Bændablaðið - 26.01.2023, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
„Síðasta ár var mér erfitt og ég
er að tjasla mér saman,“ segir
Þórarinn Ævarsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Ikea og Spaðans.
„ N æ s t a
skref hjá mér
er heilsuhælið
í Hveragerði
enda ætla ég
að nýta mér
allt sem er í
boði til að ná
heilsu á ný,
hvort sem það
eru leirböð,
heilun, nudd eða notkun á hug-
víkkandi efnum.“
Þórarinn er himinlifandi yfir
ráðstefnunni. „Fyrirlesararnir eru
breiður hópur og mjög vel valdir
og þeir tala til margra ólíkra hópa.
Að mínu mati eru tvö áberandi
sjónarmið sem koma fram. Annars
vegar sjónarmiðið um varúð og
hins vegar þeirra sem hafa stundað
rannsóknirnar og þau stangast á við
hræðsluáróðurinn sem oft er áberandi
í umræðunni um hugvíkkandi efni.“
Þunglyndi og lyfjafíkn
„Mín saga er sú að ég var þungt
haldinn af þunglyndi og var haldinn
nýtilkomnum fíknisjúkdómi á
læknaávísuð lyf og leið hreint út
sagt hræðilega illa. Ég ákvað því
að prófa hugvíkkandi efni, sveppi,
MDMA og DMT, og losnaði
við þunglyndið og lyfin nánast
samstundis í framhaldinu og mín
saga því hálfgerð kraftaverkasaga
án þess að ég geti né vilji fullyrða
nokkuð um reynslu annarra.“
Þórarinn segir að kosturinn við
DMT sé að virkni þess sé stutt,
um það bil tíu mínútur, og það því
hraðvirkt. „Líkaminn framleiðir
sama efni og þekkir það og efnið fer
því hratt inn og hratt út og líkaminn
þarf ekki að brenna DMT upp í
lifrinni eins og til dæmis áfengi.“
Vonandi búinn með mitt
„Ég tel að það sem ég hef gert dugi
fyrir mig og ég sé mögulega búinn
með mín ferðalög á hugvíkkandi
efnum og þurfi ekki meira. Löngunin
til að halda þessu áfram er ekki til
staðar, ólíkt því sem var þegar ég
hætti að drekka áfengi á sínum tíma.
Þá langaði mig í drykk, alveg eins og
eftir að ég hætti að reykja, þá langaði
mig í sígarettu.
Satt besta að segja er reynslan af
hugvíkkandi efnum ekkert sérlega
skemmtileg meðan á henni stendur
og meira að segja erfið þegar maður
er að takast á við áföll. En eftir á er
hún mjög góð og satt best að segja
æðisleg í mínu tilfelli. Mín reynsla
tónar við það sem fyrirlesararnir eru
að segja.“
Dagana 12. og 13. janúar var haldin
í Hörpu ráðstefnan „Psychedelics
as Medicine“. Markmiðið með
ráðstefnunni, sem var á vegum
Eden stofnunarinnar, var að
upplýsa og fræða um hugvíkkandi
efni og þau tækifæri sem felast í að
leyfa og hefja geðmeðferðir með
hjálp slíkra efna.
Á ráðstefnunni kom fram, svo ekki
verður um villst, að viðhorf manna,
ekki síst vísindamanna, til hugmynda
um hugvíkkandi efni og notkun
þeirra er að breytast. Í tengslum
við ráðstefnuna komu til landsins
nokkrir af þekktustu alþjóðlegum
sérfræðingum og vísindamönnum
heims á sviði rannsókna og meðferða
með hugvíkkandi efni og héldu erindi.
Fyrirlesararnir fjölluðu um störf
sín og rannsóknir á fjölbreytilegan
hátt og kynntu niðurstöður sem gefa
vísbendingar um árangur við notkun
hugvíkkandi efna í baráttunni við
geðheilbrigðisbresti á borð við
þunglyndi, kvíða, áföll, fíkn og tengda
sjúkdóma og raskanir.
Um tuttugu erlendir gestir voru
meðal fyrirlesara, auk þess sem
nokkrir Íslendingar tóku þátt í
pallborðsumræðum. Meðal þeirra
sem tóku þátt voru rithöfundurinn
Michael Pollan, dr. Julie Holland, dr.
Sherry Walling, dr. Páll Matthíasson
og Héðinn Unnsteinsson.
Auk þess fóru sex fyrirlesarar af
ráðstefnunni, Ben Sessa, Danielle
Schlosser, Will Siu, Rick Doblin, Páll
Mattíasson, Haraldur Erlendsson og
lögreglufulltrúinn Sarko Gergeria
á fund fulltrúa dómsmála- og
heilbrigðisráðherra og Gríms
Grímssonar yfirlögregluþjóns.
