Bændablaðið - 26.01.2023, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
Ístex:
Annar ekki eftirspurn
eftir prjónabandi
– Ullarinnlegg hefur dregist saman en tekjur aukist
Starfsemi Ístex hefur nú stór aukist
eftir lægð á tímum faraldursins
og annar fyrirtækið ekki lengur
eftirspurn eftir Lopa – prjónabandi
sínu. Þó svo að ullarinnlegg hafi
dregist saman um 25 prósent á
síðustu fimm árum er til næg ull
með bættri ullarflokkun þannig að
hún nýtist betur í handprjónaband
og aðrar ullarvörur.
Á þessu sama tímabili, samhliða
samdrætti í ullarmagni, hafa tekjur
fyrirtækisins aukist verulega.
Aukin eftirspurn í
Lopaprjónaband
Sigurður Sævar Gunnarsson, fram
kvæmdastjóri Ístex, er afar þakklátur
fyrir góðar viðtökur við lopavörum
Ístex. „Prjónarar eru að leita meira
og meira í náttúruleg og sjálfbær
efni, eins og lopa. Ístex og Lopi hafa
jafnframt spennandi sögu þar sem
bændur og Ísland spila stórt hlutverk.
Það er ekki á mörgum stöðum í
heiminum þar sem bændur eiga
þvottastöð og spunaverksmiðju. Til
þess að tryggja aukna bandvinnslu
og mæta eftirspurn er þörf á frekari
fjárfestingum á vélbúnaði,“ segir
Sigurður, sem kom til starfa hjá
Ístex árið 2017 þegar draga fór úr
ullarinnleggi bænda inn í fyrirtækið.
„Það hefur háð okkur talsvert að
hafa ekki undan í bandframleiðslu,
sem hefur valdið skorti á hand
prjónabandi og værðarvoðum. Við
höfum aukið framleiðsluna eins og
unnt er miðað við tæki og tól. Hún
gekk í raun ágætlega á síðastliðnu
ári, þrátt fyrir svolítið af bilunum.
Starfsfólki hefur fjölgað, en um 70
manns starfa nú hjá Ístex. Ljóst er að
fjölga þarf enn meira starfsfólki og
bæta við tækjabúnaði,“ segir hann.
Prjónaskapur jókst í faraldrinum
Rebekka Kristjánsdóttir, sölustjóri
Ístex, segir að hjá fyrirtækinu sé úrval
af fjölbreyttri hönnun og vönduðum
uppskriftum fyrir prjónara, hún telur
að árleg útgáfa Lopa prjónabókanna
ásamt Lopidesign.is styðji við
þennan mikla prjónaáhuga. Covid
19 hafði mikil áhrif og margir tóku
upp prjónaskap.
„Það var sérstakt gleðiefni að ekki
bara jókst prjónaáhugi, heldur tóku
yngri prjónarar sérlega vel við sér.
Lopinn er heppilegur að mörgu leyti
fyrir byrjendur, hann fyrirgefur
og uppskriftir Lopa eru skýrar
og aðgengilegar.
Reynsla okkar er, að þegar
fólk byrjar að prjóna, líkt og í
efnahagshruninu, þá heldur það
áfram. Ég tel frekari fjárfestingar
sem geta hjálpað til við að auka
framleiðslu mjög mikilvægar í
ljósi síaukins áhuga á hráefninu
um allan heim. Einnig má nefna að
ferðamannaiðnaðurinn hefur tekið
við sér sem hefur áhrif á enn meiri
eftirspurn.“
Eftir erfið ár í faraldrinum hefur
rekstur Ístex verið sterkur síðustu
tvö ár. Að sögn Sigurðar hefur
salan á vörum Ístex numið meira
en 1.200 milljónum og skilað
góðum hagnaði. Á síðustu fimm
árum hefur ullarmagnið sem Ístex
hefur úr að spila minnkað um 25
prósent en sala aukist um 50 prósent,
þökk sé handprjónabandinu og
þróunarvinnu.
Vinsældir víða
,,Vinsældir Lopa teygja sig
víða út fyrir landsteinana. Af
erlendum prjónurum er mest sótt
í það frá NorðurEvrópu, Norður
löndunum, Þýskalandi, Hollandi og
Bandaríkjunum. Ísland er í forgangi,
en til að ná að framleiða sem mest
band eru teknar stærri lotur með
tiltekna vöru og því líður lengri tími
á milli einstakra lita og tegunda í
framleiðslunni,“ segir Sigurður, en
Léttlopi er langvinsælasta vara Ístex.
Svo koma Álafosslopi og
Plötulopi. Aðrar mikilvægar vörur
í vörulínu Ístex eru sængurull og
Lopiloft sem einangrun í úlpur.
„Í Finnlandi er mikill áhugi
á okkar Lopavörum og sem
dæmi um það má nefna að fimm
lopaprjónabækur voru gefnar þar út á
síðasta ári af finnskum útgefendum,
þar af voru tvær frá okkur; Lopi 40
og afmælisbókin 41 eftir Védís
Jónsdóttir,“ segir hann.
Öll ull í gegnum
ullarþvottastöðina
Allri ull er safnað saman á
Blönduósi þar sem hún fer í
gegnum ullarþvottastöðina. „Um
5060 prósent fer í spunaverksmiðju
okkar í Mosfellsbæ, annað fer í
sængurullarframleiðslu eða til aðila
í gólfteppabandsvinnslu.
Af bandvinnslu í Mosfellsbæ
fer um 60 prósent í útflutning. Við
höfum engar bandverslanir og seljum
bara til umboðsaðila. Hins vegar
seljum við ullarsængurnar á vefnum
Lopidraumur.is og uppskriftir á
Lopidesign.is beint til neytenda.
Sala á ull í gólfteppabandsvinnslu
hefur minnkað verulega. Áður fyrr
skipti þessi sala Ístex og bændur
miklu máli og var um 25 prósent
Sigurður með grænlitaða ull, en fyrirtækið er með meira en 4.000 uppskriftir
í sínum fórum til að vinna með. Myndir / smh
Hluti af starfsmannahópi Ístex við nýju dokkuvélina.
Jón Haraldsson og Sigurður framkvæmdastjóri við kembivélina.
Sunna Jökulsdóttir gæða- og
þróunarstjóri og Rebekka Kristjáns-
dóttir sölustjóri. Mynd / Ístex
Ásgeir Þór Ingason er hér að hnýta
hespur.
Í DEIGLUNNI
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is