Bændablaðið - 26.01.2023, Page 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
LÍF&STARF
Akureyri:
Þróa fyrsta samsetta
fiskileðrið á Íslandi
Nýsköpunarfyrirtækið AMC
hlaut nýverið Sprotastyrk frá
Tækniþróunarsjóði Rannís upp
á samtals 20 milljónir króna til
næstu tveggja ára. Styrkurinn
verður notaður til að þróa samsett
fiskileður.
„Vinnan hingað til hefur að
mestu leyti verið að afla upplýsinga
um sútunaraðferðir, lestur á
rannsóknum og spá fyrir um aðgang
að hráefni í framtíðinni.
Við gerum ráð fyrir nokkrum
árum í rannsóknir og tilraunir
áður en fyrsta varan verður klár.
Hvað hráefni í tilraunir varðar þá hef
ég fengið það í litlum skömmtum
frá fiskvinnslum.
Mig langar þó að komast í
samband við fleiri vinnslur og fá
fleiri tegundir af roði, t.d. vantar
mig enn þá bleikjuroð,“ segir María
Dís Ólafsdóttir, annar eigenda
nýsköpunarfyrirtækisins AMC.
María Dís, sem er lífverk
fræðingur, og unnusti hennar,
Leonard Jóhannsson vélfræðingur,
eru með vinnuaðstöðuna heima hjá
sér á Akureyri við Spítalaveg 1.
Nanna Lín
Verkefni Maríu og Leonards hlaut
Norðursprotann í hugmynda
samkeppni síðastliðið vor og hefur
verið stutt af fyrirtækjastyrknum Fræ
hjá Rannís.
Verkefnið fékk nýverið endanlegt
nafn og ber heitið Nanna Lín. Nanna
Lín er leður gert úr afgangsroði og
mun lokaafurðin að sögn Maríu
verða sterkt og gott leður í metravís.
„Með því að nýta hliðarafurðir
til leðurgerðar má til dæmis leysa
ýmis gervitextílefni af hólmi og
draga með því úr mengun og losun
vegna þeirra. Varan er til að mynda
ætluð húsgagnaframleiðendum,
bólstrurum og öðrum hönnuðum
sem vinna með textíl,“ segir María
og bætir við:
„Þetta er mjög stórt og spennandi
verkefni sem við eigum fyrir
höndum. Með því að bjóða upp
á stóra fleti af leðri má ná mun
betri nýtni í framleiðslu á vörum,
samanborið við leður sútað með
hefðbundnum hætti.“ /mhh
Bílabúð Benna - verslun
Tangarhöfða 8 - 12
590 2000
Frábært úrval
af vörum frá
T-max!
Loftdæla 72 l.
26.450 kr.19.980 kr.
Aukahlutataska
Fjórhjólaspil
Frá 54.900 kr.
48” 18.900 kr.
60” 23.900 kr.
Drullutjakkur
36.980 kr.
Loftdæla 160 l.
7.980 kr.
Dekkjaviðgerðasett
Frá 198.900 kr.
Jeppaspil
4.980 kr.
Festing
19.900 kr.
Spilvagga
Frá 4.980 kr.
Rúlluvarnir
MAXIMUM OFF-ROAD RECOVERY
Eldsneytisbrúsar
10 ltr. 8.980 kr.
20 ltr. 9.980 kr.
B
irt m
eð fyrirvara um
m
ynd- og textabrengl.
María Dís Ólafsdóttir og Leonard Jóhannsson eru ungir og öflugir frumkvöðlar sem fengu nýlega 20 milljóna króna
styrk frá Tækniþróunarsjóði Rannís. Myndir / Aðsendar
Upphengt roð sem búið er að skola og vatnið er að renna af. Það getur þurft
að snyrta roðið þegar það kemur frá vinnslunum, því bein og uggar geta
verið enn á því. „Ég hef alltaf haft óendanlegan áhuga á hliðarafurðum og
því púsli sem því fylgir. Fyrir mér er þetta eitthvað sem þarf að gera og þarf
að fullreyna,“ segir María Dís.
Þú finnur Bændablaðið
á www.bbl.is,
Facebook & Instagram
Um miðjan júlí síðastliðinn rak
á land í botni Hrútafjarðar tvo
fremur óvenjulega smáhvali.
Í fyrstu var ekki ljóst hvaða
tegund um ræddi og var talið
út frá fyrstu lýsingum að þarna
væri á ferðinni marsvín. Við
nánari skoðun kom í ljós að um
rispuhöfrunga, Grampus griseus,
var að ræða og er þetta í fyrsta
sinn sem tegundin er staðfest hér
við land. Eftir að hræin höfðu verið
greind lagði Hafrannsóknastofnun
mikið upp úr því að safna sem
mestum upplýsingum um dýrin og
fór starfsmaður stofnunarinnar og
sótti hræin.
Rispuhöfrungur skal það vera
Heiti tegundarinnar á ensku er
Rissos´s dolphin, á norsku kallast
hún arrdelfin, á færeysku Risso´s
springari og á dönsku Risso´s
delfin. Náttúrufræðistofnun og
Hafrannsóknastofnun leggja því til
að tegundin hljóti nafnið rispu
höfrungur, enda er það eitt
aðaleinkenni hennar hve rispuð húð
hennar er.
Ungtarfur og kýr
Við krufningu kom í ljós að dýrin
tvö sem ráku á land í Hrútafirði
voru ungur tarfur og kýr, og ekki
fullvaxin. Bæði dýrin voru mjög
horuð, með mjög þunnt spiklag,
og líklegt er að þau hafi örmagnast
sökum sultar. Sýnum var safnað
fyrir ýmis verkefni, til dæmis
fyrir Evrópuverkefni um vistfræði
miðsjávarlaga (SUMMER) sem
Hafrannsóknastofnun er hluti af,
einnig fyrir rannsókn á vistfræði
tannhvala við landið, verkefni á
sníkjudýrum í sjávarspendýrum,
auk rannsókna á veirum í
sjávarspendýrum.
Ein stærsta höfrungategundin
Samkvæmt því sem segir á
vef Hafrannsóknastofnunar er
rispuhöfrungur ein stærsta tegundin
í ætt höfrunga. Þeir verða 3 til 4
m langir og geta orðið allt að 500
kíló að þyngd og eru náskyldir
grindhvölum. Tegundin er algeng
í bæði tempruðum hafsvæðum sem
og í hitabeltinu í öllum heimshöfum.
Í NorðurAtlantshafi er aðal
útbreiðslusvæði þeirra, í Miðjarðar
hafi og við strendur Íberíuskaga
og Frakklands, en finnst þó allt
norður til Færeyja. Tegundin kýs
nokkuð mikið dýpi, og finnst oft í
landgrunnsköntum á 400 til 1000
metra dýpi. Fæða tegundarinnar er
aðallega kolkrabbar og smokkfiskar.
Kjörhitastig hennar er 15 til 20 °C
en finnst þó stundum í kaldari sjó,
þó mjög sjaldan undir 10 °C.
Því er ljóst að hafsvæðið í
kringum Ísland er á mörkum þess
að vera of kalt fyrir tegundina,
sérstaklega fyrir norðan land þar
sem hvalirnir fundust.
Beinagrindur dýranna verða
varðveittar á Náttúrufræðistofnun.
/VH
Rispuhöfrungar, Grampus griseus, draga nafn sitt af því hve rispuð húð
þeirra er. Mynd / wikipedia
Hafrannsóknastofnun:
Rispuhöfrungar ráku á
land í Hrútafjarðarbotni