Frá fyrirlestri dr. Sergio Pérez Rosla þar sem hann fjallaði um innleiðingu
hugvíkkandi efna í læknisfræði, meðferð, þjálfun og vöxt.
Hugvíkkandi efni til lækninga:
Breyttir tímar
LÍF & STARF
Einstök ráðstefna
„Við sem stóðum að ráðstefnunni
vorum búin að vera að skipuleggja
hana í rúmt ár,“ segir Sara María
Júlíusdóttir, stofnandi The Eden
Foundation, sem stóð fyrir „Psyche-
delics as Medicine“ ráðstefnunni.
„Viðbrögð fyrirlesaranna við
að koma til Íslands og taka þátt í
ráðstefnunni voru ótrúlega jákvæð
og nánast allir sem við töluðum við
og gátu komið komu. Fyrir utan
það að vera á Íslandi er ráðstefnan
einstök að því leyti að í henni tóku
ýmsir ráðamenn í þjóðfélaginu,
lögreglumenn og fólk frá dómsmála-
og heilbrigðisráðuneytinu og
Fangelsismálastofnun þátt og
það er nánast óþekkt á svipuðum
ráðstefnum erlendis. Fyrir
erlendu fyrirlesarana er það mikil
viðurkenning og einstakt tækifæri
til að koma rannsóknum sínum á
framfæri.“
Alltaf haft áhuga á plöntum
Sara segir að áhugi sinn á plöntum
nái allt til þess þegar hún var barn
og var að hjálpa mömmu sinni að
vökva pottaplöntur. „Ætli áhugi
minn á að nota efni úr plöntum sem
hugvíkkandi komi ekki upprunalega
þaðan og að ég hef alltaf verið opin
fyrir mystíkinni í kringum okkur og
því sem við sjáum ekki.“
Það sem leynist í plöntum
„Árið 2017 fór ég til Gvatemala til
að prófa eitthvað nýtt í lífinu og þá
tók ég hugvíkkandi efni, sveppi og
peyote-kaktus, í fyrsta sinn. Fyrir þá
reynslu var ég með mikla fordóma
fyrir öllu slíku en reynslan breytti
lífi mínu og þá skildi ég á dýpri hátt
en mig hefði getað órað fyrir hvað
leynist í plöntum.“
Í framhaldinu hefur Sara lagt stund
á nám í sál- og sálmeðferðarfræði
með hugvíkkandi efnum.
Sara María Júlíudóttir, stofnandi
The Eden Foundation, prófaði hug-
víkkandi efni árið 2017 og segir að
það hafi breytt lífi hennar.
Þorsteinn Úlfar Björnsson rithöfundur hefur í
fjöldamörg ár bent í ræðu og riti á fáránleika
þess sem hefur verið kallað stríðið gegn
eiturlyfjum.
Hann segir að þrátt fyrir að ráðstefnur af þessu
tagi séu að mörgu leyti endurtekningar fyrir þá sem
hafa kynnt sér málið sé hann himinlifandi og það
sé alltaf hægt að læra eitthvað nýtt.
„Hér er ekki allt nýtt fyrir mér þar sem ég hef
lesið mér mikið til um margar þessar rannsóknir
og kynnt mér niðurstöður þeirra.
Ég hef einnig kynnt mér sögu hugvíkkandi
efna í gegnum tíðina og í mínum huga er því
ekkert nýtt að fólk hafi notað þau og allt tal um
að við séum að uppgötva eitthvað nýtt vitleysa.
Það voru allir á þessu fyrir 4.000 árum.“
Þorsteinn Úlfar Björns-
son rithöfundur.
„Að mörgu leyti er þetta góð
ráðstefna. Hér eru saman komnir
margir af helstu forkólfum í
vísindarannsóknum á sviði
hugvíkkandi efna í heiminum til að
ræða um hvað er nýjast í þessum
fræðum og það er bæði fróðlegt og
gagnlegt í mínum huga, segir dr.
Páll Matthíasson geðlæknir.
„Það sem erindi þeirra sýna hefur
komið fram í ýmsum fræðigreinum
og er að rannsóknir á notkun
hugvíkkandi efna samþætt við
sérsniðna viðtalsmeðferð getur
hjálpað í glímunni við marga
alvarlega geðsjúkdóma, eins og til
dæmis þunglyndi sem ekkert annað
hrín á.
