sem miðaði
að því að binda enda á ólöglegan
innflutning og viðskipti með vörur
sem innihéldu slík fylliefni.
Alls tók 21 land þátt í
samræmdum aðgerðum og leiddi
það til verulegrar aukningar á
upprætingu ólöglegra vara. Alls
voru 748 mál skráð í átakinu sem
leiddu til upprætingar og innköllunar
á 644 vörum á markaði innan
Evrópusambandsins en 104 vörum
var hafnað við landamæraeftirlit.
Alls voru 580 af þessum vörum
nær eingöngu seldar gegnum
vefverslanir. Meirihluti ólöglegu
varanna kom frá Kína.
Framleiðendur, innflytjendur
og dreifingaraðilar viðkomandi
vara voru krafðir um að taka þær
tafarlaust af markaði.
Eftirlit á Íslandi
Samkvæmt upplýsingum frá Herdísi
M. Guðjónsdóttur, fagsviðsstjóra hjá
Matvælastofnun, lét heil brigðis-
eftirlitið hér á landi skoða íslenskan
markað í tengslum við átakið.
Voru þá fjarlægðar plastvörur sem
innihéldu bambusduft.
Einnig komu nokkrar tilkynningar
gegnum viðvörunarkerfi Evrópu,
RASFF, um slíkar vörur sem fylgt
var eftir. Eftirlit með íslenskum
markaði er enn í gangi. Að sögn
Herdísar var fjöldi slíkra vara hér á
landi töluverður en í öllu falli settar
á markað með góðri trú að vörurnar
væru úr bambus, en ekki plast með
bambusdufti.
Plastefni sem ætlað er að vera
í snertingu við matvæli mega
aðeins vera framleidd með efnum
sem hafa tilskilin leyfi í samræmi
við reglugerðir. Borðbúnaður sem
eingöngu er úr melamíni eru leyfileg
ef þau uppfylla tilteknar reglur.
Vörur úr melamíni sem inniheldur
bambus er bannaður. Afurðir úr
hreinum bambus eru leyfilegar og
ágætis staðgengill plasts. /ghp
Afurðir úr hreinum bambus eru leyfilegar og ágætis staðgengill plasts.
Mynd / Unsplash
Dæmi um melamín-plastvörur sem upprættar voru í átaksverkefninu.