Efnin ásamt viðtalsmeðferð
virðast einnig geta hjálpað til í
baráttunni við fíknisjúkdóma og
áfallastreituröskun sem er gott.
Við verðum samt einnig að horfa
til þess að margar þessara rannsókna
eru enn í gangi og því ekki lokið
og ekki enn komið í ljós hver áhrif
þessara efna eru í stórum hópum
sem eru ekki sérvaldir. Það er til
dæmis enn erfitt að segja til um
hverjar aukaverkanirnar geta orðið
til lengri tíma og það er það sem
rannsóknirnar sem nú eru að hefjast
eiga að leiða í ljós. Ég tel að enn sem
komið er sé ekki hægt að fullyrða
neitt um hversu gagnleg þessi efni
eru. Til þess þarf að bíða þar til
niðurstöður úr þeim rannsóknum
liggja fyrir,“ segir Páll.
MDMA leyft sem geðlyf
Á ráðstefnunni kom fram að MDMA
verður leyft sem geðlyf í ákveðnum
tilfellum í Bandaríkjunum árið 2024.
Páll segir að eftir að lyfið verði leyft
þar gefi það tóninn fyrir önnur lönd
og telur að niðurstaðan verði á sama
veg annars staðar. „Ég vil þó benda á
að það eru alltaf að koma fram nýjar
rannsóknir og þær geta haft áhrif á
leyfisveitinguna.“
Væntingar geta haft áhrif
á niðurstöður
„Að mínu mati er full ástæða til
að fara varlega. Við vitum að eftir
því sem rannsóknum fjölgar og að
þeir sem eru að framkvæma þær
eru ekki allir jafntrúaðir á ágæti
meðferðanna og þeir sem þær fá
heldur ekki sannfærðir um ágæti
þeirra, að þá dregur úr þeim miklu
áhrifum sem sjást í fyrstu litlu
rannsóknunum.
Ég tel líka að jákvæðar væntingar
þeirra sem taka þátt í fyrstu
rannsóknunum geti haft jákvæðar
niðurstöður á þær, enda slíkt vel
þekkt úr öðrum rannsóknum.“
Leit að nýjum vopnum
„Ég held að leiðin til að ná árangri
með þessum efnum sér sú sem þeir
rannsakendur sem hér eru nota, það
er að segja með rannsóknum og að
afla upplýsinga.
Við erum að leita að nýjum
vopnum ef svo má segja í baráttunni
við illvíga sjúkdóma sem við
þurfum betri meðferðir við.
Ég vara eindregið við því að
fólk sé að nota þessar meðferðir
einhvers staðar úti í bæ.
Í fyrsta lagi veit fólk ekki hvaða
efni það er að fá og taka og í hvaða
magni og hins vegar hefur komið
fram í rannsóknum að við inntöku
þessara efna geta komið fram
miklar tilfinningar og vanlíðan.
Því er nauðsynlegt að slíkar
meðferðir fari fram í umsjón
fagfólks sem hefur fengið til þess
þjálfun og í vernduðu umhverfi,“
segir Páll.
Dr. Páll Matthíasson, geðlæknir.
Full ástæða til að fara varlega
„Ég kom til Íslands sérstaklega til að taka
þátt í ráðstefnunni og ég sé ekki eftir því.
Fyrirlesararnir hafa sett rannsóknir sínar
vel fram og fyrirlestrarnir því áhugaverðir
og góðir,“ segir Olivia Onyeador.
„Hér er eitthvað fyrir alla, fræðileg umfjöllun,
persónulegar reynslusögur, pallborðsumræður
og spurningar úr sal og þeir sem eru hér sem
áheyrendur koma víðs vegar að og úr mörgum
þrepum samfélagsins.“
Olivia er frá Maryland-ríki í Bandaríkjunum
þar sem hún starfar við klínískar rannsóknir
á lungum en vonast til í framtíðinni að leggja
meiri áherslu á starf tengt sálfræði og sálfræði-
meðferðum. „Eitt af því sem vakið hefur athygli
mína er sú skoðun margra fyrirlesaranna að
hugvíkkandi efni ein og sér komi ekki til með
að lækna öll sár.
Til að efnin gagnist að fullu er því nauðsynlegt
að taka þau undir leiðsögn manneskju sem hefur
til þess þjálfun og getur stýrt reynslu þess sem
efnið tekur þannig að hún verði jákvæð og nýtist
á jákvæðan hátt.“
Olivia Onyeador
leggur stund á
klínískar rannsóknir.
Efnin sem slík
lækna ekki öll sár
Enduruppgötvun
Þórarinn Ævarsson.
Mín reynsla tónar við það sem
fyrirlesararnir segja
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is